Ferill 626. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1100  —  626. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um aflahlutdeildarkerfi við loðnuveiðar.

Frá Kristjáni Pálssyni.



     1.      Hvenær var aflahlutdeild, þ.e. úthlutun á leyfðum hámarksafla skips, tekin upp í loðnuveiðum við Ísland?
     2.      Hvaða reglur giltu við upphaflegu úthlutunina?
     3.      Hvaða breytingar hafa verið gerðar á úthlutunarreglum síðan?


Skriflegt svar óskast.