Ferill 549. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 938  —  549. mál.




Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., með síðari breytingum.

Frá Pétri H. Blöndal.



    Við bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Endurgreiða skal mismun greidds vörugjalds af bifreiðum sem ætlaðar eru til útleigu hjá bílaleigum, sbr. c-lið 3. gr. laga þessara, og tollafgreiddar eru eftir gildistöku þeirra og þess vörugjalds sem borið hefði að greiða ef bifreið hefði verið tollafgreidd eftir 15. maí 2000. Endurgreiðsla skal háð því að skilyrðum c-liðar 3. gr. laga þessara til lækkunar vörugjalds sé fullnægt.