Ferill 621. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1026  —  621. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um skil á vottuðum landbúnaðarafurðum.

Frá Drífu Hjartardóttur.



     1.      Hversu margir bændur hafa skilað vottuðum afurðum (vistvænum og lífrænum) á árinu 1999? Svar óskast sundurgreint eftir:
                  a.      mjólkurafurðum,
                  b.      sauðfjárafurðum,
                  c.      matjurtaafurðum.
     2.      Hvert var skilaverð til bænda fyrir þessar afurðir?


Skriflegt svar óskast.