Ferill 596. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1119 — 596. mál.
Svar
samgönguráðherra við fyrirspurn Guðmundar Hallvarðssonar um smíði nýrrar Hríseyjarferju og útboð á ferjusiglingum.
Í svari þessu er stuðst að mestu við upplýsingar sem borist hafa frá Vegagerðinni og svo Siglingastofnun Íslands hvað varðar spurninguna um hafnarmál sérstaklega.
1. Hvenær var tekin ákvörðun um smíði nýrrar Hríseyjarferju?
2. Hverjar voru meginforsendur ákvörðunarinnar?
Árið 1997 fór Vegagerðin þess á leit við ráðgjafarstofuna Útrás ehf. á Akureyri að gera úttekt á Hríseyjarferjunni Sævari. Tilgangurinn var að kanna almennt ástand skipsins og meta hversu vel það væri í stakk búið að gegna hlutverki sínu. Niðurstöður ráðgjafarstofunnar voru að ýmislegt varðandi ferjuna sjálfa, aðbúnað og aðstöðu fyrir farþega og áhöfn fullnægði ekki kröfum sem gerðar væru til skipa í farþegaflutningum. Ferjan Sævar er 44 brúttótonna stál
Í framhaldi af framangreindri úttekt voru skoðaðir möguleikar sem fyrir hendi voru, þ.e. að gera endurbætur á Sævari, kaupa notað skip eða láta smíða nýtt. Fyrir lá að kostnaður við endurbætur og stækkun Sævars var verulegur, en nauðsynlegt þótti einnig að koma fleiri far
Samgönguráðherra lagði fyrir ríkisstjórn 7. nóvember 1997 tillögu um smíði nýrrar Hrís
3. Var hönnun og teikning skipsins boðin út? Ef ekki, hverjar voru ástæður þess?
Hönnun skipsins var ekki boðin út. Ráðgjafarstofan Útrás ehf. á Akureyri hafði unnið skýrslu um ástand núverandi ferju ásamt tillögum til úrbóta. Einnig hafði stofan gert frum
4. Hver var upphafleg áætlun um stærð skipsins, brúttótonn, farþegafjölda, lengd og djúpristu? Hver er stærð skipsins nú?
Upphafleg áætlun um stærð skipsins gerði ráð fyrir að það væri 22,50 m langt, 6,00 m á breidd og risti um 1,80 m. Skipið skyldi rúma 70–80 farþega í sæti en hafa heimild fyrir 100 manns yfir sumartímann. Eftir ýmsar athuganir meðan á hönnun skipsins stóð, m.a. á stöðug
5. Hver hefur meðalfjöldi farþega með ferjunni verið á dag síðustu tvö ár?
Heildarfarþegafjöldi árið 1998 var 46.700 farþegar, þ.e. að meðaltali um 128 á dag. Árið 1999 var heildarfarþegafjöldinn 48.490 farþegar, eða um 133 farþegar á dag að meðaltali.
6. Hvað tekur ferjan sem nú er notuð marga farþega? Er hún talin ónothæf?
Sjá svar við 1. og 2. lið.
7. Er gert ráð fyrir að nýja Hríseyjarferjan sigli einnig til Grímseyjar?
Grímseyjaferjan Sæfari annast þjónustu við Grímsey og er ekki gert ráð fyrir að Sævar annist siglingar á þeirri leið.
8. Hvers vegna var valinn vélbúnaður án stýris í skipið?
Í skipinu eru tvær skrúfur með föstum skurði og eru þær drifnar af aðalvélum í gegnum vinkildrif. Skrúfunum má jafnframt snúa um lóðréttan ás og koma þær þannig í stað stýris
9. Hver var áætlaður kostnaður við smíði skipsins og afhendingartími? Hver er kostnaðurinn nú orðinn og hvenær eru áætluð verklok?
Samkvæmt smíðasamningi frá 25. september 1998 var samið við Stálsmiðjuna hf. um 130.174.593 kr. Annar kostnaður, þ.e. undirbúnings-, hönnunar- og eftirlitskostnaður, var áætlaður um 15 millj. kr. Afhendingartími samkvæmt nefndum samningi átti að vera 15. júlí 1999. Smíðakostnaður, þ.e. greiðslur til Stálsmiðjunnar hf. (nú Stáltaks hf.), nemur nú 133.337.520 kr., en samkvæmt viðaukasamningi frá 1. febrúar 2000 verða heildargreiðslur til Stáltaks hf. 140.849.647 kr. Hefur þá verið tekið tillit til aukaverka og viðbótarkostnaðar vegna gallaðs skrúfubúnaðar, en til frádráttar komið 5.176.000 kr. vegna dráttar á afhendingu skipsins. Afhending þess skal samkvæmt viðaukasamningnum vera 15. júní 2000. Annar kostnaður, þ.e. undirbúnings-, hönnunar- og eftirlitskostnaður-, nemur nú 19.721.316 kr.
10. Hver er áætlaður afhendingartími skipsins og hvað hafa tafir orðið miklar frá upphaflegum áætlunum? Hverjar eru meginástæður þessara tafa?
Svo sem áður var getið gerði smíðasamningur ráð fyrir afhendingartíma 15. júlí 1999 en samkvæmt viðaukasamningi skal afhending fara fram 15. júní 2000. Skrúfubúnaður sem keyptur var frá Mekanord í Danmörku reyndist gallaður og var honum að lokum skilað eftir ítrekaðar tilraunir við að koma honum í lag. Var þá pantaður búnaður frá Schottel í Hollandi en afgreiðslutími á þeim búnaði er þrír mánuðir.
11. Hver er áætlaður rekstrarkostnaður nýju ferjunnar samanborið við eldri ferjur?
Rekstrarkostnaður nýju ferjunnar er áætlaður svipaður og nú, þ.e. 23–24 millj. kr. á ári miðað við verðlag 1999. Þó gætu hertar öryggiskröfur leitt til þess að fjölga þyrfti í áhöfn, úr tveimur í þrjá, a.m.k. á álagstímum, og mundi rekstrarkostnaður þá að sjálfsögðu aukast.
12. Hver var áætlaður kostnaður við hafnarmannvirki með tilkomu nýrrar ferju? Hver er kostnaðurinn nú?
Engar hafnarbætur hafa enn verið gerðar á Árskógssandi eða í Hrísey vegna tilkomu nýju ferjunnar. Hins vegar hefur hafnaraðstaða á Árskógssandi verið óviðunandi vegna ókyrrðar í höfninni og hafa farþegar stundum þurft að sæta lagi til að stökkva um borð vegna hreyf
13. Hvað líður útboðum á ferjusiglingum á öllum ferjuleiðum sem Vegagerð ríkisins hefur umsjón með?
Rekstur ferjuleiðarinnar Dalvík–Grímsey (Sæfari) var fyrst boðin út 1993 og aftur 1996. Gerður var samningur við Flutningamiðstöð Norðurlands sem gildir til 30. apríl 1999. Sá samningur hefur verið framlengdur um tvö ár, þ.e. til 30. apríl 2001, samkvæmt heimild í út
Ferjuleiðin Ísafjörður–Súðavík–Vigur–Æðey var boðin út í janúar sl. og þjónustusamning