Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1086, 125. löggjafarþing 241. mál: bann við uppsögnum vegna fjölskylduábyrgðar starfsmanna.
Lög nr. 27 9. maí 2000.

Lög um bann við uppsögnum vegna fjölskylduábyrgðar starfsmanna.


1. gr.

     Óheimilt er að segja manni upp störfum eingöngu vegna fjölskylduábyrgðar sem hann ber.
     Með fjölskylduábyrgð er átt við skyldur starfsmanns gagnvart börnum, maka eða nánum skyldmennum sem búa á heimili hans og greinilega þarfnast umönnunar hans eða forsjár, svo sem vegna veikinda eða fötlunar.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 27. apríl 2000.