Ferill 523. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1198 — 523. mál.
Frumvarp til laga
um orkunýtnikröfur.
(Eftir 2. umr., 8. maí.)
1. gr.
2. gr.
Lögin taka ekki til farartækja eða notaðrar vöru.
3. gr.
Eingöngu er heimilt að setja á markað vöru sem uppfyllir reglur um orkunýtni, sbr. 1. mgr. Óheimilt er að banna markaðssetningu vöru sem uppfyllir kröfur um orkunýtni og hefur CE- samræmismerki, enda uppfylli hún skilyrði annarra laga.
Ráðherra er heimilt að mæla fyrir um í reglugerð að innflutningur eða framleiðsla vöru til eigin nota skuli lúta sams konar reglum og mælt er fyrir um í 1. mgr.
4. gr.
5. gr.
Óheimilt er að hefja sölu eða leigu á vöru þar til nauðsynlegar mælingar og prófanir hafa farið fram. Birgðasali ber allan kostnað við framangreindar mælingar og prófanir.
Iðnaðarráðherra er heimilt að setja nánari fyrirmæli um hvaða aðferðir og staðla skal nota við mælingar og prófanir skv. 1. mgr.
6. gr.
Við framkvæmd eftirlits með lögum þessum skal farið að lögum um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, nr. 134/1995, eftir því sem við á.
Birgðasalar og seljendur skulu miðla til eftirlitsaðila þeim upplýsingum skv. 5. gr. sem nauðsynlegar eru til framkvæmdar lögum þessum.
7. gr.
8. gr.