Ferill 485. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1354 — 485. mál.
Frumvarp til laga
um brunavarnir.
(Eftir 2. umr., 10. maí.)
I. KAFLI
Markmið, gildissvið og skilgreiningar.
1. gr.
Markmið.
2. gr.
Gildissvið.
3. gr.
Skilgreiningar.
Atvinnuhúsnæði: Húsnæði þar sem almenningur kemur saman, dvelur, sækir þjónustu og þar sem hvers konar atvinnustarfsemi fer fram.
Bráð hætta: Þegar ætla má að fólk geti ekki forðað sér til öruggs staðar við eldsvoða eða mengunaróhapp.
Brunahönnun: Sérstök hönnun sem tekur til brunavarna í mannvirkjum.
Brunavarnir: Eldvarnir, starfsemi slökkviliðs og aðrar aðgerðir einstaklinga og fyrirtækja sem mælt er fyrir um í þessum lögum.
Eldsvoði: Þegar eldur er laus og nauðsyn er sérstakra slökkviráðstafana.
Eldvarnir: Allar fyrirbyggjandi aðgerðir sem miða að því að koma í veg fyrir eldsvoða.
Mannvirki: Hvers konar byggingar, ofan jarðar eða neðan.
Mengunaróhapp: Þegar eiturefni eða önnur efni berast, eða kunna að berast, í umhverfið og tafarlaus upphreinsun eða önnur tafarlaus úrræði eru nauðsynleg vegna hættu á tjóni á heilsu fólks, umhverfi og eignum.
Vara: Hvers kyns lausafjármunir, svo sem allar framleiðsluvörur og hráefni.
II. KAFLI
Stjórn og skipan brunamála.
4. gr.
Yfirstjórn brunamála.
5. gr.
Brunamálastofnun.
a. hafa eftirlit með framkvæmd laga þessara og reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim,
b. hafa yfirumsjón með eldvarnaeftirliti og slökkvistarfi sveitarfélaga í þeim tilgangi að tryggja samræmt eftirlit og virkt slökkvistarf á landinu öllu,
c. sjá um kynningar- og fræðslustarf fyrir almenning og slökkvilið og þá sem vinna við brunahönnun mannvirkja,
d. vera byggingaryfirvöldum til ráðgjafar um eldvarnir mannvirkja og brunaöryggi vöru,
e. samþykkja þjónustu- og eftirlitsaðila brunavarna og brunavarnaáætlanir sveitarfélaga,
f. yfirfara brunahönnun nýbygginga, viðbóta og breytinga á mannvirkjum sem slökkviliðsstjóri eða byggingarfulltrúi vísar til stofnunarinnar,
g. fylgjast með og eftir atvikum stunda sjálfstæðar rannsóknir á sviði brunavarna og semja árlega skýrslu um orsakir og afleiðingar eldsvoða,
h. eiga samstarf við hliðstæðar stofnanir í nágrannalöndunum og fylgjast með framförum og nýjungum á sviði brunavarna,
i. gera tillögur til ráðuneytis um breytingar á reglum um brunamál eftir því sem tilefni gefst til.
Ráðherra getur með reglugerð kveðið nánar á um verkefni og starfsemi Brunamálastofnunar.
6. gr.
Samræming brunavarna.
7. gr.
Brunamálaráð.
Brunamálaráð er Brunamálastofnun til faglegrar ráðgjafar um þá þætti sem falla undir lögin. Ráðherra skal leita álits ráðsins um lagabreytingar og stefnumarkandi reglugerðir samkvæmt lögum þessum.
Ráðherra setur ráðinu starfsreglur að fengnum tillögum þess.
8. gr.
Brunamálastjóri.
9. gr.
Brunamálaskóli.
Ráðherra skipar þriggja manna skólaráð til fjögurra ára í senn, og jafnmarga menn til vara, sem er Brunamálastofnun til ráðgjafar um fagleg og rekstrarleg málefni skólans og ber ábyrgð gagnvart brunamálastjóra á framkvæmd og starfsemi Brunamálaskólans. Skólaráð skal í upphafi árs leggja fyrir brunamálastjóra til samþykktar starfsáætlun fyrir skólann. Samband íslenskra sveitarfélaga og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna tilnefna hvort sinn fulltrúa í skólaráð og skal ráðherra skipa formann.
Ráðherra setur reglugerð um starfsemi Brunamálaskólans og hlutverk skólaráðs.
10. gr.
Ábyrgð sveitarstjórna.
III. KAFLI
Eftirlit og skyldur sveitarfélaga.
11. gr.
Starfsemi slökkviliðs.
Sveitarfélögum ber að sjá um að nægilegt vatn og vatnsþrýstingur sé fyrir hendi til slökkvistarfs og fyrir sérstakan slökkvibúnað þar sem hans er krafist, t.d. úðakerfi í meiri háttar byggingum. Í sveitarfélagi þar sem vatnsöflun er erfið skal leita annarra lausna til að tryggja nauðsynlegar brunavarnir.
Í reglugerð skal kveða á um lágmarkskröfur varðandi tækjakost, húsnæði og mannafla slökkviliða, svo og vatnsöflun til slökkvistarfa. Jafnframt skal í reglugerð kveða á um búnað og þjálfun slökkviliðsmanna vegna mengunaróhappa á landi að fengnum tillögum Brunamálastofnunar í samráði við Hollustuvernd ríkisins.
12. gr.
Eldvarnaeftirlit sveitarfélaga.
a. hafa í samvinnu við byggingarfulltrúa eftirlit með því að nýbyggingar fullnægi kröfum samkvæmt lögum og reglugerðum um brunavarnir áður en notkun þeirra er heimiluð,
b. gera úttekt á mannvirkjum í notkun og gera kröfur um nauðsynlegar úrbætur á brunavörnum til að vernda líf, heilsu fólks, umhverfi og eignir,
c. leiðbeina fyrirtækjum og stofnunum eftir atvikum um hvaðeina er varðar brunavarnir og eldsvoða vegna viðkomandi starfsemi,
d. hafa eftirlit með því að eigendur og forráðamenn atvinnuhúsnæðis sinni skyldum sínum um brunavarnir samkvæmt lögum og reglugerðum í samræmi við leiðbeiningar sem Brunamálastofnun gefur út,
e. halda skrá yfir öll mannvirki og aðra staði þar sem eldsvoði getur valdið sérstakri hættu á manntjóni eða umtalsverðu tjóni á umhverfi eða öðrum verðmætum.
Heimilt er að fela skoðunarstofum eftirlit skv. 1. mgr., eftir því sem við á.
13. gr.
Brunavarnaáætlun.
Brunamálastofnun gefur út leiðbeiningar um efni og gerð brunavarnaáætlunar.
14. gr.
Samstarf sveitarfélaga.
Tvö sveitarfélög eða fleiri geta samið um sameiginlegt slökkvilið. Sveitarfélagi er einnig heimilt að semja við annað sveitarfélag um að hafa með höndum verkefni og stjórn slökkviliðs að hluta. Um slíkt skal gera skriflegan samning sem skal tilkynna til Brunamálastofnunar.
IV. KAFLI
Slökkvilið og slökkvistarf.
15. gr.
Slökkviliðsstjóri.
Slökkviliðsstjóri skal hafa hlotið löggildingu sem slökkviliðsmaður, sbr. 17. gr., og starfað að lágmarki í eitt ár í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður eða hafa háskólamenntun með sérmenntun í brunamálum. Fáist ekki slökkviliðsstjóri til starfa sem uppfyllir framangreind hæfisskilyrði er sveitarstjórn heimilt að höfðu samráði við Brunamálastofnun að ráða slökkviliðsstjóra tímabundið til starfa, þó ekki lengur en til tveggja ára í senn.
Semji sveitarfélög um sameiginlegt slökkvilið, sbr. 14. gr., skulu viðkomandi sveitarfélög ráða slökkviliðsstjóra sem er yfirmaður slökkviliðs á svæðinu.
16. gr.
Skyldur slökkviliðsstjóra.
Slökkviliðsstjóri stjórnar slökkvistarfi við eldsvoða og hefur stjórn á vettvangi við mengunaróhöpp á landi. Við þessi störf er löggæslulið og opinberir eftirlitsaðilar undir yfirstjórn slökkviliðsstjóra. Lögregla sér slökkviliði fyrir greiðum aðgangi að vettvangsstað, stöðvar umferð um nærliggjandi götur, girðir af svæði sem slökkvilið þarf til að gegna störfum sínum, verndar brunarústir sem rannsaka þarf eða bjarga verðmætum úr og varðveitir muni sem bjargað er frá bruna þar til þeir eru afhentir réttum aðila.
Slökkviliðsstjóri skal tilkynna án tafar mengunaróhöpp til heilbrigðiseftirlits.
Slökkviliðsstjóra ber að sjá um fræðslu slökkviliðsmanna og þjálfun þeirra í brunavörnum og viðbrögðum við mengunaróhöppum og að haldnar séu reglubundnar æfingar slökkviliðs.
Slökkviliðsstjóri vinnur brunavarnaáætlun, sbr. 13. gr., á starfssvæði sínu og leggur hana fyrir sveitarstjórn.
17. gr.
Hæfi og löggilding slökkviliðsmanna.
Ráðherra skal að fenginni tillögu Brunamálastofnunar setja reglugerð um menntun og önnur skilyrði til að öðlast löggildingu, svo og um réttindi og skyldur slökkviliðsstjóra og slökkviliðsmanna.
18. gr.
Slysatrygging slökkviliðsmanna.
19. gr.
Þjónustuskylda í slökkviliði.
Sveitarstjórn skipar menn í slökkvilið, sbr. 1. mgr., að fengnum tillögum slökkviliðsstjóra. Um þóknun fyrir störf í slökkviliði fer eftir ákvörðun sveitarstjórnar að höfðu samráði við samtök slökkviliðsmanna.
Í sveitarfélögum þar sem slökkvilið er skipað fastráðnum starfsmönnum má takmarka skyldur skv. 1. og 2. mgr. eða fella þær niður.
20. gr.
Sérstök heimild slökkviliðs.
Heimilt er slökkviliði, lögreglu eða þeim sem þessir aðilar kveðja til að fjarlæga hvern þann sem truflar slökkvistarf eða gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja starf slökkviliðs.
Slökkviliði er heimilt að veita aðstoð við slökkvistarf eða viðbrögð við mengunaróhappi utan eigin umdæmis. Slökkviliðsstjóri ákveður hverju sinni hvernig aðstoð er veitt án þess að brunavörnum í umdæmi slökkviliðs sé stofnað í hættu að hans mati. Það sveitarfélag sem aðstoðar nýtur greiðir kostnað við hana. Verði ágreiningur um kostnað skal hann ákveðinn af dómkvöddum matsmönnum.
V. KAFLI
Almennar skyldur.
21. gr.
Skylda til að koma í veg fyrir eða takmarka tjón
af völdum eldsvoða og mengunaróhappa.
Þegar eldsvoða ber að höndum er hverjum manni skylt að leyfa aðgang að húsi sínu og lóð og una því að brotið verði niður og rutt burt því sem til fyrirstöðu er við slökkvistarf. Heimilt er að rífa niður byggingar ef slökkviliðsstjóri álítur það nauðsynlegt til að stöðva útbreiðslu elds. Slökkvilið hefur rétt til að nota öll tæki og áhöld sem til næst og að gagni mega koma við slökkvistarf þegar eldsvoða ber að höndum.
Fjártjón sem hlýst af ráðstöfunum skv. 2. mgr. telst brunatjón og skal bætt af viðkomandi vátryggingafélagi sé eign brunatryggð. Sveitarstjórn greiðir kostnað sem kann að koma til vegna nauðsynlegra aðgerða við framkvæmd slökkvistarfs og ekki er greiddur af vátryggingafélagi.
22. gr.
Meðferð elds og eldfimra efna.
VI. KAFLI
Skyldur eigenda og forráðamanna mannvirkja.
23. gr.
Brunavarnir mannvirkja.
Eigandi og eftir atvikum forráðamaður mannvirkis ber ábyrgð á eigin brunavörnum, að þær séu virkar og að haft sé reglubundið eftirlit með þeim. Jafnframt er þeim skylt að hlíta fyrirmælum eftirlitsmanna sveitarfélaga og opinberra stofnana um úrbætur sem eiga sér stoð í lögum og reglugerðum um brunavarnir, byggingarmál, öryggismál, hollustuhætti og mengunarvarnir og eiturefni og hættuleg efni.
Séu breytingar gerðar á mannvirki, eða starfsemi þess breytt þannig að gerðar eru nýjar eða auknar kröfur um brunavarnir í því, er eiganda eða forráðamanni skylt að fá til þess samþykki byggingarnefndar og jafnframt að gera viðeigandi ráðstafanir til að kröfum um brunavarnir sé fullnægt fyrir hið breytta mannvirki eða hina breyttu starfsemi. Áður en byggingarnefnd veitir samþykki sitt skal hún leita álits slökkviliðsstjóra.
24. gr.
Sérstök eldhætta í mannvirki.
Sé um að ræða mannvirki sem þegar er byggt og er í rekstri og þar sem af fyrirhugaðri starfsemi stafar sérstök eldhætta eða þar sem margir starfa, koma saman, fara um eða dveljast eða þar sem hætta er á stórfelldu eignatjóni í eldsvoða skal slökkviliðsstjóri gera úttekt á brunavörnum þess, gera kröfu um úrbætur ef ástæða er til og leggja hana fyrir eiganda eða forráðamann. Sé brunavörnum slíks mannvirkis í veigamiklum atriðum ábótavant getur slökkviliðsstjóri eða byggingarfulltrúi gert kröfu um að gerð sé brunahönnun á mannvirkinu.
Slökkviliðsstjóri getur að höfðu samráði við sveitarstjórn lagt svo fyrir að í mannvirkjum, sbr. 2. mgr., séu gerðar sérstakar ráðstafanir til brunavarna, t.d. með uppsetningu á sérhæfðum búnaði til viðvörunar- og slökkvistarfs og þjálfun tiltekinna starfsmanna í brunavörnum og slökkvistarfi. Slíkar ráðstafanir skulu koma fram í brunavarnaáætlun. Eigandi mannvirkis greiðir kostnað af slíkum ráðstöfunum.
Ráðherra skal að fengnum tillögum Brunamálastofnunar setja reglugerð um brunahönnun mannvirkja.
25. gr.
Kröfur til brunaöryggis vöru.
Hafi slík vara ekki fullgilda viðurkenningu á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. 1. mgr., skal sá sem framleiðir, flytur inn eða selur vöruna leita viðurkenningar hjá Brunamálastofnun áður en varan er sett á markað hér á landi. Kostnaður vegna beiðni um viðurkenningu skal borinn af þeim sem óskar viðurkenningar.
Brunamálastofnun sker úr um ágreining vegna notkunarsviðs vöru.
Telji Brunamálastofnun að vara fullnægi ekki kröfum skv. 1. mgr. er stofnuninni heimilt að banna sölu hennar. Um málsmeðferð Brunamálastofnunar og réttarfarsúrræði vegna sölubanns fer eftir ákvæðum IV. og V. kafla laga nr. 134/1995, um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, eftir því sem við á.
VII. KAFLI
Tilkynningar um eldsvoða og rannsóknir.
26. gr.
Tilkynningarskylda.
27. gr.
Lögreglurannsókn.
Að lokinni rannsókn sendir lögreglan afrit af rannsóknargögnum til Brunamálastofnunar, hlutaðeigandi slökkviliðsstjóra og vátryggingafélags nema öðruvísi sé mælt fyrir um í lögum.
28. gr.
Rannsókn Brunamálastofnunar.
Vátryggingafélög skulu senda Brunamálastofnun upplýsingar ár hvert um bætt tjón af völdum bruna og mengunaróhappa á landi.
VIII. KAFLI
Þvingunarúrræði og viðurlög.
29. gr.
Aðgerðir til að knýja fram úrbætur.
Slökkviliðsstjóri getur beitt eftirfarandi aðgerðum til að knýja fram úrbætur vegna mannvirkis í notkun:
1. veitt skriflega áminningu og tilhlýðilegan frest til úrbóta,
2. fyrirskipað öryggisvakt á kostnað eiganda eða forráðamanns og veitt skriflega áminningu og tilhlýðilegan frest til úrbóta,
3. bannað notkun mannvirkis að hluta eða að öllu leyti þar til úr hefur verið bætt og krafist lokunar.
Að fengnu samþykki sveitarstjórnar getur slökkviliðsstjóri ákveðið að framkvæmdar verði nauðsynlegar úrbætur á kostnað eiganda eða forráðamanns mannvirkis. Kostnað má innheimta með fjárnámi.
30. gr.
Öryggisvakt.
31. gr.
Lokun mannvirkis.
Slökkviliðsstjóri skal tafarlaust tilkynna hlutaðeigandi sveitarstjórn, eiganda og/eða forráðamanni mannvirkis fyrirhugaða lokun. Að því loknu skal lögreglustjóri loka mannvirki þar til gerðar hafa verið viðeigandi úrbætur að mati slökkviliðsstjóra og lögreglustjóra.
32. gr.
Dagsektir.
33. gr.
Íhlutun Brunamálastofnunar og ráðherra.
Telji Brunamálastofnun að sveitarstjórn sinni ekki skyldu sinni samkvæmt lögum þessum eða reglugerðum settum samkvæmt þeim ber stofnuninni að undangenginni viðvörun til sveitarstjórnar að tilkynna það umhverfisráðuneytinu. Telji ráðherra að sveitarstjórn sinni ekki skyldu sinni getur ráðuneytið gripið til nauðsynlegra aðgerða á kostnað viðkomandi sveitarfélags.
34. gr.
Refsingar.
Nú er brot framið í starfsemi lögaðila og má þá gera lögaðilanum fésekt skv. II. kafla A almennra hegningarlaga. Lögaðili ber ábyrgð á greiðslu sektar sem starfsmaður hans er dæmdur til að greiða vegna brota á lögum þessum, enda séu brot hans framin í starfi hans hjá lögaðilanum.
35. gr.
Málsmeðferð.
IX. KAFLI
Málsmeðferð og ýmis ákvæði.
36. gr.
Ágreiningur um framkvæmd laganna.
Ef upp kemur ágreiningur á milli slökkviliðsstjóra annars vegar og eiganda eða forráðamanns hins vegar um úrræði þau sem mælt er fyrir um í 29.–32. gr. er heimilt að vísa þeim ágreiningi til Brunamálastofnunar.
Heimilt er að kæra ákvörðun sem tekin er á grundvelli VIII. kafla til ráðherra og skal það gert innan mánaðar frá því að hún var tilkynnt.
37. gr.
Brunavarnagjald.
Þeir sem innheimta brunavarnagjaldið skulu hafa staðið ríkissjóði skil á gjaldinu innan þriggja mánaða frá innheimtu þess. Endanlegt uppgjör gjaldsins fyrir hvert ár fer fram þegar ársreikningar þeirra sem annast innheimtu þess liggja fyrir.
Ráðherra setur nánari reglur um innheimtu brunavarnagjalds í reglugerð.
38. gr.
Námsstyrkir.
Brunamálastofnun annast úthlutun styrkja að fenginni umsögn brunamálaráðs. Ráðherra setur ákvæði um styrki og úthlutun þeirra í reglugerð.
39. gr.
Reglugerðarheimild.
Reglugerð um brunavarnir í samgöngumannvirkjum setur ráðherra að fengnum tillögum Brunamálastofnunar og að fenginni umsögn samgönguráðherra.
Við setningu reglugerða samkvæmt lögum þessum skal hafa samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga um atriði sem varða skyldur sveitarfélaga.
40. gr.
Gildistaka.
Reglugerðir og önnur stjórnvaldsfyrirmæli sem sett eru samkvæmt eldri lögum skulu halda gildi sínu að svo miklu leyti sem þau fara ekki í bága við lög þessi.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
II.
III.
IV.
Endurskoða skal ákvæði laga þessara og annarra laga sem fjalla um byggingarefni og öryggi bygginga, sem og ákvæði reglugerða á þeim byggðum, með það fyrir augum að sameina réttarheimildir um byggingar og önnur mannvirki og einfalda framkvæmd þeirra, þar með að heimila notkun skoðunarstofa í eftirliti með gerð og viðhaldi bygginga og annarra mannvirkja.