Ferill 601. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1101 — 601. mál.
Svar
umhverfisráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um erfðabreyttar afurðir.
1. Hver eru helstu stefnumið ríkisstjórnarinnar að því er varðar erfðabreyttar afurðir, þ.m.t. matvæli?
Ráðuneytið telur að neytendur skuli eiga rétt á upplýsingum um hvaða matvæli séu erfðabreytt eða innihaldi erfðabreyttar afurðir. Í ljósi þessa hafa verið samin drög að reglugerð um nýfæði sem eru til umsagnar hjá hlutaðeigandi stofnunum og samtökum. Er stefnt að því að reglugerðin taki gildi á árinu. Reglugerðin styðst við lög nr. 93/1995, um matvæli. Gert er ráð fyrir að erfðabreytt matvæli verði merkt og til erfðabreyttra matvæla teljast matvæli sem innihalda í mælanlegu magni DNA eða prótein tilkomið með erfðabreytingum. Þetta á þó ekki við ef efni úr erfðabreyttum lífverum mælast undir 1% og hafa sannanlega borist í lífverur á ræktunarstað vegna mengunar við flutning eða vinnslu.
2. Hvernig metur ráðuneytið reynsluna af lögum nr. 18/1996, um erfðabreyttar lífverur? Eru uppi áform um að fá fram breytingar á lögunum og ef svo er, um hvaða efnisþætti? Hverjir eiga sæti í ráðgjafanefnd, sbr. 6. gr. laganna?
Lög nr. 18/1996, um erfðabreyttar lífverur, eru rammalög þar sem umhverfisráðherra er falið að setja reglugerð um tiltekna þætti. Þróun í erfðatækni er hröð og sífellt koma fram nýjungar og ný viðhorf. Lögin gefa töluvert svigrúm til að mæta þessari þróun með útgáfu reglugerða. Nú stendur t.d. yfir endurskoðun á tilskipun Evrópusambandsins nr. 90/220 sem kalla mun á breytingar á reglugerð nr. 493/1997, sem sett var til að uppfylla ákvæði framangreindrar tilskipunar, en líklega þarf ekki að breyta lögum. Meðal væntanlegra breytinga er að leyfisveitingar til sleppinga/dreifingar og markaðssetningar á erfðabreyttum lífverum verða tímabundnar. Einnig er reiknað með að sett verði ákvæði um rekjanleika erfðrabreyttra lífvera og að þeir sem fá leyfi til að markaðssetja erfðabreyttar lífverur til ræktunar skuli fylgjast með og vakta áhrif þeirra á umhverfið.
Í ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur eiga sæti níu sérfræðingar, tveir skipaðir án tilnefningar, einn tilnefndur af rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfjafræði, einn af Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins, einn af Líffræðistofnun Háskóla Íslands, einn af Iðntæknistofnun Íslands, einn af Krabbameinsfélagi Íslands og einn af Náttúrufræðistofnun Íslands. Varamenn eru skipaðir eins.
3. Hefur reynt á ákvæði 19. gr. laga um erfðabreyttar lífverur sem gerir ráð fyrir að ráðherra geti „að fengnum tillögum Hollustuverndar ríkisins og umsögn ráðgjafanefndar, bannað eða takmarkað hér á landi markaðssetningu tiltekinna erfðabreyttra lífvera eða vöru sem inniheldur þær ef hætta er talin á að markaðssetningin hafi í för með sér skaðleg áhrif á heilsu manna eða umhverfi“?
Ekki hefur enn þá reynt á ákvæði 19. gr. laga nr. 18/1996, um erfðabreyttar lífverur. Hollustuvernd ríkisins og ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur hafa lagt til að Ísland hafni markaðssetningu á yrki af erfðabreyttri repju með þol gegn glufonísat ammonium. Ástæðan er sú að repjan getur vaxið á Íslandi og víxlast við skyldar nytjajurtir, svo sem fóðurrófur, fóðurnæpur og ýmsar káltegundir. Leyfi til markaðssetningar á þessu repjuyrki hefur enn ekki verið veitt hjá Evrópusambandinu.
4. Er munur á stöðu Íslands og Noregs innan EES-samningsins að því er varðar erfðabreyttar lífverur og afurðir þeirra og ef svo er, í hverju er hann fólginn? Hver er afstaða Íslands gagnvart þeim fimm erfðabreyttu afurðum sem Noregur hefur hafnað (miðað við haust 1999) en ESB leyft, sem og til GUR-tækninnar (genetic use restriction technologies)?
Nokkur munur er á afstöðu Íslands og Noregs til erfðabreyttra lífvera. Norsk yfirvöld hafa t.d. eindregið lagst gegn notkun merkigena, sem stýra myndun á þoli gegn sýklalyfjum sem notuð eru í lækningaskyni. Afstaða Íslands er sú að takmarka beri notkun slíkra merkigena og að áhættumat skuli fara fram í hverju tilviki. Ísland hefur því ekki lagst gegn markaðssetningu á þeim fimm erfðabreyttu lífverum sem Noregur hefur hafnað vegna umræddra merkigena. GUR-tæknin hefur einkum verið rædd í sambandi við líffræðilegan fjölbreytileika og hugsanleg áhrif á villtar lífverur og náttúruleg vistkerfi, en afstaða til tækninnar hefur ekki enn verið mótuð hér á landi.
5. Hvernig hyggst ráðherra tryggja að almenningur/neytendur fái hlutlausar og faglegar upplýsingar um erfðabreytt matvæli og þau áhrif sem erfðabreyttar lífverur geta haft á umhverfið?
Umhverfisráðuneytið stóð fyrir opnu málþingi um erfðabreytt matvæli fyrir skömmu. Þar kynntu fagmenn erfðatækni, möguleika á notkun hennar í matvælaframleiðslu og hugsanleg áhrif á umhverfið. Á heimasíðu Hollustuverndar ríkisins er að finna fræðsluefni um erfðabreytt matvæli og stofnunin hefur kynnt málið með erindum á ráðstefnum og fundum, á námskeiði í samvinnu við Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands og í fjölmiðlum. Einnig hefur stofnunin unnið drög að tveimur bæklingum um málið. Annar fjallar um erfðabreyttar lífverur en hinn um erfðabreytt matvæli. Stefnt er að því að gefa bæklingana út á þessu ári.
6. Hvenær er áformað að gefa út reglugerð um merkingar erfðabreyttra matvæla og hvernig má gera ráð fyrir að erfðabreytt matvæli verði merkt í verslunum?
Reglugerð um nýfæði, m.a. merkingar á erfðabreyttum matvælum, verður væntanlega gefin út síðar á þessu ári. Í fyrirliggjandi drögum er gert ráð fyrir að þeir sem sett hafa erfðabreytt matvæli á markað fái sex mánaða aðlögunartíma til að uppfylla ákvæði reglugerðarinnar. Neytendur geta því vænst þess að sjá merkt matvæli á fyrri hluta næsta árs.
7. Hvernig verður hagað auðkenningu eða merkingum dýrafóðurs, sáðvöru og annarra aðfanga framleiðenda landbúnaðarafurða þar sem erfðabreyttar lífverur og/eða afurðir þeirra eru notaðar við framleiðsluna?
Merkingar á sáðvöru skulu vera í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 493/1997, um sleppingu, dreifingu og markaðssetningu á erfðabreyttum lífverum. Erfðabreyttar sáðvörur á að merkja og þeim eiga að fylgja skjöl þar sem fram kemur að varan sé erfðabreytt.
8. Hyggst ráðherra beita sér fyrir sértækum aðgerðum til að tryggja stöðu lífrænnar ræktunar hér landi með tilliti til erfðabreyttra lífvera þar sem alþjóðlegt bann er í gildi við notkun þeirra við lífræna landbúnaðarframleiðslu?
Landbúnaðarráðuneytið fer með þessi mál í stjórnkerfinu.
9. Hyggst ráðherra beita sér fyrir sértækum aðgerðum til að koma í veg fyrir hugsanlega erfðamengun í íslensku lífríki af völdum erfðabreyttra lífvera, t.d. í plöntum og fiski?
Markmið laga nr. 18/1996 er að vernda íslenska náttúru og heilsu manna og dýra gegn skaðlegum og óæskilegum áhrifum erfðabreyttra lífvera. Í þessu skyni skal taka sérstakt tillit til legu landsins. Lögin og reglugerðir sem settar hafa verið á grunni þeirra eiga að tryggja að erfðabreyttar lífverur hafi ekki óæskileg áhrif á íslenskar plöntur og dýr. Til að ná markmiðum laganna þarf öflugt innflutningseftirlit, samvinnu við eftirlitsaðila í öðrum Evrópuríkjum og búnað til að mæla DNA og prótein í vöru sem grunur leikur á að sé erfðabreytt.
Auk þessara laga er tekið á hugsanlegri erfðamengun af völdum erfðabreyttra lífvera í villtri náttúru í samningnum um líffræðilega fjölbreytni. Nýverið var gengið frá bókun um lífvernd (Protocol on Biosafety) á grundvelli 15. gr. samningsins sem fjallar um notkun, flutning, dreifingu og aðgerðir til að draga úr hættu af völdum erfðabreytta lífvera, matvæla og fóðurs og verður bókunin lögð fram til undirritunar á aðildarríkjaþingi samningsins í Nairobi í Kenýa 24. maí nk.
Í ráðuneytinu er nú verið að fara yfir kosti, galla og þýðingu aðildar að bókuninni.