Ferill 600. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 914  —  600. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um úrbætur í öryggismálum sjómanna.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



     1.      Hafa þær átján tillögur sem nefnd um úrbætur í öryggismálum sjómanna lagði til með bréfi til fyrrverandi samgönguráðherra, dags. 5. júní 1998, verið teknar til meðferðar í ráðuneytinu?
     2.      Hvernig er fyrirhugað að fylgja eftir tillögum nefndarinnar?


Skriflegt svar óskast.