Ferill 243. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1283 — 243. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. nr. 88 27. maí 1997, um fjárreiður ríkisins.
Frá efnahags- og viðskiptanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið sendar umsagnir frá Verslunarráði Íslands, fjármálaráðuneyti, Ríkisbókhaldi, Alþýðusambandi Íslands og Ríkisendurskoðun.
Í frumvarpinu er lagt til að sett verði í lög um fjárreiður ríkisins ákvæði um að ársreikningi ríkisaðila skuli fylgja sundurliðað yfirlit um launagreiðslur, bifreiða-, ferða- og risnukostnað. Þá er þar tillaga um nánari sundurliðun þessara þátta.
Nefndin vekur athygli á að í lögum um fjárreiður ríkisins er heimild til ráðherra til að kveða nánar á um framkvæmd laganna í reglugerð. Frá því að lögin tóku gildi hafa hins vegar ekki verið settar reglugerðir á grundvelli þeirra.
Nefndin beinir þeim tilmælum til fjármálaráðherra að hann hlutist til um að unnið verði að samningu reglugerðar á grundvelli laganna þar sem kveðið verði á um þau meginefnisatriði sem fram koma í frumvarpinu eftir því sem ástæða þykir til. Verði niðurstaða þeirrar vinnu kynnt efnahags- og viðskiptanefnd sem fyrst, eigi síðar en fyrir komandi haustþing.
Í trausti þess að svo verði gert leggur nefndin til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Alþingi, 9. maí 2000.
Vilhjálmur Egilsson,
form., frsm.
Kristinn H. Gunnarsson.
Hjálmar Árnason.
Sigríður A. Þórðardóttir.
Pétur H. Blöndal.
Gunnar Birgisson.
Jóhanna Sigurðardóttir.
Margrét Frímannsdóttir.
Ögmundur Jónasson.