Ferill 609. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 944  —  609. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um erfðafjárskatt.

Frá Gunnari Birgissyni.



     1.      Hve háar upphæðir innheimtir ríkissjóður sem erfðafjárskatt miðað við eftirfarandi flokkun:
                  a.      börn og aðrir niðjar;
                  b.      foreldrar og niðjar þeirra;
                  c.      aðrir fjarskyldir og óskyldir?
     2.      Hver er kostnaður ríkissjóðs af skiptum dánarbúa á ársgrundvelli?


Skriflegt svar óskast.