Ferill 549. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 943  —  549. mál.




Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., með síðari breytingum.

Frá fjármálaráðherra.



    Við 3. gr. B-liður orðist svo: 4. tölul. 2. mgr. orðast svo: Vörugjald af leigubifreiðum til fólksflutninga skal lagt á samkvæmt eftirfarandi töflu miðað við sprengirými aflvélar, mælt í rúmsentímetrum:

Flokkur Sprengirými aflvélar Gjald í %
I 0–2.000 10
II Yfir 2.000 13

Skilyrði lækkunar vörugjalds af leigubifreið eru að kaupandi hennar hafi atvinnuleyfi til leiguaksturs fólksbifreiða og hafi akstur hennar að aðalatvinnu.