Ferill 439. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1028 — 439. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Guðmundar Hallvarðssonar um greiðslur til öldrunarstofnana.
1. Hver var ástæða þess að árleg jöfnunargreiðsla vegna B-deildar LSR var fyrirvaralaust felld inn í daggjöld án skýringa í fjárlögum?
Leitað var til fjármálaráðuneytis um svar við þessu, en málefni lífeyrisgreiðslna heyra undir það.
Við 3. umræðu fjárlaga árið 1998 var samþykkt 2.190 millj. kr. hækkun á framlögum til stofnana og viðfangsefna í A-hluta fjárlaga vegna þess að þeim er ætlað að greiða til A- og B-deilda Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga iðgjald sem nemur 11,5% af öllum launum í stað 6% iðgjalds af dagvinnulaunum. Er gerð grein fyrir þessum breytingum á bls. 250 í fjárlögum ársins. Sundurliðun fjárhæðarinnar eftir stofnunum og verkefnum er sýnd í yfirliti á bls. 291–305. Þar kemur fram hver hækkunin er til einstakra hjúkrunarheimila.
2. Hvernig skiptist hjúkrunardaggjaldið í beinan hjúkrunarkostnað á deildum og í annan kostnað? Er skiptingin eins hjá öllum stofnunum?
Hinn 1. janúar 1996 gekk í gildi reglugerð um mat á heilsufari og aðbúnaði íbúa á öldrunarstofnunum. Samkvæmt reglugerðinni ber öldrunarstofnunum reglulega að annast RAI-mat á einstaklingum sem þar dveljast. Nefnd skipuð af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra vinnur nú að endurskoðun framlaga til hjúkrunarheimila. Í nefndinni sitja m.a. tveir fulltrúar öldrunarstofnana. Unnið er að gerð líkans sem verður notað til að greiða framlög til hjúkrunarheimila í samræmi við hjúkrunarþyngd samkvæmt RAI-hjúkrunarþyngdarstuðli. Þegar gerð líkansins lýkur verður farið að skipta daggjaldinu annars vegar í beinan hjúkrunarkostnað á deildum í samræmi við RAI-hjúkrunarþyngd og hins vegar í annan kostnað. Þannig verða heimilum sem hafa einstaklinga með mikla þörf fyrir umönnun, og þar með meiri kostnað við beina umönnun, greidd hærri daggjöld en heimilum með einstaklinga með minni umönnunarþörf samkvæmt RAI-hjúkrunarþyngdarstuðli. Með þessum breytingum skapast jafnræði á milli hjúkrunarheimila.
Í fjárlögum ársins 2000 var stigið fyrsta skrefið í þá átt að byggja framlög til hjúkrunarheimila á RAI-hjúkrunarþyngdarstuðli. Þá var tekin ákvörðun um að hafa sjö daggjaldataxta á bilinu 8.428–10.250 kr. Tekið er mið af meðalhjúkrunarþyngd einstakra heimila árið 1998. Við útreikning fjárframlaga er miðað við sömu daggjaldataxta til stofnana á föstum fjárlögum og daggjaldastofnana.
3. Hvernig verður leiðrétt sú 7–8% skekkja (miðað við árslok 1998) sem orðið hefur á grunni hjúkrunardaggjalds frá því að halladaggjöld voru lögð af árið 1990? Verður leiðréttingin reiknuð aftur í tímann?
Að lokinni afgreiðslu fjárlaga ár hvert eru daggjaldataxtar ákveðnir miðað við samþykktar fjárveitingar á Alþingi. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið hefur ekki yfir að ráða öðrum fjárveitingum en þeim sem Alþingi samþykkir við afgreiðslu fjárlaga. Í kjölfar úttektar Ríkisendurskoðunar á stöðu stofnana sem gerð var á haustmánuðum 1999 var samþykkt 683 millj. kr. aukafjárveiting til hjúkrunarheimila í fjáraukalögum ársins 1999 til að greiða uppsafnaðan halla. Enn fremur var við afgreiðslu fjárlaga ársins 2000 samþykkt 554,3 millj. kr. hækkun á rekstrargrunni hjúkrunarheimila. Ekki eru aðrar leiðréttingar áformaðar til hjúkrunarheimila vegna uppgjörs fyrri ára.
4. Hvenær verður jafnaður munur á greiðslum fyrir legudag á milli fjárlaga- og daggjaldastofnana í öldrunarþjónustu? Er þessi munur í samræmi við jafnræðisregluna? Verður þetta leiðrétt aftur í tímann?
Í fjárlögum ársins 2000 var farið að miða við sömu daggjaldataxta við útreikning fjárframlaga til fjárlagastofnana og til daggjaldastofnana. Við ákvörðun taxtanna var tekið mið af hjúkrunarþyngd samkvæmt RAI-mati frá árinu 1998. Ekki er áformað að leiðrétta daggjaldataxtana aftur í tímann að öðru leyti en því sem gert var í fjáraukalögum ársins 1999.
5. Hafa greiðslur verið skertar til stofnana í öldrunarþjónustu sem eru á fjárlögum ef þær vannýta rúmin sem þær fá greitt fyrir?
Ekki hefur verið gripið til þess af hálfu heilbrigðisráðuneytisins að skerða greiðslur til hjúkrunarheimila á föstum fjárlögum vegna vannýtingar.
6. Hver var meðalnýting rýma hjá daggjaldastofnunum annars vegar og stofnunum á föstum fjárlögum hins vegar 1997, 1998 og 1999? Hvernig var nýting rýma einstakra stofnana fyrrgreind ár?
Vegið meðaltal á meðalnýtingu hjúkrunarrýma hjá daggjaldastofnunum annars vegar og hjá stofnunum á föstum fjárlögum hins vegar fyrir árin 1997, 1998 og 1999 er eftirfarandi:
| 1997 | 1998 | 1999 | |
|
Daggjaldastofnanir
|
99,1% | 99,6% | 98,5% |
|
Stofnanir á föstum fjárlögum
|
97,9% | 97,8% | 97,6% |
Eftirfarandi tafla sýnir meðalnýtingu hjúkrunarrýma á einstökum stofnunum árin 1997, 1998 og 1999:
| 1997 | 1998 | 1999 | |
| Daggjaldastofnanir: | |||
|
Seljahlíð, Reykjavík
|
100,0% | 99,9% | 99,7% |
|
Dalbær, Dalvík
|
100,0% | 100,0% | 99,7% |
|
Hjallatún, Vík
|
98,4% | 98,5% | 100,0% |
|
Höfði, Akranesi
|
99,1% | 98,2% | 98,5% |
|
Hraunbúðir, Vestmannaeyjum
|
102,3% | 98,4% | 99,4% |
|
Barmahlíð, Reykhólum
|
78,0% | 95,0% | 96,0% |
|
Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi
|
98,2% | 98,8% | 98,2% |
|
Fellaskjól, Grundarfirði
|
50,0% | 75,0% | 80,0% |
|
Dvalarheimili aldraðra, Stykkishólmi
|
87,0% | 99,2% | 94,3% |
|
Jaðar, Ólafsvík
|
100,0% | 100,0% | 100,0% |
|
Klausturhólar, Kirkjubæjarklaustri
1
|
109,8% | 100,0% | |
|
Hrafnista, Reykjavík
|
100,4% | 100,2% | 100,0% |
|
Hrafnista, Hafnarfirði
|
100,5% | 100,4% | 100,2% |
|
Grund, Reykjavík
|
101,3% | 99,1% | 96,3% |
|
Ás/Ásbyrgi, Hveragerði
2
|
96,5% | ||
|
Kumbaravogur, Stokkseyri
|
98,6% | 99,8% | 98,6% |
| Stofnanir á föstum fjárlögum: | |||
|
Sólvangur, Hafnarfirði
3
|
95,6% | 94,3% | 98,4% |
|
Sundabúð, Vopnafirði
|
100,0% | 88,0% | 88,0% |
|
Sunnuhlíð, Kópavogi
|
94,2% | 95,4% | 93,5% |
|
Hjúkrunarheimilið Skjól
|
99,0% | 98,3% | 95,0% |
|
Hjúkrunarheimilið Eir
|
99,4% | 99,3% | 98,1% |
|
Garðvangur, Garði
|
97,4% | 98,0% | 97,9% |
|
Hjúkrunarheimilið Skógarbær
4
|
96,8% | 98,8% | 100,0% |
|
Hjúkrunarheimilið Droplaugarstöðum
|
99,2% | 99,5% | 99,5% |
|
Lundur, Hellu
|
99,8% | 99,9% | 99,2% |
|
Hulduhlíð, Eskifirði
|
97,0% | 103,0% | 97,0% |
|
Hornbrekka, Ólafsfirði
|
97,9% | 99,5% | 97,2% |
|
Naust, Þórshöfn
|
93,0% | 99,0% | 99,0% |
|
Skjólgarður, Höfn
|
97,3% | 97,3% | 95,8% |
|
Hjúkrunarheimilið Hlíð, Akureyri
|
98,5% | 97,7% | 99,7% |
| 1 Ekki fengust upplýsingar um nýtingarhlutfall á Klausturhólum frá 1997. | |||
| 2 Heilsársrekstur hófst í Ási á árinu 1999. | |||
| 3 Fækka þurfti rýmum í Sólvangi á árinu 1998 vegna endurbóta á húsnæði. | |||
| 4 Heilsársrekstur hófst í Skógarbæ á árinu 1999. | |||
7. Hvenær og hvernig verða áfallnar lífeyrisskuldbindingar, sem eru eðlilegur rekstrarkostnaður eins og önnur launatengd gjöld, teknar inn í daggjöld?
Leitað var til fjármálaráðuneytis um svar við þessu, en málefni lífeyrisgreiðslna heyra undir það.
Frá og með árinu 1998 hefur í fjárlögum verið gert ráð fyrir að daggjaldastofnanir greiði lífeyrisskuldbindingar sem stofnast á viðkomandi uppgjörstímabili. Í fjárlögum árið 1998 og síðan voru iðgjöld atvinnurekenda hækkuð í 11,5% af heildarlaunum en voru áður 6% af dagvinnulaunum.
Við setningu laganna var áætlað að nýja iðgjaldið, sem er 15,5% af heildarlaunum að meðtöldu framlagi sjóðfélaga, dygði til að mæta nýjum lífeyrisskuldbindingum. Ef framlagið er ekki nógu hátt gerist það einkum hjá stofnunum þar sem sjóðfélagar greiða umfram meðaltal til Lífeyrissjóðs hjúkrunarkvenna og B-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Endanlegt iðgjald er háð samsetningu launa og aldri sjóðfélaga. Áformað er að á þessu ári fari fram reikningslegt uppgjör á lífeyrisskuldbindingum einstakra stofnana frá árinu 1998 og að iðgjöld verði leiðrétt með tilliti til þess uppgjörs.
Lífeyrisskuldbindingar sem voru áfallnar í árslok 1997 og höfðu ekki verið gerðar upp, hvorki gagnvart viðkomandi stofnun né lífeyrissjóði, eru í sérstakri skoðun í fjármálaráðuneyti.
8. Hvernig hafa ákvæði 39. gr. laga um almannatryggingar, nr. 117/1993, um að hafa skuli náið samráð við daggjaldastofnanir um ákvörðun daggjalda verið uppfyllt?
Það er mat ráðuneytisins að innsend gögn viðkomandi hjúkrunarheimilis séu grundvöllur náins samráðs. Þar má ætla að fram komi upplýsingar um rekstur stofnana og breytingar á tilteknum kostnaðarliðum. Í hvert sinn sem nýr daggjaldataxti er tilkynntur sendir ráðuneytið daggjaldastofnunum erindisbréf þar sem þess er óskað að því verði sendar sjúkrahússkýrslur á þriggja mánaða fresti þar sem helstu rekstrarniðurstöður viðkomandi heimila komi fram. Eftir afgreiðslu fjárlaga í upphafi hvers árs er hjúkrunarheimilum á föstum fjárlögum gert að senda inn rekstraráætlanir auk þess sem þau senda ráðuneytinu ársreikninga sl. árs.
9. Hver er ástæða þess að Securitas fær 1.490 kr. hærra daggjald en elliheimilið Grund miðað við hjúkrunarþyngdarstuðulinn 0,89, sbr. viljayfirlýsingu heilbrigðisráðuneytisins og Securitas frá 14. janúar sl.?
Samkvæmt daggjaldataxta ársins 2000 fá hjúkrunarheimili með hjúkrunarþyngdarstuðul 0,89 8.580 kr. í daggjald. Ef hjúkrunarþyngd heimilanna eykst hækkar daggjaldataxtinn á næsta fjárlagaári. Í viljayfirlýsingu heilbrigðisráðuneytis og Securitas frá 14. janúar sl. er greiðsla vegna rekstrar 11.880 kr. á legudag miðað við RAI-stuðul 1,05–1,20. Sé RAI-stuðull lægri en 1,05 er verðbreytt til lækkunar miðað við grunntölu 1,05.
Hjúkrunarheimilið við Sóltún mun verða frábrugðið þeim heimilum sem nú eru rekin, m.a. hvað varðar umönnunarþyngd og inntöku vistmanna. Gert er ráð fyrir að meðalhjúkrunarþyngd heimilisins samkvæmt RAI verði yfir 1,05, sem er mun meiri hjúkrunarþyngd en á öðrum hjúkrunarheimilum. Hjúkrunarþyngd heimilisins er á milli hjúkrunarþyngdar á öldrunarlækningadeildum sjúkrahúsa og hjúkrunarþyngdar á hjúkrunarheimilum sem nú eru í rekstri. Af þeim sökum er áætlað í upphafi að á hjúkrunarheimilinu við Sóltún verði fleiri starfsmenn en á öðrum hjúkrunarheimilum og þar af leiðandi verði rekstrarkostnaðurinn hærri.
Til að tryggja að þar vistist aðeins einstaklingar með mikla umönnunarþörf verða inntökuskilyrði á Sóltúni mun strangari en á öðrum heimilum. Teknir verða inn vistmenn í samræmi við tillögur sérstaks samráðshóps sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skipar. Hópurinn verður skipaður þremur mönnum, einum tilnefndum af öldrunarþjónustu sjúkrahúsanna, einum af öldrunardeild félagsþjónustu Reykjavíkur og einum frá nýja hjúkrunarheimilinu. Þeir einir koma til álita sem eiga gilt vistunarmat og eru á vistunarskrá. Þeir njóta forgangs sem eru í mjög brýnni þörf fyrir hjúkrunarrými og bíða hjúkrunarheimilisvistar á sjúkrahúsum.
Rekstraraðilinn fær að velja úr sjö einstaklingum sem skulu hafa forgang að vistrými heimilisins þegar það losnar. Forgang skulu þeir hafa sem bíða á sjúkrahúsum.