Ferill 490. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1168  —  490. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á sóttvarnalögum, nr. 19/1997.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



     1.      Við 1. gr. Orðið „læknir“ í fyrri málslið efnismálsgreinar falli brott.
     2.      Við 2. gr. Á eftir orðinu „matvæli“ í 1. málsl. efnismálsgreinar komi: starfsemi.
     3.      Við 4. gr. Í stað orðanna „um að þeir hópar sem koma til landsins“ komi: um að þeir sem koma til landsins.
     4.      Á eftir 5. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
             Á eftir orðunum „opinberar sóttvarnaráðstafanir skv. 12. gr.“ í 1. málsl. 18. gr. laganna kemur: heimild til að kveða á um læknisrannsókn eftir tilmælum sóttvarnalæknis skv. 14. gr.