Ferill 606. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1174  —  606. mál.



Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Péturs Bjarnasonar um svæðisstöðvar Ríkisútvarpsins.

    Ráðuneytið leitaði til Ríkisútvarpsins um svör við fyrirspurninni. Svör þess fara hér á eftir.

     1.      Hvað hefur verið gert til eflingar dagskrárgerð á landsbyggðinni á því ári sem liðið er frá samþykkt þingsályktunar um stefnu í byggðamálum fyrir árin 1999–2001 í mars 1999 þar sem ríkisfjölmiðlum er ætlað að efla starfsemi á landsbyggðinni, m.a. með aukinni dagskrárgerð og útsendingum frá starfsstöðvum Ríkisútvarpsins þar? Hvað er fyrirhugað að gera á næstunni?
    Í árangursstjórnunarsamningi ráðuneytisins og Ríkisútvarpsins sem undirritaður var 30. desember sl. eru m.a. sett fram eftirfarandi markmið um árangur og mælikvarða fyrir starfsemi Ríkisútvarpsins á samningstímanum, þ.e. til ársloka 2002:
     „A)      Standa að öflugri fréttaþjónustu og fréttaöflun á Íslandi og erlendis.
         Árangurskrafa: Endurhaga og styrkja fréttaöflunarkerfi Ríkisútvarpsins frá því sem nú er.
         Mælikvarðar: Fyrir árslok 2000 skal þessari vinnu lokið.
     B)      Styrkja dreifikerfi.
         Árangurskrafa: Styrkja dreifikerfið og bæta móttökuskilyrði þannig að bilunum fækki og sendistyrkur og öryggi dreifingar verði meira á viðkvæmum svæðum. RÚV geri áætlun um nýtingu gervitungla til að flytja útvarps- og sjónvarpsefni.
         Mælikvarðar: Á árinu 2000 er gert ráð fyrir skráningu kvartana og fjölda útfalla. Á samningstímanum er gert ráð fyrir að fækka slíkum tilfellum um 10% miðað við árið 2000.
     C)      Efla fjölþætta íslenska dagskrárgerð í byggðum landsins í samræmi við byggðaáætlun.
         Árangurskrafa: Auka efni frá landsbyggðinni.
         Mælikvarðar: Gert er ráð fyrir að efni frá landsbyggðinni aukist um 5% á samningstímanum.“
    Unnið er samkvæmt þessum samningi og er ástæðulaust að ætla annað en að framangreindum markmiðum verði náð.
    Hinn 1. júlí 1999 hófust svæðisbundnar útsendingar á Suðurlandi sem Útvarp Suðurland á Selfossi annast fyrir Ríkisútvarpið samkvæmt þjónustusamningi. Þá var einnig á síðasta ári hafið samstarf við héraðsblaðið Skessuhorn í Borgarnesi um fréttir og pistla af Vesturlandi sem fluttir eru í fréttum og fréttatengdum þáttum útvarpsins.
    Hjá Ríkisútvarpinu er nú unnið að endurskipulagningu á starfsemi fréttastofa þess, auknu samstarfi og samhæfingu sem m.a. tekur til eflingar á fréttaritarakerfi úti um land og fréttastarfsemi landshlutastöðvanna í þágu sjónvarps og útvarps Ríkisútvarpsins í heild.
    Að því er sjónvarpið varðar sérstaklega er gert ráð fyrir auknum dagskrárumsvifum þess á landsbyggðinni við undirbúning næstu vetrardagskrár. Í því sambandi verða möguleikar til samstarfs við fyrirtæki á þessu sviði í viðkomandi byggðarlögum kannaðir gaumgæfilega.
     2.      Á að veita meira fé til svæðisstöðva Ríkisútvarpsins, sem eru farnar að þjóna bæði útvarpi og sjónvarpi, til að unnt sé að bæta tækjakost og mannafla? Ef svo er, hve mikið?
    Ríkisútvarpið hefur sjálft rekið þrjár landshlutastöðvar í meira en áratug. Allar landshlutaútsendingar fara fram á dreifikerfi Rásar 2 þannig að aðaldagskrá hennar er rofin tímabundið og svæðisbundið efni sent út í staðinn. Rekstrarkostnaður þessara þriggja stöðva var samtals um 70 millj. kr. á síðasta ári.
    Á Akureyri eru tíu stöðugildi fyrir útvarp og sjónvarp. Starfsemin fer fram í eigin húsnæði Ríkisútvarpsins á staðnum. Starfsmenn Ríkisútvarpsins á Akureyri sjá um útsendingar kvölds og morgna virka daga í svæðisútvarpi, annast fréttaöflun og fréttaflutning fyrir fréttastofur útvarpsins og sjónvarpsins, og vinna ýmsa dagskrárþætti til flutnings á báðum rásum útvarpsins. Starf í þágu sjónvarpsins felst fyrst og fremst í fréttaöflun en einnig gerð stakra dagskrárþátta. Sérgreindur rekstrarkostnaður við starfsemina nyrðra nam 39,8 millj. kr. árið 1999.
    Á Egilsstöðum eru 2,5 stöðugildi. Rekstrarkostnaður árið 1999 var 15,9 millj. kr. Starfsemin felst í svæðisútvarpssendingum þrisvar í viku, fréttaöflun fyrir útvarp og sjónvarp og þáttagerð fyrir báðar rásir útvarpsins. Fréttaöflun fyrir Sjónvarpið hefur verið mjög vaxandi þáttur í störfum svæðisstöðvarinnar á Austurlandi undanfarin missiri.
    Hjá svæðisútvarpi Ríkisútvarpsins á Ísafirði eru þrjú stöðugildi. Starfsemin er í leiguhúsnæði. Þar er útsending í svæðisútvarpi Vestfjarða þrisvar í viku en auk þess er þar fréttaþjónusta fyrir útvarpið og efni unnið í þætti beggja rása útvarpsins. Rekstrarkostnaður svæðisútvarpsins á Vestfjörðum nam 14,2 millj. kr. árið 1999. Stefnt er að því að svæðisútvarpið á Vestfjörðum annist öflun sjónvarpsfrétta fyrir Ríkisútvarpið í auknum mæli.
    Rekstur landshlutastöðvanna verður endurmetinn með tilliti til nýrra verkþátta, hugsanlegrar og eðlilegrar forgangsröðunar verkefna. Vert er að taka tillit til sjónarmiða sem æ oftar heyrast þess efnis að starfsemi landshlutastöðvanna eigi fyrst og fremst að miðast við fréttir og dagskrárefni sem flutt sé í aðaldagskrám Ríkisútvarpsins á landsvísu. Innri skipting rekstrarfjár milli deilda mun taka mið af forgangsverkefnum og almennum skilyrðum Ríkisútvarpsins á hverjum tíma.

     3.      Verður veitt fé til að bæta aðstöðu svæðisútvarpsins á Ísafirði sem Vinnueftirlitið hefur nýlega úrskurðað óviðunandi? Ef svo er, hve mikið?
    Starfsemi Ríkisútvarpsins á Ísafirði hefur verið í sama leiguhúsnæði síðan hún hófst árið 1989. Starfsmannafjöldi og umsvif starfseminnar hafa lítið breyst þann tíma. Vinnueftirlit ríkisins endurmat kröfur um aðbúnað í húsnæðinu í lok janúar sl., en þær fela í sér allumfangsmiklar breytingar. Um þær hefur verið rætt við eiganda húsnæðisins og jafnframt verða kannaðir möguleikar á öðrum úrræðum í húsnæðismálum stöðvarinnar.

     4.      Er ætlunin að útsendingar svæðisútvarps Vestfjarða nái á næstunni einnig til Strandasýslu, Barðastrandar og Reykhóla?
    Á næstunni mun endurvarpi dreifikerfis Rásar 2 fyrir Hólmavík tengjast svæðisútvarpi Vestfjarða þannig að íbúar við Steingrímsfjörð nái útsendingum þess. Barðaströnd og Reykhólum er þjónað af aðalsendi í Stykkishólmi og Strandasýslu aðallega frá aðalsendi á Hnjúkum við Blönduós. Tenging svæðisútvarpsins inn á hina staðbundnu senda fyrir Barðaströnd og bæi í Strandasýslu er því allflókið og kostnaðarsamt útfærsluatriði miðað við lítinn notendahóp. Aðrar brýnni aðgerðir í dreifikerfismálum Ríkisútvarpsins hafa verið látnar ganga fyrir, þ.e. bætt sjónvarps- og útvarpsskilyrði í byggðakjörnum á Vestfjörðum með ljósleiðaravæðingu og nýjum sendum. Þær sértæku aðgerðir kosta 20,7 millj. kr. á árununum 1999 og 2000.