Ferill 643. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1303  —  643. mál.




Skýrsla



samgönguráðherra um framkvæmd flugmálaáætlunar 1999.

(Lögð fyrir Alþingi á 125. löggjafarþingi 1999–2000.)



I. ÁÆTLUN UM FJÁRÖFLUN OG GJÖLD



1.1    Flugmálaáætlun.
    Samkvæmt þingsályktun um flugmálaáætlun fyrir árið 1999 eru áætlaðar heildartekjur vegna flugmálaáætlunar ársins 598 millj. kr. sem eingöngu verða til af flugvallagjaldi í utan- og innanlandsflugi.
    Gjöld samkvæmt flugmálaáætlun ársins 1999 eru jafnframt 598 millj. kr. og skiptast á eftirfarandi hátt:

Millj. kr.
Til rekstrar 113
Flugstöð Leifs Eiríkssonar 55
Reykjavíkurflugvöllur 105
Aðrir flugvellir o.fl. 325
Samtals 598

     Tekjur. Heildartekjur ársins 1999 urðu 619 millj. kr. sem er 21 millj. kr. umfram áætlun, eða 3,5%.
    Eftirfarandi tafla og mynd sýna þróun tekna flugmálaáætlunar árin 1995–99:

Tafla 1. Þróun tekna flugmálaáætlunar 1995–99 (þús. kr.).
1995 1996 1997 1998 1999
Flugvallagjald, utanlandsflug 353.044 439.759 435.991 495.370 546.979
Flugvallagjald, innanlandsflug 54.904 60.443 62.332 69.332 71.631
Eldsneytisskattur 42.978 52.792 51.793 16.927 0
Samtals 450.926 552.994 550.116 581.629 618.610


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     Gjöld. Útgjöld vegna flugmálaáætlunar ársins 1999 voru eftirfarandi:

Tafla 2. Útgjöld flugmálaáætlunar 1999 (millj. kr.).
Verkefni Áætlun Útgjöld Breyting
Til rekstrar 113 113 0,0%
Flugstöð Leifs Eiríkssonar 55 55 0,0%
Reykjavík 105 87 .17,1%
Aðrir flugvellir o.fl. 325 370 13,8%
Samtals 598 625 4,5%

1.2 Flugmálastjórn.
    Samkvæmt þingsályktun um flugmálaáætlun fyrir árið 1999 eru heildartekjur Flugmálastjórnar áætlaðar 956 millj. kr. og eru heildarútgjöld áætluð jafnhá. Þar sem upphæðin samkvæmt þingsályktuninni er á verðlagi ársins 1997 og þannig ekki sambærileg við rauntekjur og kostnað verður gerð grein fyrir rekstri Flugmálastjórnar samkvæmt ársreikningi 1999.
     Tekjur. Eftirfarandi tafla sýnir tekjur Flugmálastjórnar fyrir árið 1999 og samanburð við fyrra ár:

Tafla 3. Tekjur Flugmálastjórnar 1998 og 1999 (þús. kr.).
Tekjur 1999 1998 Breyting
Þjónustutekjur 337.352 307.962 9,5%
Lendingargjöld 94.178 80.860 16,5%
Leigutekjur flugvélar 35.986 49.125 .26,7%
Fjármunatekjur 21.062 17.307 21,7%
Aðrar tekjur 42.880 82.066 .47,7%
Framlag af flugmálaáætlun 113.000 167.000 .32,3%
Framlag úr ríkissjóði 587.700 509.500 15,3%
Samtals 1.232.158 1.213.820 1,5%

    Eins og fram kemur í töflunni varð 1,5% tekjuaukning frá árinu 1998 til 1999. Framlag af flugmálaáætlun til rekstrar Flugmálastjórnar lækkar um 32,3% vegna aukinna fjárveitinga af flugmálaáætlun til framkvæmda á Reykjavíkurflugvelli. Þess í stað hækka framlög úr ríkissjóði um 15,3%.
     Gjöld. Útgjöld Flugmálastjórnar árið 1999 urðu 1.225 millj. kr. og höfðu hækkað um 4,5% frá 1998.
    Eftirfarandi tafla sýnir samanburð á gjöldum Flugmálastjórnar árin 1998 og 1999:

Tafla 4. Gjöld Flugmálastjórnar 1998 og 1999 (þús. kr.).
1999 1998 Breyting
Laun og launatengd gjöld 742.116 700.940 5,9%
Önnur rekstrargjöld 482.941 470.954 2,5%
Samtals 1.225.057 1.171.894 4,5%

    Gjöld Flugmálastjórnar eru sundurliðuð samkvæmt uppsetningu í þingsályktun um flugmálaáætlun fyrir árið 1999 á eftirfarandi hátt:

Millj. kr.
Rekstur flugvalla 602
Annar rekstur 565
Hlutdeild Flugmálastjórnar vegna Alþjóðaflugþjónustu 35
Hlutdeild Landssímans og Veðurstofu vegna Alþjóðaflugþjónustu 23
Samtals 1.225

1.2.1 Rekstur flugvalla.
    Heildarútgjöld flugvalla voru árið 1999 602 millj. kr. og urðu tekjur 138 millj. kr. Eftirfarandi tafla sýnir tekjur og gjöld flugvallanna árið 1999, sundurliðað eftir rekstrarsviðum Flugmálastjórnar:

Tafla 5. Rekstur flugvalla, sundurliðun eftir rekstrarsviðum (þús. kr.).
Rekstrarsvið Gjöld Tekjur Mismunur
Reykjavíkurflugvöllur 121.243 74.884 46.359
Flugvallasvið 269.192 63.603 205.589
Flugleiðsögusvið 41.821 0 41.821
Flugumferðarsvið 169.730 0 169.730
Samtals 601.986 138.487 463.499

    Eins og taflan sýnir eru gjöld umfram tekjur í rekstri flugvallanna 463 millj. kr. Þar inn í eru ekki reiknaðar afskriftir og vextir af stofnkostnaði ýmissa mannvirkja.
    Sem hlutfall af gjöldum eru tekjur flugvallanna aðeins 23%. Meðaltal framlegðar á hvern farþega sem fór um áætlunarflugvellina og aðra þjónustuflugvelli árið 1999 er 484 kr.

1.2.1.1 Reykjavíkurflugvöllur .
    Rekstur Reykjavíkurflugvallar gekk mjög vel árið 1999 þegar á heildina er litið. Heildarútgjöld voru 8 millj. kr. umfram rekstraráætlun, eða 3,7%. Hins vegar urðu tekjur flugvallarins 7,8 millj. kr. umfram áætlun sem varð til þess að í heild urðu útgjöld 0,1% hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Sá rekstrarþáttur sem helst fór úr böndunum á árinu var rekstur aðflugsþjónustunnar, þ.e. flugturninn, en útgjöld fóru 8,5 millj. kr. fram úr áætlun, eða 9,9%. Þá fór rekstur slökkviþjónustu einnig nokkuð fram úr áætlun, eða 3,7 millj. kr. sem er 6,6%. Ýmsir aðrir rekstrarþættir voru undir áætlun sem gerir heildarniðurstöðu ársins viðunandi.
    Launakostnaður var um 75% af heildarrekstrarútgjöldum flugvallarins og önnur rekstrargjöld þar af leiðandi 25%.

Tafla 6. Sundurliðun, laun og önnur rekstrargjöld (þús. kr.).
Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Laun 166.123 162.933 3.190 2,0
Önnur rekstrargjöld 56.572 51.843 4.729 9,1
Samtals 222.695 214.776 7.919 3,7

    Eins og sést í töflu 6 fóru launaútgjöld 2,0% fram úr áætlun og önnur rekstrargjöld 9,1%.
    Eftirfarandi tafla sýnir sundurliðun gjalda og tekna eftir verkefnum:

Tafla 7. Sundurliðun rekstrar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 34.374 37.521 .3.147 .8,4
Snjómokstur 11.574 10.599 975 9,2
Slökkviþjónusta 60.332 56.600 3.732 6,6
Vélaverkstæði 8.715 8.403 312 3,7
Trésmíðaverkstæði 6.249 7.210 .961 .13,3
Flugturn/aðflug 94.281 85.783 8.498 9,9
Ljósabúnaður 2.077 2.100 .23 .1,1
Flugleiðsögubúnaður 4.870 5.560 .690 .12,4
Flugprófanir 223 1.000 .777 .77,7
Samtals 222.695 214.776 7.919 3,7
Tekjur
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 69.402 61.596 7.806 12,7
Slökkviþjónusta 51 500 .449 .89,8
Vélaverkstæði 971 1.000 .29 .2,9
Trésmíðaverkstæði 4.460 4.000 460 11,5
Samtals 74.884 67.096 7.788 11,6
Gjöld umfram tekjur 147.811 147.680 131 0,1
Hlutfall tekna af gjöldum 33,6%
Framlegð á hvern farþega 326 kr.

    Eins og fram kemur í töflunni eru gjöld umfram tekjur 147,8 millj. kr. Hlutfall tekna af gjöldum er 33,6% og framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu er 326 kr.

1.2.1.2 Akureyrarflugvöllur.
    Akureyrarflugvöllur var rekinn á árinu með 1,1 millj. kr. undir rekstraráætlun þegar tekið hefur verið tillit til gjalda og tekna, eða 1,7% sem er mjög gott. Heildarrekstrarútgjöld fóru 4,4% fram úr rekstraráætlun en tekjur urðu 23,3% yfir áætlun, eða 4,8 millj. kr.
    Launagjöld urðu 56,2 millj. kr. sem eru 63,6% af heildarútgjöldunum. Önnur rekstrargjöld eru 32,2 millj. kr. og fóru 7,6% fram úr áætlun.

Tafla 8. Sundurliðun, laun og önnur rekstrargjöld (þús. kr.).
Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Laun 56.226 54.759 1.467 2,7
Önnur rekstrargjöld 32.233 29.970 2.263 7,6
Samtals 88.459 84.729 3.730 4,4

    Laun fóru 2,7% fram úr áætlun sem er nokkuð yfir meðaltali launakostnaðar hjá Flugmálastjórn á árinu 1999.

Tafla 9. Sundurliðun rekstrarkostnaðar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 53.588 50.419 3.169 6,3
Flugturn/aðflug 29.009 30.000 .991 .3,3
Ljósabúnaður 1.003 250 753 301,2
Flugleiðsögubúnaður 4.137 3.560 577 16,2
Flugprófanir 722 500 222 44,4
Samtals 88.459 84.729 3.730 4,4
Tekjur
Tekjustofn Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Lendingargjöld 16.487 16.835 .348 .2,1
Seld þjónusta 2.883 1.350 1.533 113,6
Leigutekjur 6.126 2.500 3.626 145,0
Samtals 25.496 20.685 4.811 23,3
Gjöld umfram tekjur 62.963 64.044 .1.081 .1,7
Hlutfall tekna af gjöldum 28,8%
Framlegð á hvern farþega 324 kr.

    Eins og þarna sést eru gjöld umfram tekjur 63 millj. kr. Hlutfall tekna af gjöldum er 28,8%. Framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu er 324 kr.

1.2.1.3 Vestmannaeyjaflugvöllur.
    Rekstrarkostnaður Vestmannaeyjaflugvallar fór nokkuð fram úr áætlun á árinu, eða um 7 millj. kr. sem eru 16,2%. Tekjur urðu 1,8 millj. kr. hærri en áætlun gerði ráð fyrir þannig að í heild eru 5,2 millj. kr. umfram rekstraráætlun, eða 14,8%. Helstu skýringar á umframeyðslunni er meiri kostnaður við gæslu á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, en stöðugt hefur verið bætt við gæslu á flugvellinum þjóðhátíðardagana á undanförnum árum. Þá var ráðist í framkvæmdir við flugstöðina sem höfðu í för með sér nokkurn aukakostnað í rekstri flugvallarins.
    Launagjöld urðu 31 millj. kr. og fóru 10,4% fram úr áætlun sem er langt yfir meðaltali. Önnur rekstrargjöld urðu 19 millj. kr. og fóru 27,1% fram úr áætlun.

Tafla 10. Sundurliðun, laun og önnur rekstrargjöld (þús. kr.).
Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Laun 31.273 28.332 2.941 10,4
Önnur rekstrargjöld 19.303 15.190 4.113 27,1
Samtals 50.576 43.522 7.054 16,2

    Hlutfall launa af heildarrekstrarkostnaði flugvallarins er 61,8% en launakostnaður á árinu varð mun hærri en áætlun gerði ráð fyrir.

Tafla 11. Sundurliðun rekstrarkostnaðar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 22.714 20.539 2.175 10,6
Flugturn/aðflug 24.641 21.143 3.498 16,5
Ljósabúnaður 557 240 317 132,1
Flugleiðsögubúnaður 2.410 1.230 1.180 95,9
Flugprófanir 254 370 .116 .31,4
Samtals 50.576 43.522 7.054 16,2
Tekjur
Tekjustofn Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Lendingargjöld 7.803 5.500 2.303 41,9
Seld þjónusta 931 700 231 33,0
Leigutekjur 1.624 2.300 .676 .29,4
Samtals 10.358 8.500 1.858 21,9
Gjöld umfram tekjur 40.218 35.022 5.196 14,8
Hlutfall tekna af gjöldum
20,5%
Framlegð á hvern farþega 452 kr.

    Eins og taflan sýnir eru gjöld umfram tekjur 40,2 millj. kr. Hlutfall tekna af gjöldum er 20,5% og framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu er 452 kr.

1.2.1.4 Egilsstaðaflugvöllur.
    Rekstur Egilsstaðaflugvallar gekk mjög vel árið 1999. Heildarrekstrarútgjöld urðu tæplega 50 millj. kr. og sem næst því sem áætlanir gerðu ráð fyrir. Tekjur urðu nokkru hærri en áætlað var þannig að þegar á heildina er litið er rekstrarkostnaður við flugvöllinn 2 millj. kr. lægri en rekstraráætlun gerði ráð fyrir, eða 4,7%.
    Á Egilsstaðaflugvelli er veitt þjónusta allan sólarhringinn í flugturni auk brautar- og slökkviþjónustu þar sem flugvöllurinn gegnir þýðingarmiklu hlutverki sem varaflugvöllur fyrir millilandaflug.

Tafla 12. Sundurliðun, laun og önnur rekstrargjöld (þús. kr.).
Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Laun 33.852 34.076 .224 .0,7
Önnur rekstrargjöld 15.822 16.239 .417 .2,6
Samtals 49.674 50.315 .641 .1,3

    Hlutfall launa af heildarrekstrarútgjöldum var 68,1% árið 1999. Eins og sést voru laun og önnur rekstrargjöld 1,3% undir áætlun.

Tafla 13. Sundurliðun rekstrarkostnaðar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 33.304 33.851 .547 .1,6
Flugturn/aðflug 13.673 14.500 .827 .5,7
Ljósabúnaður 87 170 .83 .48,8
Flugleiðsögubúnaður 1.416 1.040 376 36,2
Flugprófanir 1.194 754 440 58,4
Samtals 49.674 50.315 .641 .1,3
Tekjur
Tekjustofn Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Lendingargjöld 6.636 5.480 1.156 21,1
Seld þjónusta 198 200 .2 .1,0
Leigutekjur 1.330 1.100 230 20,9
Samtals 8.164 6.780 1.384 20,4
Gjöld umfram tekjur 41.510 43.535 .2.025 .4,7
Hlutfall tekna af gjöldum
16,4%
Framlegð á hvern farþega 540 kr.

    Eins og fram kemur í töflunni eru gjöld umfram tekjur 41,5 millj. kr. Hlutfall tekna af gjöldum er 16,4%. Framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu er 540 kr.

1.2.1.5 Ísafjarðarflugvöllur.
    Heildarrekstrarkostnaður Ísafjarðarflugvallar var árið 1999 42,8 millj. kr. og fór 4. millj. kr. fram úr rekstraráætlun, eða 10,9%. Tekjur urðu örlitlu hærri en áætlunin. Í heildina er umframkostnaður 3,8 millj. kr. meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir sem eru 11,9%. Helstu rekstrarþættir sem fóru fram úr áætlun eru rekstur flugvallar, þ.e. flugbrauta og bygginga, sem nemur 3,1 millj. kr., eða 12,3%, og flugleiðsögubúnaður, um 3 millj. kr. sem var vegna nauðsynlegrar endurnýjunar á veðurmælibúnaði sem ekki var hægt að sjá fyrir og var þar af leiðandi ekki á rekstraráætlun ársins.
    Launakostnaður Ísafjarðarflugvallar varð 19,7 millj. kr. árið 1999 sem er 5,1% undir rekstraráætlun. Önnur rekstrargjöld urðu 23,1 millj. kr. sem er 29,4% umfram áætlun, eða 5,2 millj. kr.

Tafla 14. Sundurliðun, laun og önnur rekstrargjöld (þús. kr.).
Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Laun 19.677 20.740 .1.063 .5,1
Önnur rekstrargjöld 23.124 17.870 5.254 29,4
Samtals 42.801 38.610 4.191 10,9

    Eins og sést í töflunni er launakostnaður lægri en annar rekstrarkostnaður, eða 46% af heildarrekstrarútgjöldum sem er mun lægra hlutfall en á öðrum flugvöllum.

Tafla 15. Sundurliðun rekstrarkostnaðar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 28.488 25.360 3.128 12,3
Flugturn/aðflug 8.126 9.000 .874 .9,7
Ljósabúnaður 707 1.200 .493 .41,1
Flugleiðsögubúnaður 5.449 2.450 2.999 122,4
Flugprófanir 31 600 .569 .94,8
Samtals 42.801 38.610 4.191 10,9
Tekjur
Tekjustofn Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Lendingargjöld 4.416 4.600 .184 .4,0
Seld þjónusta 891 700 191 27,3
Leigutekjur 1.778 1.400 378 27,0
Samtals 7.085 6.700 385 5,7
Gjöld umfram tekjur 35.716 31.910 3.806 11,9
Hlutfall tekna af gjöldum
16,6%
Framlegð á hvern farþega 659 kr.

    Eins og fram kemur í töflunni eru gjöld umfram tekjur 35,7 millj. kr. Hlutfall tekna af gjöldum er 16,6% og framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu er 659 kr.

1.2.1.6 Hornafjarðarflugvöllur.
    Rekstur Hornafjarðarflugvallar gekk vel árið 1999. Heildarrekstrarkostnaður varð 5,7% undir rekstraráætlun og tekjur urðu 12,6% hærri en áætlunin gerði ráð fyrir. Þegar litið er á heildarniðurstöðu gjalda og tekna er rekstrarkostnaður 1,3 millj. kr. lægri en áætlunin gerði ráð fyrir, eða 11,1% lægri.
    Launakostnaður fór nokkuð fram úr áætlun, eða um 5,5%. Hins vegar urðu önnur rekstrargjöld mun lægri en áætlunin, eða um 20%.

Tafla 16. Sundurliðun, laun og önnur rekstrargjöld (þús. kr.).
Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Laun 9.059 8.584 475 5,5
Önnur rekstrargjöld 5.434 6.791 .1.357 .20,0
Samtals 14.493 15.375 .882 .5,7

    Eins og fram kemur í töflunni eru laun 62,5% af heildarrekstrarútgjöldum flugvallarins. Rekstrarniðurstaðan á árinu er fyllilega viðunandi.

Tafla 17. Sundurliðun rekstrarkostnaðar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 13.080 13.870 .790 .5,7
Ljósabúnaður 463 450 13 2,9
Flugleiðsögubúnaður 950 705 245 34,8
Flugprófanir 0 350 .350 .100,0
Samtals 14.493 15.375 .882 .5,7
Tekjur
Tekjustofn Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Lendingargjöld 2.110 2.100 10 0,5
Seld þjónusta 1.090 1.000 90 9,0
Leigutekjur 741 400 341 85,3
Samtals 3.941 3.500 441 12,6
Gjöld umfram tekjur 10.552 11.875 .1.323 .11,1
Hlutfall tekna af gjöldum
27,2%
Framlegð á hvern farþega 532 kr.

    Eins og fram kemur í töflunni eru gjöld umfram tekjur 10,5 millj. kr. Hlutfall tekna af gjöldum er 27,2%, sem er verulega hátt hlutfall miðað við stærð og umfang flugvallarins. Framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu er 532 kr.

1.2.1.7 Húsavíkurflugvöllur.
    Rekstrarkostnaður Húsavíkurflugvallar varð mun hærri árið 1999 en rekstraráætlun gerði ráð fyrir, eða um 33%. Tekjur flugvallarins voru tiltölulega lágar þar sem í áætlunarflugi var svo til eingöngu flogið litlum flugvélum sem greiða mun lægri lendingargjöld en t.d. Fokker 50 og ATR 42. Húsavíkurflugvöllur er nokkuð snjóþungur og er stór hluti kostnaðar við reksturinn vegna snjómoksturs. Á flugvellinum eru frekar gömul snjómoksturstæki og var nokkuð um óvæntar bilanir á síðasta ári og því urðu önnur rekstrargjöld nokkru hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
    Launakostnaður flugvallarins var nokkuð í jafnvægi á árinu en annar rekstrarkostnaður fór verulega úr böndunum og varð 51,5% hærri en áætlun gerði ráð fyrir.

Tafla 18. Sundurliðun, laun og önnur rekstrargjöld (þús. kr.).     
Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Laun 5.351 5.206 145 2,8
Önnur rekstrargjöld 13.136 8.673 4.463 51,5
Samtals 18.487 13.879 4.608 33,2

    Hlutfall launa af heildarútgjöldum var 28,9% árið 1999. Þess ber að geta að önnur rekstrargjöld eru mun hærri á Húsavíkurflugvelli en sambærilegum flugvöllum eins og Hornafjarðar- og Sauðárkróksflugvöllum.

Tafla 19. Sundurliðun rekstrarkostnaðar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 14.107 11.856 2.251 19,0
Ljósabúnaður 353 320 33 10,3
Flugleiðsögubúnaður 3.188 1.253 1.935 154,4
Flugprófanir 839 450 389 86,4
Samtals 18.487 13.879 4.608 33,2
Tekjur
Tekjustofn Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Lendingargjöld 958 1.100 .142 .12,9
Seld þjónusta 748 170 578 340,0
Leigutekjur 161 400 .239 .59,8
Samtals 1.867 1.670 197 11,8
Gjöld umfram tekjur 16.620 12.209 4.411 36,1
Hlutfall tekna af gjöldum 10,1%
Framlegð á hvern farþega 1.281 kr.

    Eins og fram kemur í töflunni eru gjöld umfram tekjur 16,6 millj. kr. Hlutfall tekna af gjöldum var 10,1% og framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn árið 1999 var 1.281 kr.

1.2.1.8 Sauðárkróksflugvöllur.
    Heildarrekstrarkostnaður Sauðárkróksflugvallar árið 1999 varð 12,9 millj. kr. og fór 10,9% fram úr rekstraráætlun, eða 1,3 millj. kr. Tekjur urðu nokkru hærri en áætlun gerði ráð fyrir, en áætlunarflug um flugvöllinn er eins og á Húsavíkurflugvelli flogið litlum flugvélum sem skila lægri tekjum af lendingargjöldum. Samtals er umframkostnaður 0,9 millj. kr. hærri en áætlun gerði ráð fyrir, eða 8,8%.
    Launakostnaður varð 3,2% hærri en áætlun gerði ráð fyrir og önnur rekstrargjöld 17,6% hærri, eða 1,1 millj. kr.

Tafla 20. Sundurliðun, laun og önnur rekstrargjöld (þús. kr.).
Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Laun 5.646 5.470 176 3,2
Önnur rekstrargjöld 7.294 6.200 1.094 17,6
Samtals 12.940 11.670 1.270 10,9

    Hlutfall launakostnaðar af heildarútgjöldum ársins varð 43,6% og önnur rekstrargjöld eru þar af leiðandi 56,4%.

Tafla 21. Sundurliðun rekstrarkostnaðar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 10.153 9.066 1.087 12,0
Ljósabúnaður 127 4 123 3.075,0
Flugleiðsögubúnaður 1.920 2.100 .180 .8,6
Flugprófanir 740 500 240 48,0
Samtals 12.940 11.670 1.270 10,9
Tekjur
Tekjustofn Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Lendingargjöld 1.449 1.000 449 44,9
Seld þjónusta 268 300 .32 .10,7
Leigutekjur 49 100 .51 .51,0
Samtals 1.766 1.400 366 26,1
Gjöld umfram tekjur 11.174 10.270 904 8,8
Hlutfall tekna af gjöldum 13,6%
Framlegð á hvern farþega 759 kr.

    Eins og sést í töflunni eru gjöld umfram tekjur 11,2 millj. kr., sem er nokkru lægra en á Húsavíkurflugvelli, en þessir flugvellir eru mjög sambærilegir að stærð og umfangi. Hlutfall tekna af gjöldum var 13,6%. Framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu var 759 kr.

1.2.1.9 Bíldudalsflugvöllur.
    Rekstur Bíldudalsflugvallar gekk mjög vel árið 1999. Rekstrarútgjöld í heild urðu 17,1% undir áætlun, eða 1,6 millj. kr. Tekjur urðu samkvæmt áætlun en áætlunarflug til Bíldudals er flogið litlum flugvélum.
    Launagjöld voru 13,8% undir áætlun og önnur rekstrargjöld 19,5% undir rekstraráætlun.

Tafla 22. Sundurliðun, laun og önnur rekstrargjöld (þús. kr.).
Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Laun 3.356 3.896 .540 .13,9
Önnur rekstrargjöld 4.358 5.405 .1.047 .19,4
Samtals 7.714 9.301 .1.587 .17,1

    Eins og fram kemur í töflu 22 var hlutfall launakostnaðar af heildarútgjöldum 43,5%.

Tafla 23. Sundurliðun rekstrarkostnaðar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 7.119 7.881 .762 .9,7
Ljósabúnaður 139 20 119 595,0
Flugleiðsögubúnaður 456 1.200 .744 .62,0
Flugprófanir 0 200 .200 .100,0
Samtals 7.714 9.301 .1.587 .17,1
Tekjur
Tekjustofn Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Lendingargjöld 860 750 110 14,7
Seld þjónusta 48 100 .52 .52,0
Leigutekjur 0 0 0
Samtals 908 850 58 6,8
Gjöld umfram tekjur 6.806 8.451 .1.645 .19,5
Hlutfall tekna af gjöldum
11,8%
Framlegð á hvern farþega 901 kr.

    Tafla 23 sýnir að gjöld umfram tekjur urðu 6,8 millj. kr. Hlutfall tekna af gjöldum var 11,8% og framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu 1999 var 901 kr.

1.2.1.10 Grímseyjarflugvöllur.
    Rekstrarútgjöld Grímseyjarflugvallar voru árið 1999 mun hærri en áætlun gerði ráð fyrir. Önnur rekstrargjöld fóru úr böndunum og urðu 54,5% hærri en áætlunin. Skýringuna er að finna í óvæntum viðhaldskostnaði á ljósa- og aðflugsbúnaði flugvallarins. Þegar á heildina er litið var kostnaður af rekstri flugvallarins 19,8% hærri en áætlun gerði ráð fyrir. Launakostnaður varð 5,2% lægri en áætlað var.

Tafla 24. Sundurliðun, laun og önnur rekstrargjöld (þús. kr.).
Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Laun 3.096 3.267 .171 .5,2
Önnur rekstrargjöld 3.480 2.252 1.228 54,5
Samtals 6.576 5.519 1.057 19,2

    Hlutfall launa af heildarútgjöldum á árinu var 47,1%. Rekstrarniðurstaða flugvallarins hefði verið viðunandi ef kostnaður af óvæntu viðhaldi ljósa- og aðflugsbúnaðar hefði ekki komið til.

Tafla 25. Sundurliðun rekstrarkostnaðar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 5.018 5.144 .126 .2,4
Ljósabúnaður 777 25 752 3.008,0
Flugleiðsögubúnaður 681 350 331 94,6
Flugprófanir 100 0 100
Samtals 6.576 5.519 1.057 19,2
Tekjur
Tekjustofn Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Lendingargjöld 343 200 143 71,5
Seld þjónusta 228 190 38 20,0
Leigutekjur 100 200 .100 .50,0
Samtals 671 590 81 13,7
Gjöld umfram tekjur 5.905 4.929 976 19,8
Hlutfall tekna af gjöldum
10,2%
Framlegð á hvern farþega 1.536 kr.

    Eins og fram kemur í töflunni voru gjöld umfram tekjur 5,9 millj. kr. Hlutfall tekna af gjöldum var 10,2% og framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu 1999 var 1.536 kr.

1.2.1.11 Siglufjarðarflugvöllur.
    Rekstrarkostnaður flugvallarins fór verulega úr böndunum árið 1999 þegar á heildina er litið, eða 29,4% fram úr áætlun. Tekjur flugvallarins eru mjög litlar, enda tíðni flugs til Siglufjarðar ekki há og flogið litlum vélum. Tekjurnar urðu örlitlu hærri en áætlunin gerði ráð fyrir.
    Launakostnaður varð 3,7% hærri en áætlað var en hins vegar fóru önnur rekstrargjöld úr böndunum, eða 1,6 millj. kr. fram úr áætlun sem er 58,1%.

Tafla 26. Sundurliðun, laun og önnur rekstrargjöld (þús. kr.).
Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Laun 3.263 3.146 117 3,7
Önnur rekstrargjöld 4.415 2.792 1.623 58,1
Samtals 7.678 5.938 1.740 29,3

    Hlutfall launa af rekstrargjöldum var 42,5% árið 1999. Önnur rekstrargjöld eru þar af leiðandi 57,5%.
    Eins og sést í töflu 27 eru gjöld umfram tekjur 7,3 millj. kr. Hlutfall tekna af gjöldum er aðeins 4,7% og framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu er 2.590 kr.

Tafla 27. Sundurliðun rekstrarkostnaðar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 7.546 5.803 1.743 30,0
Ljósabúnaður 0 0 0
Flugleiðsögubúnaður 132 135 .3 .2,2
Flugprófanir 0 0 0
Samtals 7.678 5.938 1.740 29,3
Tekjur
Tekjustofn Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Lendingargjöld 344 250 94 37,6
Seld þjónusta 17 35 .18 .51,4
Leigutekjur 0 0 0
Samtals 361 285 76 26,7
Gjöld umfram tekjur 7.317 5.653 1.664 29,4
Hlutfall tekna af gjöldum
4,7%
Framlegð á hvern farþega 2.590 kr.

1.2.1.12 Þórshafnarflugvöllur.
    Heildarrekstrarútgjöld Þórshafnarflugvallar urðu 8,1 millj. kr. árið 1999 og fóru 2,2 millj. kr. fram úr áætlun, eða 36,6%. Tekjur urðu nokkru hærri en áætlað var, en þar sem tekjur flugvallarins eru mjög lágar varð lítil breyting á rekstrarkostnaði og þegar á heildina er litið fóru rekstrarútgjöldin 33,9% fram úr áætlun.
    Laun fóru 5,2% fram úr áætlun og annar rekstrarkostnaður fór úr böndunum og varð 57,5% hærri en gert var ráð fyrir.

Tafla 28. Sundurliðun, laun og önnur rekstrargjöld (þús. kr.).
Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Laun 2.491 2.368 123 5,2
Önnur rekstrargjöld 5.614 3.565 2.049 57,5
Samtals 8.105 5.933 2.172 36,6

    Hlutfall launa af rekstrarútgjöldum var 44,4% og eru því önnur rekstrargjöld 55,6% af útgjöldunum.
    Eins og fram kemur í töflu 29 eru gjöld umfram tekjur 7,7 millj kr. og var framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu 4.016 kr.
Tafla 29. Sundurliðun rekstrarkostnaðar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 7.629 5.633 1.996 35,4
Ljósabúnaður 54 180 .126 .70,0
Flugleiðsögubúnaður 41 20 21 105,0
Flugprófanir 381 100 281 281,0
Samtals 8.105 5.933 2.172 36,6
Tekjur
Tekjustofn Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Lendingargjöld 397 200 197 98,5
Seld þjónusta 30 0 30
Leigutekjur 0 0 0
Samtals 427 200 227 113,5
Gjöld umfram tekjur 7.678 5.733 1.945 33,9
Hlutfall tekna af gjöldum
5,3%
Framlegð á hvern farþega 4.016 kr.

1.2.1.13 Vopnafjarðarflugvöllur.
    Rekstrarkostnaður Vopnafjarðarflugvallar varð 7,7 millj. kr. árið 1999 og fór 16,3% fram úr áætlun. Tekjur urðu nokkru hærri en gert var ráð fyrir en þegar á heildina er litið fór rekstur flugvallarins 14,5% fram úr rekstraráætlun.
    Launakostnaður fór verulega úr böndunum á árinu og var 26,6% hærri en áætlað var. Önnur rekstrargjöld fóru 7,3% fram úr áætlun.

Tafla 30. Sundurliðun, laun og önnur rekstrargjöld (þús. kr.).
Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Laun 3.910 3.089 821 26,6
Önnur rekstrargjöld 3.805 3.545 260 7,3
Samtals 7.715 6.634 1.081 16,3

    Hlutfall launa af rekstrarútgjöldum var 50,7% árið 1999 og urðu önnur rekstrargjöld því 49,3% af heildarútgjöldunum.
    Eins og fram kemur í töflu 31 voru gjöld umfram tekjur 7,1 millj. kr. Hlutfall tekna af gjöldum var 8,5% og framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu var 2.430 kr.
Tafla 31. Sundurliðun rekstrarkostnaðar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 6.280 5.894 386 6,5
Ljósabúnaður 505 130 375 288,5
Flugleiðsögubúnaður 714 570 144 25,3
Flugprófanir 216 40 176 440,0
Samtals 7.715 6.634 1.081 16,3
Tekjur
Tekjustofn Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Lendingargjöld 495 400 95 23,8
Seld þjónusta 163 70 93 132,9
Leigutekjur 0 0 0
Samtals 658 470 188 40,0
Gjöld umfram tekjur 7.057 6.164 893 14,5
Hlutfall tekna af gjöldum
8,5%
Framlegð á hvern farþega 2.430 kr.

1.2.1.14 Þingeyrarflugvöllur.
    Þingeyrarflugvöllur þjónar í dag sem varaflugvöllur fyrir Ísafjörð, en ekki er lengur reglubundið áætlunarflug til Þingeyrar. Heildarkostnaður við rekstur flugvallarins árið 1999 varð 7,1 millj. kr. sem er 12,3% minna en rekstraráætlun gerði ráð fyrir. Tekjur urðu nokkru hærri en áætlað var og þegar á heildina er litið varð rekstrarafkoma flugvallarins á árinu 14,9% betri en reiknað var með, sem er fyllilega viðunandi.

Tafla 32. Sundurliðun rekstrarkostnaðar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 7.101 8.110 .1.009 .12,4
Ljósabúnaður 0 0 0
Flugleiðsögubúnaður 11 0 11
Flugprófanir 0 0 0
Samtals 7.112 8.110 .998 .12,3
Tekjur
Tekjustofn Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Lendingargjöld 245 150 95 63,3
Seld þjónusta 0 0 0
Leigutekjur 347 300 47 15,7
Samtals 592 450 142 31,6
Gjöld umfram tekjur 6.520 7.660 .1.140 .14,9
Hlutfall tekna af gjöldum
8,3%
Framlegð á hvern farþega 2.575 kr.

    Eins og taflan sýnir voru gjöld 6,5 millj. kr. umfram tekjur árið 1999. Hlutfall tekna af gjöldum var 8,3% og framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu 2.575 kr.

Tafla 33. Sundurliðun, laun og önnur rekstrargjöld (þús. kr.).
Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Laun 4.416 5.045 .629 .12,5
Önnur rekstrargjöld 2.696 3.065 .369 .12,0
Samtals 7.112 8.110 .998 .12,3

    Hlutfall launa af rekstrarkostnaði ársins var 62,1% og önnur rekstrargjöld því 37,9%.

1.2.1.15 Gjögursflugvöllur.
    Rekstur Gjögursflugvallar gekk nokkuð vel árið 1999 þegar á heildina er litið. Heildarútgjöld urðu 4,9 millj. kr., sem er 6,6% umfram áætlun, en tekjur urðu mun hærri en áætlunin gerði ráð fyrir, eða 54%. Þannig er heildarniðurstaða rekstrarins á árinu 0,1% umfram áætlun, sem er fyllilega viðunandi.

Tafla 34. Sundurliðun rekstrarkostnaðar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 4.649 4.499 150 3,3
Ljósabúnaður 171 0 171
Flugleiðsögubúnaður 94 50 44 88,0
Flugprófanir 0 62 .62 .100,0
Samtals 4.914 4.611 303 6,6
Tekjur
Tekjustofn Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Lendingargjöld 183 150 33 22,0
Seld þjónusta 253 0 253
Leigutekjur 411 400 11 2,8
Samtals 847 550 297 54,0
Gjöld umfram tekjur 4.067 4.061 6 0,1
Hlutfall tekna af gjöldum
17,2%
Framlegð á hvern farþega 8.266 kr.

    Eins og sést í töflunni voru gjöld umfram tekjur 4,1 millj. kr. Hlutfall tekna af gjöldum var 17,2%, sem er nokkuð hátt hlutfall hjá flugvelli af þessari stærð og umfangi. Skýringin er að Vegagerðin og hreppurinn kaupa snjómokstursþjónustu af flugvellinum. Framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu var 8.266 kr., sem er hæsta framlegð með farþega í áætlunarflugi innan lands, en um flugvöllinn fóru aðeins 492 farþegar á árinu.
    Launakostnaður varð 8,7% lægri en áætlunin gerði ráð fyrir og önnur rekstrargjöld urðu 17,9% hærri en reiknað var með.

Tafla 35. Sundurliðun, laun og önnur rekstrargjöld (þús. kr.).
Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Laun 1.798 1.969 .171 .8,7
Önnur rekstrargjöld 3.116 2.642 474 17,9
Samtals 4.914 4.611 303 6,6

    Hlutfall launa af rekstrarútgjöldum ársins var 36,6% og önnur rekstrargjöld því 63,4%.

1.2.1.16 Patreksfjarðarflugvöllur.
    Rekstrarkostnaður Patreksfjarðarflugvallar árið 1999 varð 10,8 millj. kr., sem er 5,7% umfram áætlun að teknu tilliti til tekna sem voru heldur lægri en áætlun gerði ráð fyrir.
    Launakostnaður var 2,6% lægri en rekstraráætlun gerði ráð fyrir en hins vegar urðu önnur rekstrargjöld 9% hærri en áætlað var, eða 0,7 millj. kr.

Tafla 36. Sundurliðun, laun og önnur rekstrargjöld (þús. kr.).
Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Laun 2.921 2.999 .78 .2,6
Önnur rekstrargjöld 8.198 7.520 678 9,0
Samtals 11.119 10.519 600 5,7

    Hlutfall launa af rekstrarútgjöldum var 26,3% á árinu 1999 og voru önnur rekstrargjöld því 73,7% af heildarútgjöldunum.

Tafla 37. Sundurliðun rekstrarkostnaðar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvallar 9.497 9.389 108 1,2
Ljósabúnaður 302 20 282
Flugleiðsögubúnaður 1.166 1.000 166 16,6
Flugprófanir 154 110 44 40,0
Samtals 11.119 10.519 600 5,7
Tekjur
Tekjustofn Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Lendingargjöld 218 250 .32 .12,8
Seld þjónusta 56 100 .44
Leigutekjur 0 0 0
Samtals 274 350 .76 .21,7
Gjöld umfram tekjur 10.845 10.169 676 6,6
Hlutfall tekna af gjöldum
2,5%
Framlegð á hvern farþega 7.187 kr.

    Eins og fram kemur í töflu 37 voru gjöld umfram tekjur 10,8 millj. kr. Hlutfall tekna af gjöldum var 2,5% og framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn árið 1999 7.187 kr.

1.2.1.17 Aðrir flugvellir og lendingarstaðir.
    Meginuppistaðan í rekstri svokallaðra annarra flugvalla og lendingarstaða eru flugvellir sem nú er flokkaðir sem þjónustuflugvellir en höfðu áður verið áætlunarflugvellir, t.d. við Blönduós, Breiðdalsvík, Hólmavík, Raufarhöfn og Stykkishólm.
    Rekstrarkostnaður þessara flugvalla var samtals 27 millj. kr. að teknu tilliti til tekna sem voru sáralitlar, enda er hlutfall tekna af gjöldum aðeins 0,7%.
    Eftirfarandi tafla sýnir samanlagðan rekstrarkostnað árið 1999 og samanburð við samanlagðar áætlanir:

Tafla 38. Sundurliðun rekstrarkostnaðar eftir verkefnum (þús. kr.).
Gjöld
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Rekstur flugvalla 25.196 21.889 3.307 15,1
Ljósabúnaður 133 195 .62
Flugleiðsögubúnaður 1.683 1.812 .129 .7,1
Flugprófanir 194 157 37 23,6
Samtals 27.206 24.053 3.153 13,1
Tekjur
Tekjustofn Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Lendingargjöld 52 90 .38 .42,2
Seld þjónusta 133 30 103
Leigutekjur 5 0 5
Samtals 190 120 70 58,3
Gjöld umfram tekjur 27.016 23.933 3.083 12,9
Hlutfall tekna af gjöldum
0,7%

    Eins og sést í töflu 38 varð rekstrarkostnaður þessara flugvalla árið 1999 12,9% hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir.

1.2.2 Annar rekstur.
    Annar rekstur Flugmálastjórnar en rekstur flugvalla er flugöryggissvið, flugleiðsögusvið, flugumferðarsvið og yfirstjórn. Undir yfirstjórn heyrir fjárvarsla og bókhald, alþjóðamál og skrifstofa flugmálastjóra.
    Árið 1999 gekk þessi rekstur nokkuð vel. Áætlanir stóðust og að teknu tilliti til tekna ársins varð kostnaðurinn 11,3% undir áætlunum, eða 29,4 millj. kr.
    Þegar tekið hefur verið mið af tekjum var afkoma yfirstjórnar 22,7 millj. kr. undir rekstraráætlun, flugöryggissvið var 4 millj. kr. undir áætluninni, rekstur flugleiðsögusviðs fór 11,4 millj. kr. fram úr áætlun og flugumferðarsvið var 10,7 millj. kr. undir rekstraráætlun.
    Eftirfarandi tafla sýnir samanburð á rekstrarkostnaði og áætluðum kostnaði ýmissa rekstrarsviða árið 1999:
Tafla 39. Annar rekstur, skipting tekna og gjalda eftir rekstrarsviðum (þús. kr.).
Gjöld     
Rekstrarsvið Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Yfirstjórn 123.327 144.210 .20.883 .14,5
Flugöryggissvið 79.215 67.600 11.615 17,2
Flugleiðsögusvið* 186.712 184.718 1.994 1,1
Flugumferðarsvið* 175.959 186.214 .10.255 .5,5
Alþjóðaflugþjónustan 57.857 61.300 .3.443 .5,6
Samtals 623.070 644.042 .20.972 .3,3
Tekjur
Verkefni Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Yfirstjórn 111.816 110.000 1.816 1,7
Flugöryggissvið 79.180 63.600 15.580 24,5
Flugleiðsögusvið* 121.587 131.000 .9.413 .7,2
Flugumferðarsvið* 80.414 80.000 414 0,5
Alþjóðaflugþjónustan 0 0 0
Samtals 392.997 384.600 8.397 2,2
Gjöld umfram tekjur 230.073 259.442 .29.369 .11,3
Hlutfall tekna af gjöldum
63,1%
* Kostnaður við rekstur ljósa- og aðflugsbúnaðar, flugprófana og flugturna sem færður hefur verið undir flugvelli en fellur undir þessi rekstrarsvið er hér dreginn frá.

    Eftirfarandi tafla sýnir afkomu A-hluta Flugmálastjórnar í heild árið 1999:

Tafla 40. Niðurstaða rekstrar A-hluta Flugmálastjórnar árið 1999 (þús. kr.).
Rekstrarsvið Staða í árslok Áætlun Mismunur %
Gjöld
Rekstur flugvalla 601.987 561.454 40.533 7,2
Annar rekstur 623.070 644.042 .20.972 .3,3
Samtals 1.225.057 1.205.496 19.561 1,6
Tekjur
Rekstur flugvalla 138.487 120.196 18.291 15,2
Annar rekstur 392.997 384.600 8.397 2,2
Samtals 531.484 504.796 26.688 5,3
Gjöld umfram tekjur 693.573 700.700 .7.127 .1,0

    Eins og sést í töflunni er afkoma A-hluta Flugmálastjórnar jákvæð, þ.e. 7,1 millj kr. undir rekstraráætlun.


II. SKIPTING ÚTGJALDA



    Árið 1999 urðu útgjöld vegna flugmálaáætlunar þannig að til framkvæmda á innanlandsflugvöllum var varið 354 millj. kr., eða um 57%. Til rekstrar flugvalla fóru 167 millj. kr., eða um 18%. Flugstöð Leifs Eiríkssonar fékk 55 millj kr. af áætluninni, eða 9%. Til flugumferðar- og flugleiðsögubúnaðar var varið 24 millj kr., eða um 4%, og til tækjakaupa 58 millj. kr., eða 9% þess sem var til ráðstöfunar. 21 millj. kr. var svo varið í ýmis önnur verkefni, eins og til annarra flugvalla og lendingarstaða, og í stjórnunarkostnað.
    Eftirfarandi töflur sýna útgjöld flugmálaáætlunar eftir verkefnaflokkum annars vegar og umdæmum hins vegar:

Tafla 41. Skipting útgjalda eftir verkefnaflokkum (millj. kr.).
Verkefnaflokkar Til
framkvæmda
Framkvæmda-
kostnaður
Hlutfall
Flugbrautir og hlöð 140,2 154,7 24,7%
Byggingar 133,8 138,4 22,1%
Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 66,3 60,9 9,7%
Flugumferðar- og flugleiðsögubúnaður 100,7 24,2 3,9%
Annar kostnaður 90,0 78,9 12,6%
Flugstöð Leifs Eiríkssonar 55,0 55,0 8,8%
Til rekstrar flugvalla 113,0 113,0 18,1%
699,0 625,1 100,0%

Tafla 42. Skipting útgjalda eftir umdæmum (millj. kr.).
Umdæmi og verkefni Til
framkvæmda
Framkvæmda-
kostnaður
Hlutfall
Umdæmi 1, Suður- og Vesturland 87,2 113,5 18,2%
Umdæmi 2, Vestfirðir 31,9 70,2 11,2%
Umdæmi 3, Norðurland 69,3 54,0 8,6%
Umdæmi 4, Austurland 30,6 29,8 4,8%
Reykjavík 121,3 86,5 13,8%
Flugumferðar- og flugleiðsögubúnaður 100,7 24,2 3,9%
Annar kostnaður 90,0 78,9 12,6%
Flugstöð Leifs Eiríkssonar 55,0 55,0 8,8%
Til rekstrar flugvalla 113,0 113,0 18,1%
699,0 625,1 100,0%


III. FLOKKUN FLUGVALLA OG ÞRÓUN FLUTNINGA



3.1 Flokkun flugvalla.
    Áætlunarflugvellir eru flokkaðir samkvæmt núgildandi þingsályktun um flugmálaáætlun eftir því hve miklir flutningar eru um þá, þ.e. samanlagður meðalþungi farþega og farangurs, ásamt vörum og pósti. Áætlunarflugvellirnir eru flokkaðir á eftirfarandi hátt:

Tafla 43. Flokkun áætlunarflugvalla.
Áætlunarflugvellir I Áætlunarflugvellir II Áætlunarflugvellir III
    Reykjavík     Bíldudalur     Mývatn
    Akureyri     Siglufjörður     Hólmavík
    Vestmannaeyjar     Patreksfjörður     Raufarhöfn
    Egilsstaðir     Vopnafjörður     Gjögur
    Ísafjörður     Grímsey     Kópasker
    Hornafjörður     Þingeyri
    Húsavík     Þórshöfn
    Sauðárkrókur

    Frá því að núgildandi þingsályktun um flugmálaáætlun var samþykkt á Alþingi hefur áætlunarflugi verið hætt til Hólmavíkur, Kópaskers og Raufarhafnar (miðað er við árslok 1999). Við endurskoðun á flugmálaáætlun hefur sú regla gilt að flugvellir sem hætt hefur verið áætlunarflugi til séu flokkaðir undir þjónustuflugvelli.
    Flugvellir sem ekki er flogið áætlunarflug til falla undir flokkinn Aðrir flugvellir og lendingarstaðir sem síðan skiptist í fimm undirflokka:

Tafla 44. Undirflokkar annarra flugvalla og lendingarstaða.
    Undirflokkar Fjöldi
    A. Þjónustuflugvellir 13
    B. Aðrir flugvellir 15
    C. Sportflugvellir 5
    D. Lendingarstaðir 20
    E. Lendingarstaðir í eigu og umsjá annarra en Flugmálastjórnar 8
    Samtals 61

    Þá eru flugvellir enn fremur flokkaðir eftir staðli Alþjóðaflugmálastofnunarinnar samkvæmt viðauka 14. Þar er miðað við brautarlengdir og flugvélagerðir eins og sést í eftirfarandi töflu:
Tafla 45. Flugvellir flokkaðir samkvæmt eftirfarandi viðmiðunum í viðauka 14.
Viðmiðun 1     Viðmiðun 2
Flokkur Flugbrautarlengd Flokkur Vænghaf Breidd milli aðalhjóla
1 Styttri en 800m A Styttra en 15 m Styttri en 4,5 m
2 800 m að 1200 m B 15 m að 24 m 4,5 m að 6 m
3 1200 m að 1800 m C 24 m að 36 m 6 m að 9 m
4 1800 m og lengri D 36 m að 52 m 9 m að 14 m
E 52 m að 65 m 9 m að 14 m

3.2 Þróun flutninga.
    Farþegaflutningar hafa þróast þannig á undanförnum árum að flutningarnir hafa flust frá minni flugvöllum og yfir á þá stærri þar sem hærri tíðni flugs hefur haft mest að segja. Vöru- og póstflutningar hafa dregist mjög mikið saman undanfarin ár og virðast enn vera á undanhaldi.
    Eftirfarandi mynd sýnir þróun farþegaflugs 1990–99 (Keflavíkurflugvöllur ekki meðtalinn, Bakkaflugvöllur er meðtalinn frá árinu 1998):


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og myndin sýnir hafa farþegaflutningar í innanlandsflugi aukist jafnt og þétt undanfarin ár.

3.2.1 Reykjavík.
    Reykjavíkurflugvöllur gegnir mjög mikilvægu hlutverki í flugsamgöngukerfinu innan lands þar sem um og yfir 90% þeirra sem fljúga í innanlandsflugi fara um völlinn. Þar eru þrjár flugbrautir, 1.749 m, 1.453 m, og 960 m langar. Samkvæmt alþjóðlega staðlinum sem fyrr var getið flokkast flugbrautirnar í 3D, 3C og 2C.
    Farþegum sem fara um Reykjavíkurflugvöll hefur fjölgað úr 306.000 árið 1990 í 453.000 á síðasta ári, eða um 48% sem er að jafnaði tæplega 15.000 farþegar á ári undanfarin 10 ár.
    Vöru- og póstflutningar hafa hins vegar dregist nokkuð saman eins og sést á mynd 4.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


3.2.2 Akureyri.
    Á Akureyrarflugvelli er ein 1.940 m löng malbikuð flugbraut sem er í flokki 4D. Flugvöllurinn gegnir að nokkru hlutverki sem varaflugvöllur fyrir millilandaflug. Þá er enn fremur dálítið leiguflug erlendis frá til Akureyrar og í stöku tilfellum beint leiguflug til annarra landa.
    Undanfarin 10 ár hefur farþegum um flugvöllinn fjölgað úr 121.000 í 194.000 sem er 60% fjölgun.
    Vöru- og póstflutningar hafa minnkað nokkuð undanfarin ár eins og sést á mynd 6.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


3.2.3 Vestmannaeyjar.
    Á Vestmannaeyjaflugvelli eru tvær 1.200 m flugbrautir með bundnu slitlagi. Flugbrautirnar flokkast í 3C, en þess ber að geta að öryggissvæði standast ekki tilmæli í viðauka 14 (ICAO Annex 14).
    Farþegaflutningar um flugvöllinn hafa verið nokkuð jafnir undanfarin ár, eða um 80.000 farþegar árlega. Mjög mikil fjölgun var í farþegaflutningum 1980–1990 en síðan þá hafa flutningarnir verið nokkuð jafnir.
    Vöru- og póstflutningar hafa einnig verið nokkuð jafnir eins og mynd 8 sýnir.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


3.2.4 Egilsstaðir.
    Nýja flugbrautin á Egilsstaðaflugvelli er 2.000 m löng og er því í flokki 4D. Flugvöllurinn gegnir mjög þýðingarmiklu hlutverki sem varaflugvöllur í millilandaflugi. Undanfarin ár hefur verið reynt að bæta slökkvi- og snjóhreinsibúnað vallarins til að hann geti betur sinnt hlutverki sínu sem varaflugvöllur.
    Farþegum sem fara um flugvöllinn hefur fjölgað mjög mikið undanfarin ár, eða úr 51.000 farþegum árið 1990 í 77.000 farþega á síðasta ári sem er 51% fjölgun. Frá árinu 1996 hefur farþegum fjölgað mest en þá lagðist af áætlunarflug til Norðfjarðar.
    Vöru- og póstflutningar hafa dregist saman undanfarin ár, eða úr 593 tonnum árið 1994 í 261 tonn sl. ár.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


3.2.5 Ísafjörður.
    Á Ísafjarðarflugvelli er ein 1.400 m löng flugbraut með bundnu slitlagi. Flugbrautin fellur í flokk 3C og vantar nánast öll öryggissvæði við flugbrautina. Þá eru aðflugsskilyrði mjög slæm vegna hindrana í landslagi, en reynt hefur verið að bæta úr því með auknum ljósabúnaði.
    Farþegaflutningar um flugvöllinn hafa sveiflast nokkuð sl. ár. Flutningarnir náðu hámarki árið 1997 þegar rúmlega 60.000 farþegar fóru um völlinn en síðan hefur farþegum fækkað aðeins.
    Vöru- og póstflutningar hafa dregist verulega mikið saman á undanförnum árum, eða úr 459 tonnum árið 1994 í 207 tonn árið 1999.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


3.2.6 Hornafjörður.
    Flugbrautin á Hornafjarðarflugvelli er 1.500 m löng og flokkast þá í 3C. Á brautinni er bundið slitlag, þ.e. klæðning, og var Hornafjarðarflugvöllur fyrsti flugvöllurinn hér á landi þar sem slíkt slitlag var notað á flugbraut.
    Farþegaflutningar um Hornafjarðarflugvöll hafa aukist nokkuð undanfarin ár með fjölgun ferðamanna á svæðinu. Þeir náðu hámarki árið 1996, en hafa minnkað nokkuð síðan.
    Vöru- og póstflutningar minnkuðu mikið árin1994–99 eins og mynd 13 sýnir.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


3.2.7 Húsavík.
    Á Húsavíkurflugvelli er ein 1.600 m löng flugbraut með bundnu slitlagi og flokkast hún því í flokk 3C.
    Farþegaflutningar um Húsavíkurflugvöll hafa verið nokkuð jafnir og stöðugir undanfarin ár, eða 17.000–18.000 farþegar að meðaltali á ári. Árið 1999 var eingöngu flogið áætlunarflug á litlum vélum, sem virðist hafa þau áhrif að farþegum hefur fækkað allverulega, eða um 30%. Þá má einnig gera ráð fyrir að farþegar sem áður fóru um flugvöllinn noti Akureyrarflugvöll í auknum mæli vegna hærri tíðni ferða.
    Vöru- og póstflutningar hafa minnkað mjög undanfarin ár eins og mynd 16 sýnir.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


3.2.8 Sauðárkrókur.
    Flugbrautin á Sauðárkróksflugvelli er 2.000 m löng og er í flokki 4C. Á flugbrautinni er bundið slitlag.
    Farþegaflutningar um flugvöllinn hafa verið jafnir og stöðugir undanfarin ár, að meðaltali um 15.000 farþegar á ári, að undanskildu árinu 1997. Þá ríkti hörð samkeppni á flugleiðinni og tæplega 19.000 farþegar fóru um völlinn.
    Mjög mikið hefur dregið úr vöru- og póstflutningum frá árinu 1996 eins og mynd 18 sýnir.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


3.2.9 Bíldudalur.
    Á Bíldudalsflugvelli er 900 m löng flugbraut með bundnu slitlagi og er hún í flokki 2B.
    Farþegum sem fóru um flugvöllinn fjölgaði mjög mikið frá árinu 1996, en þá fjölgaði áætlunarflugferðum til Bíldudals sem leiddi til þess að farþegar til og frá Patreksfirði notuðu Bíldudalsflugvöll í auknum mæli. Flutningarnir hafa aðeins dregist saman sl. tvö ár frá því að áætlunarflug hófst aftur til Patreksfjarðar.
    Vöru- og póstflutningar til Bíldudals hafa aukist jafnt og þétt sl. ár eins og sjá má á mynd 20.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


3.2.10 Grímsey.
    Í Grímsey er ein 1.100 m löng flugbraut með malarslitlagi og er hún í flokki 2B.
    Farþegaflutningar um Grímseyjarflugvöll hafa verið nokkuð jafnir og stöðugir undanfarin ár, milli 3.000 og 4.000 farþegar á ári.
    Vöru- og póstflutningar hafa aðeins dregist saman undanfarin ár að undanskildu síðasta ári, en þá jukust þeir lítils háttar.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


3.2.11 Siglufjörður.
    Flugbrautin á Siglufirði er 1.100 m löng með bundnu slitlagi og er í flokki 2B.
    Frá árinu 1991 hefur fjöldi farþega sveiflast á bilinu 2.600 til 3.500 á ári. Nýtingarhlutfall Siglufjarðarflugvallar er mjög lágt vegna erfiðra veður- og aðflugsskilyrða og er þá mjög oft lent á Sauðárkróki og farþegum ekið á milli.
    Vöru- og póstflutningar hafa dregist mjög mikið saman undanfarin ár eins og mynd 24 sýnir.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


3.2.12 Þórshöfn.
    Á Þórshöfn er ný 1.200 m löng flugbraut með bundnu slitlagi. Flugbrautin er í flokki 3C. Þá er einnig á Sauðanesi eldri malarbraut, 1.000 m löng, sem hefur þjónað sem þverbraut og er í flokki 2B.
    Farþegar sem farið hafa um Þórshafnarflugvöll hafa að jafnaði verið um 2.000 á ári undanfarin ár.
    Vöru- og póstflutningar hafa dregist mikið saman eins og sést á mynd 26.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


3.2.13 Vopnafjörður.
    Á Vopnafirði er ein 900 m löng flugbraut með bundnu slitlagi. Flugbrautin er í flokki 2B.
    Farþegaflutningar um flugvöllinn hafa heldur dregist saman undanfarin ár. Árið 1990 fóru 3.800 farþegar um Vopnafjarðarflugvöll, en síðasta ár voru þeir 2.900. Með mikið bættum vegi yfir Hellisheiði má gera ráð fyrir að ekið sé milli Vopnafjarðar og Héraðs og notað flug frá Egilsstaðaflugvelli sem er tíðara.
    Vöru- og póstflutningar hafa verið nokkuð jafnir og stöðugir undanfarin ár eins og mynd 28 sýnir.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


3.2.14 Þingeyri.
    Á Þingeyri er 1.000 m löng flugbraut með malarslitlagi sem er í flokki 2C. Reglubundnu áætlunarflugi til Þingeyrar var hætt árið 1996, en síðan hefur flugvöllurinn verið varaþjónustuflugvöllur fyrir Ísafjörð.
    Áður en áætlunarflugi var hætt til Þingeyrar voru farþegaflutningar nokkuð stöðugir, um og yfir 3.000 farþegar á ári. Nú sveiflast þeir eftir veðri og vindum á Ísafirði.
    Eins og sést á mynd 30 eru vöru- og póstflutningar mjög litlir.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


3.2.15 Gjögur.
    Flugbrautin á Gjögri er 900 m löng með malarslitlagi og er í flokki 2B.
    Farþegaflutningar um Gjögursflugvöll hafa dregist nokkuð saman undanfarin ár, aðallega frá 1995 og veldur þar mestu fólksfækkun í héraðinu.
    Vöru- og póstflutningar hafa aukist mikið undanfarin tvö ár eins og sjá má á mynd 32.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


3.2.16 Patreksfjörður.
    Flugbrautin á Patreksfirði er 1.400 m löng með bundnu slitlagi og er í flokki 3C.
    Undanfarin ár hefur ríkt þónokkur samkeppni í flugi til Patreksfjarðar og Bíldudals eins og sjá má þegar bornar eru saman myndir 19 og 33. Greinilega hefur flug til Bíldudals vinninginn, enda var áætlunarflugi til Patreksfjarðar hætt 1997. Það hófst aftur skömmu seinna á litlum flugvélum. Eins og mynd 33 sýnir hafa flutningarnir farið stöðugt minnkandi frá 1992.
    Vöru- og póstflutningum með flugi til og frá Patreksfirði er nánast hætt eins og sést á mynd 34.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



3.2.17 Þjónustuflugvellir.
    Mjög litlir farþegaflutningar eru skráðir á þjónustuflugvöllunum, nema Bakkaflugvelli en skráning þar hófst 1998. Þá fóru 17.049 farþegar um flugvöllinn og 16.990 á síðasta ári. Flutningarnir eru svo til eingöngu milli lands og Vestmannaeyja.


IV. SUNDURLIÐUN FRAMKVÆMDA



    Framkvæmdir á flugvöllunum skiptast í þrjá eftirfarandi verkefnaflokka:

Tafla 46. Verkefnaflokkar og verkefni.
Verkefnaflokkar Verkefni
1. Flugbrautir og hlöð Uppbygging flugbrauta, bundið slitlag, öryggissvæði, flughlað, bílastæði og lóð.
2. Byggingar Flugstöð, farþegaskýli, tækja- og sandgeymsla.
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður Flugvallarlýsing og raforkukerfi.

    Í flestum stærri verkefnum skiptist fjárveiting til einstakra verkefna á fleiri en eitt ár og þar af leiðandi verður framkvæmdatíminn í flestum tilfellum lengri en árið. Uppbygging áætlunarflugvallanna er mjög mislangt á veg komin. Enn eru notaðar í áætlunarflugi þrjár flugbrautir með malarslitlagi eingöngu, en það eru Gjögurs-, Grímseyjar- og Þingeyrarflugvellir. Undanfarin tvö ár hefur verið unnið að því að bæta og setja upp nýjan ljósabúnað á mjög mörgum flugvöllum.
    Árið 1999 var unnið að 27 verkefnum auk tækjakaupa og var lokið við 13 þeirra.
    Tafla 47 sýnir stöðu hvers verkefnaflokks árið 1999. Í fremsta dálki er flugmálaáætlun ársins 1999 samkvæmt þingsályktun. Næst eru þær breytingar sem orðið hafa frá fyrra ári, hvort um er að ræða inneign eða skuld á viðkomandi verkefnaflokki, eða aðrar tilfærslur. Í þriðja dálkinum kemur svo fram hversu mikið fé er til ráðstöfunar í einstakar framkvæmdir 1999. Fjórði dálkurinn sýnir framkvæmdakostnað ársins samkvæmt bókhaldi í árslok. Þá kemur fram greiðslustaða hvers verkefnaflokks í árslok 1999. Hafa ber í huga að verkefnum er oft ekki lokið í árslok og færast því fjármunir yfir á næsta ár og einnig að gerðar eru ýmsar skuldbindingar sem ekki koma til greiðslu fyrr en árið eftir.

Tafla 47. Greiðslustaða verkefnaflokka í árslok 1999.
Verkefnaflokkar Flugmála-
áætlun
Breyting Til fram-
kvæmda
Fram-
kvæmda-
kostnaður
Greiðslu-
staða
í árslok
Flugbrautir og hlöð 129 11,2 140,2 154,7 .14,5
Byggingar 84 49,8 133,8 138,4 .4,6
Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 52 14,3 66,3 60,9 5,4
Flugumferðar- og
flugleiðsögubúnaður

73

27,7

100,7

24,2

76,5
Annar kostnaður 92 .2,0 90,0 78,9 11,1
Flugstöð Leifs Eiríkssonar 55 0,0 55,0 55,0 0,0
Til rekstrar flugvalla 113 0,0 113,0 113,0 0,0
Samtals 598 101,0 699,0 625,1 73,9

4.1 Reykjavík.
     Flugbrautir og hlöð. Lokið var undirbúningi við endurbætur flugbrauta og flughlaða á Reykjavíkurflugvelli á árinu, þ.e. hönnun, gerð útboðsgagna og frummatsskýrslu.
    Fyrsti áfangi verksins, endurbætur flugbrautanna, var boðinn út á árinu og samið við lægstbjóðanda, sem var Ístak hf. Framkvæmdir hófust um haustið við fráveitukerfi vallarins meðfram flugbraut 14-32 og voru þær langt komnar um áramótin.
     Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Flugbrautarljós á braut 14-32 voru flutt til og lagfærð á árinu.
    Heildarkostnaður við verkefnið á árinu var 86,5 millj. kr.

4.2 Akureyri.
     Flugbrautir og hlöð. Gerðar voru lagfæringar á malbiki flugbrautarinnar. Kostnaður varð 3,1 millj. kr.
     Byggingar. Á Akureyrarflugvelli var unnið að undirbúningi og hönnun þriðja áfanga stækkunar og endurbóta flugstöðvarinnar, þ.e. miðhluta hússins, og var lokið við hann á árinu. Framkvæmt var fyrir 6,9 millj. kr.
     Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Unnið var að endurnýjun flugbrautarljósa. Ráðgert er að endurnýja kant-, enda- og aðflugshallaljós. Endurbyggða ljósakerfið verður samkvæmt CAT- 1 aðflugsstaðli. Í árslok var búið að koma fyrir ljósaundirstöðum og ljúka við röralögn þannig að jarðvinnu er að mestu lokið. Eftir er uppsetning ljósanna. Framkvæmt var fyrir 13,6 millj. kr. á árinu.

4.3 Vestmannaeyjar.
     Byggingar. Lokið var við stækkun og endurbætur við flugstöðina í Vestmannaeyjum á árinu. Framkvæmt var fyrir 82,6 millj. kr. Kostnaður við framkvæmdina er orðinn 91,0 millj. kr. og hefur farið verulega fram úr kostnaðaráætlun hönnuða.
     Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Lokið var við fyrsta áfanga endurnýjunar flugbrautarljósa á Vestmannaeyjaflugvelli. Samhliða var lokið við lagningu stofnlagnakerfis um flugvöllinn. Heildarkostnaður var 28,0 millj. kr.
    Vararafstöð Vestmannaeyjaflugvallar var endurnýjuð. Rafstöðin sem þjónaði Reykjavíkurflugvelli áður er 100 KVA að stærð og þjónar öllum búnaði í flugturni, tækjageymslu og tækjahúsi á Sæfelli, að undanskildum hitakerfum. Heildarkostnaður var 2,6 millj. kr.
    Hafist var handa við endurbætur á flugturninum í Vestmannaeyjum. Ráðgert er að endurnýja turnhvelfingu og klæða húsið að utan. Samhliða verða allir gluggar og hurðir endurnýjaðar. Lokið var við að klæða húsið að utan og er turnhvelfingin tilbúin, en vegna aðstæðna í Vestmannaeyjum var ekki unnt að ljúka verkinu. Framkvæmdakostnaður á árinu var 6,0 millj. kr.

4.4 Egilsstaðir.
     Byggingar. Lokið var við síðasta áfanga stækkunar og endurbóta á flugstöðinni á Egilsstaðaflugvelli. Verkið var boðið út og var samið við lægstbjóðanda. Þar með er endurbótum og stækkun flugstöðvarinnar á Egilsstöðum að fullu lokið. Framkvæmt var fyrir 14,2 millj. kr. á árinu.

4.5 Ísafjörður.
     Flugbrautir og hlöð. Á árinu var sett nýtt yfirlag klæðningar á flugbrautina. Verkið var boðið út í tvennu lagi, annars vegar efnisvinnsla og hins vegar útlögn klæðningar. Samið var við lægstbjóðendur í báðum tilfellum, við Tak ehf. um efnisvinnslu og Klæðningu hf. um útlögn. Kostnaður við verkið var samtals 31,3 millj. kr.
     Byggingar. Nauðsynlegt reyndist að endurnýja þakdúk á flugstöðinni á Ísafjarðarflugvelli. Verkið var unnið á miðju sumri. Heildarkostnaður varð 4,8 millj. kr.

4.6 Hornafjörður.
     Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Hafist var handa við uppsetningu aðflugsljósa úr norðri. Um áramót var jarðvinnu lokið og áætlað að taka ljósin í notkun á fyrsta ársfjórðungi 2000. Framkvæmdakostnaður varð 2,5 millj. kr. á árinu.
    Þá var gengið frá kaupum á sjálfvirkri veðurstöð sem sett verður upp í Langhólmanesi við Hornafjarðarflugvöll. Stöðin gerir sjálfvirkt hefðbundnar veðurathuganir, þ.m.t. mælir hún skýjahæð, skyggni, úrkomu, rakastig og loftþrýsting. Upplýsingar frá stöðinni eru veittar gegnum radíó og síma. Framkvæmdakostnaður var 4,5 millj. kr.

4.7 Húsavík.
     Byggingar. Lokið var við byggingu tækjageymslu á Húsavíkurflugvelli. Kostnaður varð 14,9 millj. kr. og heildarkostnaður við tækjageymsluna er því 37,3 millj. kr.

4.8 Sauðárkrókur.
    Engar framkvæmdir voru á Sauðárkróksflugvelli árið 1999.

4.9 Bíldudalur.
    Engar framkvæmdir voru á Bíldudalsflugvelli árið 1999.

4.10 Grímsey.
     Byggingar. Lokið var byggingu nýrrar flugstöðvar í Grímsey. Flugstöðin var stækkuð frá upphaflegum áætlunum þar sem samningar við Íslandspóst tókust um samnýtingu húsnæðisins. Heildarkostnaður varð 15,3 millj. kr. og hækkaði nokkuð frá því sem áður hafði verið gert ráð fyrir, vegna samnýtingarinnar.

4.11 Siglufjörður.
    Engar framkvæmdir voru á Siglufjarðarflugvelli árið 1999.

4.12 Þórshöfn.
    Engar framkvæmdir voru á Þórshafnarflugvelli árið 1999.

4.13 Vopnafjörður.
    Engar framkvæmdir voru á Vopnafjarðarflugvelli árið 1999.

4.14 Hólmavík.
    Engar framkvæmdir voru á Hólmavíkurflugvelli árið 1999.

4.15 Þingeyri.
     Flugbrautir og hlöð. Á Þingeyrarflugvelli var unnið að endurbótum á flugbrautinni. Jarðvegsskipti voru gerð á neðra og efra burðarlagi og sett nýtt malarslitlag. Verkið var boðið út og samið við lægstbjóðanda, sem var Norðurtak ehf. Heildarkostnaður varð 33,8 millj. kr.

4.16 Gjögur.
    Engar framkvæmdir voru á Gjögursflugvelli árið 1999.

4.17 Mývatn.
    Engar framkvæmdir voru á Mývatnsflugvelli árið 1999.

4.18 Flugumferðar- og flugleiðsögubúnaður.
     Upplýsingakerfi. Árið 1999 var valinn nýr búnaður til útgáfu upplýsingabókar flugmanna og til hönnunar og teikningar aðflugsferla. Búnaðurinn sem varð fyrir valinu er frá breska fyrirtækinu SERCO. Ekki tókst að ganga frá undirritun samninga fyrir áramót þannig að allur kostnaður fellur á árið 2000. Kostnaður árið 1999 var 0,2 millj. kr.
     GPS/WAAS/NAAN/ADS/Aðflugsbúnaður. Unnið var að hönnun og prófun á GPS-grunnaðflugi. Nú liggur fyrir aðflug um 50% flugvalla en kortagerð er nokkuð á eftir. Dregið var úr verkhraða þar sem ljóst er að flugrekendur hafa ekki tækjavæðst eins hratt og búist var við. Heildarframkvæmdakostnaður var 10,7 millj. kr.
     Veðurupplýsingakerfi. Unnið er að vali á úrvinnslukerfi fyrir veðurmælibúnað á flugvöllum. Fyrir valinu varð búnaður frá finnska fyrirtækinu VAISALA. Fyrsta kerfið kemur til landsins árið 2000 þannig að mestur hluti kostnaðarins fellur á það ár. Framkvæmdakostnaður árið 1999 var 0,1 millj. kr.
     Flugprófanabúnaður. Unnið var áfram að endurnýjun flugprófanabúnaðar. Aðallega er stefnt að bættri úrvinnslu gagna. Heildarkostnaður ársins 1999 var 1,9 millj. kr.
     Rannsóknarverkefni. Á árinu var áfram unnið að mælingum og úrvinnslu hljóðmælinga umhverfis Reykjavíkurflugvöll. Nú eru hljóðmælar við aðflugsleiðir inn á tvær flugbrautir. Heildarkostnaður var 2,0 millj. kr.
     Ýmis búnaður. Þessi liður er nýttur til ýmissa tilfallandi verkefna. Á árinu 1999 var hann meðal annars nýttur til endurnýjunar símstöðvarinnar á Akureyrarflugvelli, lagfæringar á helgunarsvæði aðflugsstefnusendis á Húsavíkurflugvelli o.fl. Heildarkostnaður var 3,2 millj. kr.

Fylgiskjal I.


Sundurliðun framkvæmda 1999 (millj. kr.).
Staður
    Verkefnaflokkur
Flugmála-
áætlun
Breyting Til fram-
kvæmda
Fram-
kvæmda-
kostnaður
Greiðslu-
staða
í árslok
4.1    Reykjavík
    1. Flugbrautir og hlöð 95 8,6 103,6 78,8 24,8
    2. Byggingar 10 10,0 0,0 10,0
    3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 0 7,7 7,7 7,7 0,0
4.2    Akureyri
    1. Flugbrautir og hlöð 0 0,0 3,1 .3,1
    2. Byggingar 27 4,5 31,5 6,9 24,6
    3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 10 3,6 13,6 13,6 0,0
4.3    Vestmannaeyjar
    2. Byggingar 25 40,8 65,8 82,6 .16,8
    3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 20 1,4 21,4 30,9 .9,5
4.4    Egilsstaðir
    1. Flugbrautir og hlöð 4 .4,0 0,0 4,7 .4,7
    2. Byggingar 15 .0,1 14,9 14,2 0,7
4.5    Ísafjörður
    1. Flugbrautir og hlöð 0 0,0 31,3 .31,3
    2. Byggingar 0 0,0 4,8 .4,8
    3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 0 1,7 1,7 0,2 1,5
4.6    Hornafjörður
    1. Flugbrautir og hlöð 5 .0,5 4,5 2,1 2,4
    3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 5 5,8 10,8 8,3 2,5
4.7    Húsavík
    2. Byggingar 7 .2,1 4,9 14,9 .10,0
    3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 10 0,8 10,8 0,0 10,8
4.8    Sauðárkrókur 0 0,0 0,0
4.9    Bíldudalur
    3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 2 .1,7 0,3 0,1 0,2
4.10        Grímsey
    2. Byggingar 0 6,7 6,7 15,0 .8,3
    3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 0 0,0 0,1 .0,1
4.11        Siglufjörður 0 0,0 0,0
4.12        Þórshöfn 0 0,0
    1. Flugbrautir og hlöð 10 .8,2 1,8 0,4 1,4
    3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 5 .5,3 0,0 0,0
4.13        Vopnafjörður
    1. Flugbrautir og hlöð 0 0,4 0,4 0,5 .0,1
4.14        Hólmavík 0 0,0 0,0
4.15        Þingeyri
    1. Flugbrautir og hlöð 15 14,9 29,9 33,8 .3,9
4.16        Gjögur 0 0,0 0,0
4.17        Mývatn 0 0,0 0,0
4.18        Flugumferðar- og flugleiðsögubúnaður 73 27,7 100,7 24,2 76,5
4.19        Annar kostnaður 92 .2,0 90,0 78,9 11,1
4.20        Flugstöð Leifs Eirííkssonar 55 55,0 55,0
4.21        Til rekstrar flugvalla 113 113,0 113,0
598 100,7 699,0 625,1 74,0

Fylgiskjal II.


    Eftirfarandi tafla og súlurit sýna fjárveitingar til flugmálaframkvæmda frá því að fyrsta þingsályktun um flugmálaáætlun var samþykkt árið 1988.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Fylgiskjal III.


    Eftirfarandi tafla sýnir hvernig fjárveitingar til einstakra flugvalla skiptast 1988–99. Eins og fram kemur hafa fjárveitingar til Egilsstaðaflugvallar verið mestar á þessum árum, eða sem svarar 28,1% af heildarfjárveitingunum.

Fjárveitingar til flugvallaframkvæmda 1988–99 (þús. kr.).
Framreiknað til núvirðis samkvæmt byggingarvísitölu (239,4 í apríl 2000).
Staður 1988–91 1992–95 1996–99 Samtals Hlutfall
Reykjavík 216.576 60.100 196.779 473.455 10,7%
Akureyri 115.272 122.353 217.908 455.533 10,3%
Vestmannaeyjar 117.047 83.750 93.297 294.094 6,6%
Egilsstaðir 531.714 619.663 93.435 1.244.812 28,1%
Ísafjörður 89.453 51.052 112.319 252.824 5,7%
Hornafjörður 41.573 66.085 64.046 171.704 3,9%
Húsavík 43.210 123.926 67.883 235.019 5,3%
Sauðárkrókur 62.163 112.744 31.320 206.227 4,7%
Patreksfjörður 23.045 47.599 29.246 99.890 2,3%
Bíldudalur 20.770 59.401 19.927 100.098 2,3%
Grímsey 42.755 16.908 11.751 71.414 1,6%
Norðfjörður 42.301 8.581 0 50.882 1,1%
Vopnafjörður 22.590 0 32.119 54.709 1,2%
Siglufjörður 2.425 42.768 0 45.193 1,0%
Þórshöfn 80.811 72.371 34.435 187.617 4,2%
Hólmavík 53.672 14.373 0 68.045 1,5%
Gjögur 20.771 19.392 3.111 43.274 1,0%
Þingeyri 7.732 6.450 30.775 44.957 1,0%
Raufarhöfn 13.797 4.667 0 18.464 0,4%
Kópasker 23.044 1.269 0 24.313 0,5%
Flateyri 19.711 0 0 19.711 0,4%
Mývatn 0 7.090 21.262 28.352 0,6%
Bakkafjörður 1.212 0 0 1.212 0,0%
Borgarfjörður eystri 24.107 0 0 24.107 0,5%
Ólafsfjörður 2.730 0 0 2.730 0,1%
Breiðdalsvík 14.707 0 0 14.707 0,3%
Blönduós 15.069 0 0 15.069 0,3%
Stykkishólmur 5.458 1.269 0 6.727 0,2%
Rif 35.477 5.080 0 40.557 0,9%
Aðrir flugvellir 65.347 24.582 44.313 134.242 3,0%
Samtals 1.754.539 1.571.473 1.103.926 4.429.938 100,0%
Fylgiskjal IV.


    Eftirfarandi tafla sýnir heildarfjárveitingar til einstakra flugvalla 1988–99 ásamt heildarfarþegaflutningum um flugvellina á sama tíma.

Framkvæmdir á flugvöllum 1988–99 (þús. kr.).
Fjöldi farþega sem fóru um flugvellina 1988–99.
Framreiknað til núvirðis samkvæmt byggingarvísitölu (239,4 í apríl 2000).
Staður Fjárhæð Farþegar Framlegð á
hvern farþega
Reykjavík 473.455 4.168.545 114
Akureyri 455.533 1.664.973 274
Vestmannaeyjar 294.094 920.849 319
Egilsstaðir 1.244.812 671.439 1.854
Ísafjörður 252.824 611.853 413
Hornafjörður 171.704 202.856 846
Húsavík 235.019 172.005 1.366
Sauðárkrókur 206.227 150.965 1.366
Patreksfjörður 99.890 58.333 1.712
Bíldudalur 100.098 73.381 1.364
Grímsey 71.414 42.828 1.667
Norðfjörður 50.882 31.087 1.637
Vopnafjörður 54.709 41.863 1.307
Siglufjörður 45.193 42.436 1.065
Þórshöfn 187.617 23.695 7.918
Hólmavík 68.045 10.056 6.767
Gjögur 43.274 8.397 5.154
Þingeyri 44.957 28.563 1.574
Raufarhöfn 18.464 9.162 2.015
Kópasker 24.313 4.468 5.442
Flateyri 19.711 30.741 641
Mývatn 28.352 28.439 997
Bakkafjörður 1.212 776 1.562
Borgarfjörður eystri 24.107 1.491 16.168
Ólafsfjörður 2.730 6.012 454
Breiðdalsvík 14.707 3.068 4.794
Blönduós 15.069 11.247 1.340
Stykkishólmur 6.727 6.647 1.012
Rif 40.557 14.024 2.892
Samtals 4.295.696 9.040.199 475