Ferill 459. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1016  —  459. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Ögmundar Jónassonar um barnabætur.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvert hefur verið framlag ríkissjóðs til barnabóta og barnabótaauka árlega frá og með árinu 1991, sundurgreint á eftirfarandi hátt:
     a.      barnabætur (ótekjutengdar) sem hlutfall og í millj. kr.,
     b.      barnabætur (tekjutengdar) sem hlutfall og í millj. kr.,
     c.      barnabætur alls í millj. kr.,
     d.      barnabætur alls sem hlutfall af vergri landsframleiðslu,
     e.      barnabætur alls á föstu verðlagi, samkvæmt vísitölu?


     Barnabætur og barnabótaauki 1991–99.

Í milljónum kr.      1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 19981 19991
Barnabætur:2
    Barnabætur 3.623 2.505 2.522 2.584 2.635 2.684 2.693 4.078 3,779
    Barnabótaauki 1.197 1.786 1.817 1.884 1.959 2.102 1.878 – –
    Barnabætur alls      4.819 4.291 4.339 4.468 4.594 4.786 4.571 4.078 3,779
Hlutfallsleg skipting:
    Barnabætur 75% 58% 58% 58% 57% 56% 59% 100% 100%
    Barnabótaauki 25% 42% 42% 42% 43% 44% 41% 0% 0%
    Samtals      100% 100% 100% 100% 100% 100% 100% 100% 100%
Sem hlutfall af vergri landsframleiðslu:3
    Barnabætur 0,9% 0,6% 0,6% 0,6% 0,6% 0,6% 0,5% 0,7% 0,6%
    Barnabótaauki 0,3% 0,4% 0,4% 0,4% 0,4% 0,4% 0,4% 0,0% 0,0%
    Samtals      1,2% 1,1% 1,1% 1,0% 1,0% 1,0% 0,9% 0,7% 0,6%
Á verðlagi í árslok 19994
    Barnabætur 4.410 2.941 2.844 2.871 2.879 2.868 2.826 4.208 3,779
    Barnabótaauki 1.457 2.097 2.049 2.094 2.140 2.246 1.971 – –
    Barnabætur alls      5.867 5.038 4.893 4.965 5.020 5.114 4.797 4.208 3,779
1    Árið 1998 voru barnabætur og barnabótaauki sameinuð og kallast nú barnabætur.
2
    Tölur um barnabætur eru byggðar á upplýsingum úr álagningarkerfi barnabóta aftur til 1992 en á ríkisreikningi fyrir árið 1991. Tölur um barnabótaauka eru byggðar á álagningaryfirliti einstaklinga aftur til 1991.
3    Samkvæmt Þjóðhagsstofnun.
4    Miðað við neysluverðsvísitölu Þjóðhagsstofnunar.

    Árið 1991 var ákveðið að auka vægi tekjutengingar í barnabótakerfinu og árið 1997 var skrefið stigið til fulls með því að tekjutengja allar barnabætur. Jafnframt var þá ákveðið að allar barnabætur og afsláttarliðir í tekjuskattskerfinu skyldu hækka um 2,5% í ársbyrjun 1998, 1999 og 2000 í samræmi við áætlanir um verðlagsþróun. Með þessu var í reynd horfið til þess sem gilti þegar staðgreiðslukerfið var tekið upp á árinu 1988, þ.e. að þessir liðir skyldu fylgja verðlagi.
    Þetta atriði endurspeglast í heildargreiðslum barnabóta á árunum 1992–96 sem þróast nokkurn veginn í takt við verðlag. Frá árinu 1997 hefur heildargreiðsla barnabóta hins vegar lækkað enda þótt allar fjárhæðir í barnabótakerfinu hafi hækkað um rúmlega 5%. Þessi þróun endurspeglar þá miklu kaupmáttaraukningu sem orðið hefur í þjóðfélaginu á þessum tíma og áhrif tekjutengingarinnar við þær aðstæður.