Ferill 502. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1201 — 502. mál.
Breytingartillögur
við frv. til l. um stofnun hlutafélags um Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Frá meiri hluta utanríkismálanefndar (TIO, JónK, ÁRÁ, KPál, JBjart).
1. Við 11. gr. Í stað orðanna „Við niðurlagningu stofnunarinnar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar“ komi: Þegar stofnunin Flugstöð Leifs Eiríkssonar verður lögð niður.
2. Við 14. gr.
a. Í stað orðanna „Er félaginu skylt að fara að fyrirmælum stjórnvalda“ í 2. málsl. komi: Er félaginu skylt að sæta eftirliti og fara að fyrirmælum stjórnvalda.
b. Í stað orðanna „Utanríkisráðherra er heimilt að“ í 3. málsl. komi: Utanríkisráðherra skal.