Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1322, 125. löggjafarþing 468. mál: jöfnunargjald vegna alþjónustu árið 2000.
Lög nr. 72 20. maí 2000.

Lög um jöfnunargjald vegna alþjónustu árið 2000.


1. gr.

     Til að standa straum af fjárframlögum vegna alþjónustu árið 2000 skal innheimta jöfnunargjald skv. 15. gr. laga um fjarskipti, nr. 107/1999, af gjaldskyldri veltu ársins. Gjaldið skal nema 0,18% af bókfærðri veltu eins og hún er skilgreind í 2. mgr. 15. gr. laga um fjarskipti. Heimilt er að ákveða að greitt skuli fyrir fram árið 2000 upp í væntanlega álagningu jöfnunargjalds.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 9. maí 2000.