Ferill 322. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1194 — 322. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á vegalögum, nr. 45/1994, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 8. maí.)
1. gr.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
Í stað orðsins „gangstíga“ í 20. gr. laganna kemur: hjólreiða- og göngustíga.5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 39. gr. laganna:a. 1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Landeigandi skal annast viðhald girðinga með vegum í landi sínu, sbr. þó 4. mgr.
b. Við greinina bætist ný málsgrein sem verður 4. mgr. og orðast svo:
Vegagerðin getur að höfðu samráði við viðkomandi sveitarfélag ákveðið að annast og kosta viðhald girðinga með einstökum vegarköflum á þjóðvegum þar sem umferð er 300 bílar á dag eða meira að meðaltali yfir sumarmánuði (SDU), enda sé lausaganga búfjár á viðkomandi vegarkafla bönnuð. Áður en Vegagerðin ákveður að taka við viðhaldi girðinga samkvæmt þessari grein skal hún tilkynna það viðkomandi sveitarfélagi og hlutaðeigandi landeigendum.
c. 4. mgr. verður 5. mgr. og orðast svo:
Viðkomandi sveitarfélag annast viðhald girðinga sem reistar eru skv. 2. mgr. 37. gr. Þó er heimilt að semja um að veghaldari annist viðhaldið. Viðhaldskostnaður þeirra girðinga greiðist að jöfnu af viðkomandi sveitarfélagi og veghaldara nema sérstaklega sé um annað samið.
6. gr.