Ferill 441. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1176 — 441. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Ástu Möller um skotelda.
1. Hve mikið magn af skoteldum hefur verið framleitt á Íslandi eða flutt til landsins síðustu fimm ár, skipt eftir tegundum (ef unnt er) og árum?
Framleiðsla.
Framleiðsla á skoteldum á Íslandi síðustu fimm ár hefur verið sem hér segir:
| Blys, stk. | Gos, stk. | Flugeldar, stk. | Samtals | |
|
1995
|
77.672 | 720 | 300 | 78.692 |
|
1996
|
76.020 | 800 | 800 | 77.620 |
|
1997
|
90.930 | 960 | 530 | 92.420 |
|
1998
|
90.670 | 1.120 | 250 | 92.040 |
|
1999
|
123.605 | 0 | 0 | 123.605 |
Innflutningur.
Frá og með árinu 1995 til og með 1999 hafa verið flutt til landsins samtals 1.376.216 kg af skoteldum. Þar af eru flugeldar 1.159.018 kg, neyðarmerki viðurkennd af Siglingastofnun Íslands 27.400 kg, merkjablys, regnrakettur, þokublys og aðrar flugeldavörur samtals 189.798 kg.
Heildarmagn innflutnings eftir árum:
| Innflutningur, kg | Cif-verð, kr. | |
|
1995
|
146.904 | 66.015.492 |
|
1996
|
183.008 | 72.674.020 |
|
1997
|
215.812 | 85.208.257 |
|
1998
|
278.323 | 99.645.433 |
|
1999
|
552.169 | 158.827.003 |
2. Hver eru framleiðslulönd innfluttra skotelda og hve mikið magn var flutt inn frá hverju landi á síðasta ári? Hvernig er eftirliti með hugsanlegum ólöglegum innflutningi á skoteldum háttað?
Árið 1999 voru fluttir inn skoteldar eins og sést í töflunni hér á eftir:
| Land | kg | Land | kg |
|
Bandaríkin
|
4.645 |
Japan
|
170 |
|
Bretland
|
4.679 |
Kína
|
288.755 |
|
Danmörk
|
2.808 |
Noregur
|
1.000 |
|
Holland
|
740 |
Spánn
|
3.675 |
|
Hong Kong
|
202.168 |
Sviss
|
748 |
|
Indland
|
298 |
Tékkland
|
12.172 |
|
Ítalía
|
513 |
Þýskaland
|
25.635 |
Þegar leitað er eftir áritun vörureikninga er gengið úr skugga um að starfsleyfi frá ríkislögreglustjóra liggi fyrir. Slík leyfi eru gefin fyrirtækjum og félagasamtökum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, m.a. eftir að úttekt hefur farið fram á birgðastöð og ábyrgðarmaður verið tilgreindur.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, sem annast gerðarviðurkenningu á innfluttum skoteldum, heldur árlega fund með innflutningsaðilum þar sem farið er yfir hvaða skotelda skuli leyfa og er þá tekið mið af reynslu fyrri ára. Ef fyrirhugað er að flytja inn nýjar tegundir eru þær prófaðar áður en innflutningur er leyfður. Teknar eru prufur úr vörugámum og kannað hvort vörurnar eru í samræmi við vörureikninga. Þá hafa lögreglumenn farið á milli sölustaða og kannað hvað er á boðstólum. Gott samstarf hefur verið með lögreglu og tollgæslu og til stendur að fá menn frá tollgæslunni til að sitja hina árlegu fundi. Einnig hefur mjög góð samvinna verið með lögreglunni í Reykjavík og lögregluliðum á Akranesi, í Kópavogi, Keflavík og Hafnarfirði og slökkviliðum (eldvarnaeftirliti) á sömu stöðum.
3. Eru til reglur um flokkun skotelda? Ef svo er, í hverju eru þær fólgnar?
Ekki eru til nákvæmar reglur um flokkun skotelda, aðrar en þær sem lögreglustjórinn í Reykjavík hefur ákveðið í samráði við innflytjendur og fleiri aðila. Í drögum að nýrri reglugerð um skotelda, sem er langt komin í vinnslu, er hins vegar gert ráð fyrir viðauka þar sem skoteldar eru flokkaðir.
Til þessa hafa mótast vinnureglur þar sem skoteldum hefur verið skipt í flokka, þ.e. tegundir sem bannað er að framleiða, flytja inn og selja, skotelda sem eingöngu eru ætlaðir til nota í neyð, skotelda sem aðeins eru leyfðir fyrir kunnáttumenn til nota við skoteldasýningar og skotelda til að selja almenningi. Í drögum að nýrri reglugerð er að finna mun ítarlegri flokkun og er þar nákvæmlega tilgreint hvaða tegundir má selja og til hvaða nota.
4. Er sala einhverra tegunda eða flokka skotelda til almennings háð takmörkunum? Hvaða tegundir skotelda eru bannaðar á Íslandi?
Takmarkanir eru á sölu skotelda samkvæmt vopnalögum til barna undir 16 ára aldri og öll sala á skoteldum til barna undir 12 ára aldri er bönnuð.
Í 5. gr. reglugerðar um sölu og meðferð skotelda, nr. 536/1988, er að finna upptalningu á skoteldum sem er bannað að flytja inn, svo sem ,,kínverja“, sprengikúlur og reyk- og lyktarsprengjur, svo og upptalningu á skoteldum sem aðeins er leyft að nota við skoteldasýningar, en í samráði við innflytjendur og fleiri hefur verið farið eftir reglum sem lögreglustjórinn í Reykjavík hefur markað.
5. Hvernig er fræðslu til almennings um mögulega hættu af völdum skotelda háttað?
Ekki er hægt að segja að til sé markviss fræðsla um hættu af völdum skotelda. Þess skal þó getið að innflytjendur, læknar í slysamóttöku, lögregla, fjölmiðlafólk og slysavarnasamtök hafa lagt sitt af mörkum til að koma varnaðarorðum til almennings um hættu af skoteldum. Um síðustu áramót stóð dómsmálaráðuneytið, í samstarfi við Árvekni (átaksverkefni um slysavarnir barna og unglinga), Löggildingarstofu og Samband íslenskra tryggingafélaga fyrir fræðslu um meðhöndlun skotelda. Gefinn var út bæklingur í því skyni að minna landsmenn á þá hættu sem stafað getur af rangri og óvarlegri notkun skotelda.
Til greina kemur að mæla sérstaklega fyrir um skyldur innflutnings- og söluaðila til að annast upplýsingamiðlun til notenda skotelda og auka þar með ábyrgð þeirra frá því sem verið hefur.
6. Er fyrirhugað að hækka aldursmörk barna sem leyft er að kaupa skotelda?
Til að hækka aldursmörk þeirra sem mega kaupa skotelda þarf að breyta núgildandi vopnalögum, en tillögur um slíka lagabreytingu hafa ekki komið fram.
Annað.
Eins og fram kemur hér að framan hefur í framkvæmd verið farið eftir ýmsum reglum sem mótast hafa á undanförnum árum og samkomulag hefur orðið um hjá lögreglu og umsagnar- og hagsmunaaðilum. Allar miða þær að auknu öryggi í meðferð skotelda og í drögum að nýrri reglugerð um skotelda er leitast við að samræma og endurbæta þessar reglur. Við reglugerðarsmíðina hefur verið tekið mið af alþjóðlegum reglum og þeirri hefð sem hefur skapast hér á landi í meðferð skotelda. Drög að reglugerðinni hafa verið send fjölmörgum umsagnaraðilum sem hafa komið með margar góðar ábendingar sem flestar stuðla að auknu öryggi.
Ef óskað er frekari upplýsinga um stöðu mála hjá tilteknum sýslumannsembættum getur ráðuneytið látið þær í té.