Ferill 594. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1177 — 594. mál.
Svar
samgönguráðherra við fyrirspurn Katrínar Fjeldsted um símnotkun og símkostnað landsmanna.
1. Hvernig hefur símkostnaður breyst hjá fyrirtækjum annars vegar og einstaklingum hins vegar síðustu tíu ár?
Ráðuneytið leitaði til Þjóðhagsstofnunar, Seðlabanka Íslands, Hagstofu Íslands, Póst- og fjarskiptastofnunar og Landssíma Íslands hf. til að fá svar við fyrirspurninni. Fram kom að upplýsingar skorti og umfangsmikið starf þyrfti að fara fram til að afla gagna og vinna úr þeim viðhlítandi upplýsingar. Nauðsynleg gögn svo unnt væri að greina breytingar á símkostnaði hjá fyrirtækjum annars vegar og einstaklingum hins vegar síðastliðin tíu ár voru því ekki fáanleg.
2. Hvaða breytingar hafa orðið hjá Reykvíkingum á notkun síma og kostnaði við hana síðustu tíu ár, sundurliðað eftir langlínusímtölum annars vegar og innanbæjarsímtölum hins vegar?
Sömu svör voru gefin við þessum lið. Hvorki eru til upplýsingar um notkun síma eftir kjördæmum né um skiptingu símkostnaðar eftir langlínusímtölum og innanbæjarsímtölum. Eftir gildistöku laga nr. 143/1996, um fjarskipti, hefur landið verið eitt gjaldsvæði á sviði talsímaþjónustu. Notkun á grundvelli mismunandi kostnaðar innanbæjarsímtala og langlínusamtala hefur því ekki verið mæld.
3. Hvernig hefur símkostnaður Reykvíkinga þróast á þessu tímabili miðað við vísitölu framfærslukostnaðar?
Upplýsingar um símkostnað íbúa einstakra sveitarfélaga virðast ekki vera til. Það er því ekki hægt að svara þessari spurningu á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Hins vegar eru til upplýsingar um hluta símaþjónustu í heildarútgjöldum landsmanna í vísitölu neysluverðs en framfærsluvísitölu var breytt í vísitölu neysluverðs. Af gögnum sem bárust frá Hagstofu Íslands um símútgjöld sem hlutfall af vísitölu neysluverðs er ljóst að hlutur símaþjónustu í heildarútgjöldum hefur farið vaxandi á undanförnum tveimur árum, sbr. meðfylgjandi súlurit. Líklegar ástæður þessa eru aukin notkun farsíma og aukin notkun á internetinu.
Einnig bárust upplýsingar frá Þjóðhagsstofnun um yfirlit símkostnaðar í einkaneyslu 1990 –99. Þessar upplýsingar gefa talsvert aðra mynd en upplýsingar Hagstofu Íslands um umfang símkostnaðar sem hlutfall einkaneyslu hér á landi. Tölurnar frá Þjóðhagsstofnun sýna að breyting hlutfalls símkostnaðar í einkaneyslu hefur verið mjög hagstæð neytendum undanfarin tíu ár eins og meðfylgjandi súlurit sýnir.
Prentað upp.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.