Ferill 442. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1175 — 442. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Ástu Möller um sölu og eftirlit með skoteldum.
1. Hvernig er eftirliti með sölu, gæðum, öryggi og meðferð skotelda háttað hér á landi? Hvernig fer prófun skotelda fram?
Lögreglustjórar, hver í sínu umdæmi, hafa eftirlit með sölu skotelda og í fjölmennustu umdæmunum hafa nokkrir lögreglumenn ekki annan starfa á leyfðu sölutímabili en að líta til með skoteldasölu. Eftirlit með gæðum og öryggi er fyrst og fremst fólgið í gerðarviðurkenningu lögreglustjórans í Reykjavík sem er byggð á reynslu undanfarandi ára, lýsingu framleiðanda á vörunni og prófunum á nýjum tegundum.
Þegar lögreglan prófar skotelda er í flestum tilvikum fengin aðstoð frá sprengideild Landhelgisgæslunnar. Einnig hafa lögreglumenn verið viðstaddir prófanir með kunnáttumönnum innflutningsaðila. Slíkar prófanir hafa oft reynst vel með tilliti til slysavarna, enda koma nýjar tegundir skotelda fram á hverju ári.
2. Hvernig er eftirliti með merkingum og leiðbeiningum á skoteldum háttað?
Samkvæmt 4. gr. reglugerðar um sölu og meðferð skotelda, nr. 536 19. desember 1988, er innflytjanda skylt að sjá um að allar tegundir skotelda sem hann flytur til landsins og selur séu með álímdum eða áprentuðum leiðbeiningum á íslensku. Þar á að vera stutt lýsing á eiginleikum skoteldanna og hvernig beri að nota þá svo að sem minnst hætta stafi af. Eftir þessu er litið við prófanir og skyndiskoðanir í vörugámum, á pökkunarstöðum og sölustöðum.
3. Hvaða reglur gilda um efnisinnihald, púðurmagn, samsetningu, stærð, þyngd og hávaðamörk skotelda sem hafa má í sölu til almennings eða til notkunar við sýningar hér á landi? Hvaða kröfur aðrar þurfa skoteldar að uppfylla til að leyfi fáist til að selja þá?
Engar skýrar reglur eru til um efnisinnihald, púðurmagn, samsetningu, stærð, þyngd og hávaðamörk aðrar en þær sem skapast hafa við reynslu undangengin ár. Um þessi atriði verða væntanlega skýrari reglur í nýrri reglugerð.
Við mat á því hvort tiltekin tegund skotelda skuli leyfð er litið til þess hver framleiðandinn er, hvort varan hefur fengið einhvers konar gæðavottun og eftir atvikum er varan prófuð. Sérstakar upplýsingar liggja fyrir um óvandaða og hættulega skotelda sem ekki er leyft að flytja inn.
4. Hverjir höfðu leyfi til að selja skotelda í smásölu hér á landi fyrir síðustu áramót, skipt eftir verslunum, félagasamtökum, einstaklingum og öðrum?
Lögreglustjórar, hver í sínu umdæmi, veita leyfi til smásölu skotelda og hafa um það gott samstarf við eldvarnaeftirlit og slökkviliðsstjóra. Þeir sem fá leyfi til smásölu mega ekki selja vörur frá öðrum en þeim sem hafa starfsleyfi ríkislögreglustjóra til að framleiða eða flytja inn skotelda til heildsölu. Eftirtaldir aðilar fengu smásöluleyfi fyrir síðustu áramót:
| Umdæmi | Leyfishafi | Sölustaðir |
| Reykjavík | Björgunarsveitin Albert | 1 |
| Björgunarsveitin Ingólfur | 7 | |
| Björgunarsveitin Kjölur | 1 | |
| Björgunarsveitin Kyndill | 5 | |
| Flugbjörgunarsveitin | 4 | |
| Handknattleiksdeild Fram | 1 | |
| Handknattleiksdeild Vals | 1 | |
| Hjálparsveit skáta | 8 | |
| KFUM og KFUK | 1 | |
| Kiwanisklúbburinn Esja | 1 | |
| Kiwanisklúbburinn Höfði | 1 | |
| Kiwanisklúbburinn Nes | 2 | |
| Knattspyrnudeild Fjölnis | 2 | |
| Knattspyrnudeild Fylkis | 1 | |
| Knattspyrnudeild ÍR | 1 | |
| Knattspyrnudeild Leiknis | 1 | |
| Knattspyrnudeild Víkings | 1 | |
| Knattspyrnufélagið Þróttur | 1 | |
| Austurröst ehf.* | 1 | |
| Ellingsen ehf.* | 1 | |
| Heildsölugallerí ehf.* | 1 | |
| KR-flugeldar ehf.* | 3 | |
| Netbúðir ehf.* | 1 | |
| Pústverkstæðið ehf.* | 1 | |
| Akranes | Kiwanisklúbburinn Þyrill | |
| Hjálparsveit skáta Akranesi | ||
| Verzlun Axels Sveinbjörnssonar* | ||
| Borgarnes | Björgunarsveitin Brák | |
| Björgunarsveitin Ok | ||
| Björgunarsveitin Heiðar | ||
| Stykkishólmur | Björgunarsveitin Berserkir | Stykkishólmi |
| Björgunarsveitin Björg | Hellissandi | |
| Lionsklúbbur Ólafsvíkur | ||
| Björgunarsveitin Sæbjörg | Snæfellsnesi | |
| Björgunarsveitin Klakkur | Grundarfirði | |
| Búðardalur | Björgunarsveitin Ósk | |
| Patreksfjörður | Björgunarsveitin Blakkur | Patreksfirði |
| Björgunarsveitin Kópur | Bíldudal | |
| Björgunarsveitin Tálkni | Tálknafirði | |
| Björgunarsveit Reykhólahrepps | Reykhólum | |
| Bolungarvík | Lionsklúbbur Bolungarvíkur | |
| Ísafjörður | Upplýsingar vantar | |
| Hólmavík | Björgunarsveitin Dagrenning | Hólmavík |
| Björgunarsveitin Björg | Drangsnesi | |
| Björgunarsveitin Káraberg | Bæjarhreppi | |
| Blönduós | Hjálparsveit skáta Blönduósi | |
| Ungmennafélagið Hvöt | ||
| Slysavarnadeildin á Hvammstanga | ||
| Sauðárkrókur | Björgunarsveitin Skagfirðingasveit | |
| Flugbjörgunarsveitin Varmahlíð | ||
| Björgunarsveitin Grettir | ||
| Siglufjörður | Kiwanisklúbburinn Skjöldur | |
| Björgunarsveitin Strákar | ||
| Akureyri | Björgunarsveitin Týr | Svalbarðsströnd |
| D.P. heildverslun ehf.* | Akureyri | |
| Björgunarsveitin Ægir | Grenivík | |
| Björgunarsveitin Súlan | Akureyri | |
| Íþróttafélagið Þór | Akureyri | |
| Björgunarsveitin Jörundur | Hrísey | |
| Björgunarsveit Árskógsstrandar | ||
| Hjálparsveitin Dalbjörg | Eyjafjarðarsveit | |
| Björgunarsveitin Dalvík, Ungmennafélag Svarfdæla og Kiwanisklúbburinn Hrólfur |
||
| Húsavík | Björgunarsveitin Stefán | |
| Björgunarsveitin Þingey | ||
| Hjálparsveit skáta Aðaldal | ||
| Lionsklúbburinn Fontur | Þórshöfn | |
| Kiwanisklúbburinn Skjálfandi | ||
| Björgunarsveitin Pólstjarnan | ||
| Seyðisfjörður | Björgunarsveitin Hérað | |
| Björgunarsveitin Ísólfur | ||
| Eskifjörður | Björgunarsveitin Gerpir | Neskaupstað |
| Ungmennafélagið Austri, knattspyrnudeild | Eskifirði | |
| Björgunarsveitin Brimrún | Eskifirði | |
| Björgunarsveitin Ársól | Reyðarfirði | |
| Björgunarsveitin Geisli | Fáskrúðsfirði | |
| Björgunarsveitin Björgólfur | Stöðvarfirði | |
| Björgunarsveitin Eining | Breiðdalsvík | |
| Slysavarnadeildin Bára | Djúpavogi | |
| Höfn | Björgunarfélag Hornafjarðar | |
| Vík | Björgunarsveitin Víkverji | Vík |
| Björgunarsveitin Kyndill | Kirkjubæjarklaustri | |
| Hvolsvöllur | Björgunarsveitin Bróðurhöndin | Vestur-Eyjafjallahreppi |
| Björgunarsveitin Dagrenning | Hvolsvelli | |
| Björgunarsveitin Austur-Landeyjum | ||
| Flugbjörgunarsveitin Hellu | ||
| Vestmannaeyjar | Björgunarfélag Vestmannaeyja | |
| Verslunin Eyjabúð | ||
| Selfoss | Björgunarsveitin Ingunn | Laugarvatni |
| Íþróttadeild Ungmennafélags Biskupstungna | ||
| Hjálparsveitin Snækollur | Flúðum | |
| Slysavarnadeild Gnúpverja | ||
| Kiwanisklúbburinn Ölver | Þorlákshöfn | |
| Björgunarsveit SVFÍ | Eyrarbakka | |
| Hjálparsveitin Tintron | Grímsnesi | |
| Knattspyrnudeild Ungmennafélags Selfoss | ||
| Björgunarfélagið Árborg | Selfossi | |
| Hjálparsveit skáta Hveragerði | ||
| Keflavík | Björgunarsveitin Suðurnes | |
| Björgunarsveitin Sigurvon | ||
| Björgunarsveitin Eldey | ||
| Björgunarsveitin Skyggnir | ||
| Knattspyrnudeild Keflavíkur | ||
| Kiwanisklúbburinn Hof | Garði | |
| Björgunarsveitin Þorbjörn | Grindavík | |
| Hafnarfjörður | Björgunarsveitin Fiskaklettur | |
| Hjálparsveit skáta Hafnarfirði | ||
| Hjálparsveit skáta Garðabæ | ||
| Handknattleiksdeild FH | ||
| Kópavogur | Netbúðir ehf.* | |
| Lionsklúbburinn Fjölnir | ||
| Handboltafélag Kópavogs (HK) | ||
| Hjálparsveit skáta Kópavogi | ||
| G. Haraldsson ehf.* | ||
| Trúfélagið Krossinn | ||
| Austurröst ehf.* | ||
| * Fyrirtæki. |
5. Hvaða kröfur eru gerðar til söluaðila um merkingar, leiðbeiningar og annan öryggisbúnað vegna skotelda?
Um öryggiskröfur við flutning skotelda, við birgðastöðvar og sölustaði hafa lögreglu- og slökkviliðsstjórar, eldvarna- og vinnueftirlit, auk leyfishafa, komið sér saman um tilteknar reglur um eldvarnir, öryggisþætti og merkingar á skoteldum. Í reglunum er þess m.a. krafist, að öryggis sé gætt við geymslu, sölu og aðra notkun skotelda, ekki hvað síst við afhendingu á sölustöðum.
Við smíði nýrrar reglugerðar um sölu og meðferð skotelda hefur verið litið til þeirra reglna sem mótast hafa í framkvæmd. Vinna við samningu reglugerðarinnar er nú á lokastigi og mun hún verða birt innan skamms.
Ef óskað er frekari upplýsinga um stöðu mála hjá tilteknum sýslumannsembættum getur ráðuneytið látið þær í té.