Ferill 600. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1370  —  600. mál.




Svar



samgönguráðherra við fyrirspurn Guðmundar Hallvarðssonar um úrbætur í öryggismálum sjómanna.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hafa þær átján tillögur sem nefnd um úrbætur í öryggismálum sjómanna lagði til með bréfi til fyrrverandi samgönguráðherra, dags. 5. júní 1998, verið teknar til meðferðar í ráðuneytinu?
     2.      Hvernig er fyrirhugað að fylgja eftir tillögum nefndarinnar?

    Hinn 30. maí 1997 skipaði samgönguráðherra nefnd fimm alþingismanna er hafði það verkefni að gera áætlun um hvernig fækka mætti sjóslysum með úrbótum í öryggismálum sjómanna og forvarnaaðgerðum. Skyldi nefndin jafnframt gera tillögur um fjármögnun slíkrar áætlunar. Í nefndinni sátu eftirtaldir: Stefán Guðmundsson, Guðjón Guðmundsson, Gísli S. Einarsson, Kristinn H. Gunnarsson og Guðmundur Hallvarðsson, sem skipaður var formaður nefndarinnar. Ritari nefndarinnar var Hálfdán Henrysson, starfsmaður Siglingastofnunar Íslands, tilnefndur af samgönguráðuneyti.
    Hinn 5. júní 1998 lauk nefndin störfum. Í skýrslu nefndarinnar eru talin upp um átján atriði, sem vinna beri að í öryggismálum sjómanna og leitt geti til fækkunar slysa. Þessi atriði eru eftirfarandi:
     1.      Í reglum um vinnuöryggi á fiskiskipum og kaupskipum eru engin ákvæði um eftirlit með slitálagi víra, burðarþoli lása og keðja, blökkum, tromlum og hvers konar öðrum búnaði sem notaður er til hífinga. Engar kröfur eru gerðar til manna um þekkingu á stjórnun krana eða togvinda, hvað þá að ætlast sé til kunnáttu þeirra er gefa stjórnendum slíkra tækja bendingar um tilteknar aðgerðir. Þetta atriði er hér nefnt fyrst þar sem það er meginorsök slysa sem verða á sjó. Krana eða lyftara á bryggju má enginn stjórna nema hafa lokið tilteknu námskeiði á vegum Vinnueftirlits ríkisins og geta gefið og skilið bendingar, t.d. við hífingu. Séu tækin flutt um borð í skip er engrar þekkingar krafist.
                  Siglingastofnun vinnur jafnt og þétt að því að fara yfir lög og reglur um öryggismál sjómanna og gera tillögur um úrbætur. Stuttu eftir að nefnd um úrbætur í öryggismálum sjómanna skilaði skýrslu sinni til samgönguráðherra voru gefnar út tvær reglugerðir á þessu sviði, þ.e. reglugerð nr. 785/1998, um lágmarkskröfur er varða öryggi, hollustuhætti og heilsu við vinnu um borð í fiskiskipum, og reglugerð nr. 786/1998, um ráðstafanir er stuðla að bættu öryggi og heilsu starfsmanna um borð í skipum.
                  Siglingastofnun vinnur um þessar mundir að nánari útfærslu á einstökum ákvæðum reglugerðanna. Við setningu þessara reglugerða var tekið mið af ofangreindri tillögu nefndar um úrbætur í öryggismálum sjómanna.
                  Siglingastofnun hefur hert eftirlit með fyrrnefndum búnaði. Útbúið hefur verið sérstakt skoðunarblað þar sem þessi búnaður er yfirfarinn samkvæmt gátlista.
     2.      Með ólíkindum má teljast að engrar tiltekinnar menntunar skuli krafist af þeim sem skila teikningum af nýsmíði eða breytingum skipa til Siglingastofnunar.
                  Nefnd fjallar nú um þetta atriði og hefur hún ekki lokið störfum.
     3.      Skoða þarf innra skipulag, starfshætti og skilvirkni eftirlits og fyrirbyggjandi starfsemi Siglingastofnunar Íslands. Óeðlilegt er að í svo fjölþættri þjónustu og eftirlitsstarfsemi við íslensk og erlend skip sem fram fer af hálfu stofnunarinnar sé aðeins forstjóri ábyrgur inn á við, út á við og gagnvart ráðherra. Tími er kominn til að gerð sé óháð úttekt á starfsemi og starfsháttum Siglingastofnunar Íslands með tilliti til samruna Siglingamálastofnunar ríkisins og Vita- og hafnamálastofnunar og breytts alþjóðlegs umhverfis.
                  Skipulag Siglingastofnunar er í sífelldri mótun og nú er unnið að sérstöku verkefni er lýtur að stefnumótun og gæðakerfi stofnunarinnar. Þessari vinnu miðar vel áfram.
     4.      Herða þarf viðurlög við því að stjórnendur vélaverkstæða, skipasmiða og dráttarbrauta hefji vinnu við breytingar á skipi áður en samþykki Siglingastofnunar liggur fyrir.
     5.      Í matsal hvers skips skal koma fyrir haffærisskírteini ásamt athugasemdum ef einhverjar eru. Skal skírteinið vera á áberandi stað sem áhöfn hefur greiðan aðgang að.
     6.      Á hættusvæðum um borð í skipum, ofan og neðan þilja, skal mála á þiljur varúðarviðvaranir um slysahættu.
     7.      Leggja þarf þá skyldu á skipstjórnarmenn að skrá öll slys um borð, svo og þau atvik þegar liggur við slysi, og senda þá þegar til útgerðar og rannsóknarnefndar sjóslysa. Þar komi m.a. fram vinnutímaönn þess slasaða.
                  Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp til laga um rannsókn sjóslysa þar sem fjallað er um þetta atriði. Frumvarpið verður væntanlega samþykkt á þessu þingi.
     8.      Verði alvarlegt slys um borð í skipi skal rannsóknarnefnd sjóslysa heimilt að stöðva skipið meðan rannsókn slyssins fer fram.
                  Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp til laga um rannsókn sjóslysa þar sem fjallað er um þetta atriði.
     9.      Útgerð ber ábyrgð á að fulltrúi hennar sjái svo um að verði slys um borð séu strax gerðar viðhlítandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir að það endurtaki sig og hann fari yfir öryggismál um borð ásamt allri áhöfninni.
     10.      Rannsóknarnefnd sjóslysa skal halda sérstaka skrá yfir hvar slys verða og fjöldi þeirra verði skráður á viðkomandi skip. Verði tvö slys eða fleiri um borð í skipi á ári er rannsóknarnefnd sjóslysa skylt að grípa til sérstakra ráðstafana um borð í viðkomandi skipi og fara yfir öryggismál þess með áhöfn og fulltrúa útgerðar.
     11.      Allir þeir sem afla sér menntunar í skipstjórnar- og vélfræðum skulu fá markvissa kennslu í verkstjórn og vinnuhagræðingu og í skýrslugerð vegna tilkynningar um slys.
     12.      Starfsemi rannsóknarnefndar sjóslysa verði verulega breytt og um hana sett lög sambærileg lögum um rannsóknarnefnd flugslysa. Verði megináhersla í starfi nefndarinnar lögð á að upplýsa orsök slysa og vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum. Kunnáttumönnum verði skipað í nefndina án þátttöku hagsmunaaðila og starfsmönnum hennar fjölgað. Skýrsla rannsóknarnefndar sjóslysa komi út t.d. á sex mánaða fresti en jafnframt verði lokaniðurstöður um sjóslys gefnar út jafnóðum og þær liggja fyrir til að nýta megi þær til forvarnastarfa.
                  Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp til laga um rannsókn sjóslysa þar sem tekið er mið af þeim sjónarmiðum sem hér koma fram.
     13.      Til að fá sem gleggsta mynd af atburðarás og aðdraganda að slysi á sjó og með hliðsjón af óeðlilegri slysatíðni meðal sjómanna telur nefndin rétt að hugað sé að bótarétti og slysatryggingum sjómanna. Má ætla að núverandi ástand leiði til misjafnlega nákvæmrar skráningar á slysum og óupplýst séu mál sem annars kynnu að leiða til varúðarráðstafana og úrbóta.
     14.      Nefndinni þykir rétt að endurskoðun fari fram á starfsemi Slysavarnaskóla sjómanna með tilkomu Akraborgar. Við hana má m.a. huga að nýliðafræðslu, eldvörnum og hugsanlegri lagasetningu um skyldu sjómanna til endurmenntunar við skólann á fimm ára fresti.
                  Starfsemi Slysavarnaskóla sjómanna er sífellt til skoðunar, en skólinn annast öryggisfræðslu sjómanna. Ráðuneytið hefur óskað eftir því við Siglingastofnun Íslands að stofnunin geri drög að þjónustusamningi við Slysavarnafélagið Landsbjörg um rekstur Slysavarnaskóla sjómanna til næstu fimm ára.
     15.      Þung viðurlög verði við því ef skráðar öryggis- og björgunaræfingar eru ekki haldnar.
                   Í framhaldi af úttekt sem ráðuneytið lét nýverið gera á framkvæmd öryggismála í farþegaferjum kom í ljós að framkvæmd öryggis- og björgunaræfinga er mjög ábótavant. Ráðuneytið hefur óskað eftir tillögum Siglingastofnunar um þetta efni og ljóst er að taka þarf upp skilvirkt eftirlit með því að öryggis- og björgunaræfingar í íslenskum skipum séu haldnar.
     16.      Hrint verði í framkvæmd samræmdri slysaskráningu á sjómönnum.
                   Eins og fram hefur komið er stefnt að því að samræmt skráningarkerfi slysa verði tekið upp um næstu áramót. Landlæknir verður ábyrgðarmaður slysaskrár Íslands og umsjónarmaður hennar.
     17.      Þá telur nefndin löngu tímabært að gjörbreyta formi sjóprófa, þar sem m.a. verði gerð sú breyting að fimm kunnáttumenn skipi sérstakan sjódóm er rannsaki og kalli til viðkomandi aðila ef um alvarleg sjóslys er að ræða. Gildir þá einu um heimahöfn viðkomandi skips.
                   Í frumvarpi til laga um breytingu á siglingalögum, nr. 34/1985, með síðari breytingum, sem lagt hefur verið fram á Alþingi samhliða frumvarpi til laga um rannsókn sjóslysa er lagt til að fyrirkomulagi sjóprófa verði breytt með því að kveða á um að ekki verði lengur skylda að halda sjópróf heldur skuli sjópróf aðeins haldin ef nánar tilgreindir aðilar óska eftir því.
     18.      Til fjármögnunar á auknu umfangi rannsóknarnefndar sjóslysa og Slysavarnaskóla sjómanna, svo og sérstaks sjódóms komi tvennt til:
                  a.      sérstakt gjald úr tryggingasjóði fiskiskipa,
                  b.      sérstök greiðsla af hverju brúttótonni íslenskra skipa, svo og þeirra skipa undir erlendum fána sem eru í eigu eða leigu íslenskra útgerða og alfarið eða að hluta til eru mönnuð íslenskum sjómönnum.
                   Ekki hefur verið tekin afstaða til þessa atriðis af hálfu ráðuneytisins.

    Ráðuneytið hefur sett af stað vinnu við gerð langtímaáætlunar í öryggismálum sjómanna. Reynt verður að horfa fram í tímann til að sjá fyrir hvaða kröfur þarf að gera. Þriggja manna verkefnisstjórn, sem hélt sinn fyrsta fund 6. mars 2000, mun halda utan um verkið og er hún skipuð fulltrúum frá samgönguráðuneyti, Siglingastofnun Íslands og Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
    Sérstakur starfsmaður hefur verið ráðinn til verksins til að safna gögnum, vinna úr tillögum, gera rannsóknir og greina upplýsingar. Verkefni verða metin og þeim forgangsraðað eftir mikilvægi og umfangi. Á þessum grundvelli verða markmið sett og framkvæmdaáætlun gerð til ársins 2005.
    Öryggisáætlunin verður unnin í nánu samstarfi við hagsmunaaðila og mun siglingaráð, sem skipað er fulltrúum þeirra hagsmunaaðila sem að siglingamálum koma, leggja meginlínurnar í áætluninni. Miðað er við að þingsályktunartillaga verði lögð fram á Alþingi og þegar hún hefur verið samþykkt þar komi öryggisáætlunin til framkvæmda. Verkefnisstjórn muni síðan fylgjast með framgangi áætlunar, fylgja málum eftir og endurskoða hana ef þörf krefur.
    Á heimasíðu Siglingastofnunar Íslands, www.sigling.is/oryggi2000, er kynning á verkefninu og er öllum sem láta sig öryggismál sjómanna varða gefinn kostur á að koma eigin sjónarmiðum á framfæri. Verkefnisstjórnin óskar eftir að innsendar tillögur um áherslu- og forgangsverkefni séu flokkaðar sérstaklega eftir forskrift sem sýnd er á heimasíðunni og að þær séu sendar með tölvupósti á netfangið: [email protected]
    Allir áhugasamir eru hvattir til að hugleiða og skrá niður hvernig þeir vilja sjá öryggismál á sjó þróast næstu árin, ásamt því að tjá sig um viðhorf, áherslur og tillögur um vægi brýnustu verkefna sem ráðast þarf í. Stefnur og markmið í öryggismálum sem sett verða mótast af þeim svörum sem berast, ásamt annarri undirbúningsvinnu sem verkefnisstjórnin vinnur að.
    Við mótun langtímaáætlunar verður sérstaklega horft til þeirra atriða sem spurt var um og tillagna sem fram komu hjá nefnd um úrbætur í öryggismálum sjómanna.

Hásetafræðsla.
    Bréf hefur borist frá Siglingastofnun Íslands, dags. 8. október 1998, í framhaldi af bréfi ráðuneytisins, dags. 23. júní 1998, um að Siglingastofnun skili öryggisfræðslunefnd tillögum sínum um fyrirkomulag hásetafræðslu fyrir 1. september sl.
    Í bréfi Siglingastofnunar kemur fram vísun til starfa STCW-nefndar og þeirra tillagna hennar í áfangaskýrslu frá 9. september 1998 þar sem lagt er til að starfsgreinaráð sjávarútvegs- og siglingagreina geri tillögur til menntamálaráðherra að fenginni umsögn Siglingastofnunar Íslands um námskrár, í samræmi við kröfur alþjóðasamninga, fyrir háseta sem starfa á íslenskum skipum.
    Starfsgreinaráð sjávarútvegs- og siglingagreina starfar samkvæmt lögum um framhaldsskóla og þar eiga sæti fulltrúar útgerða og hagsmunasamtaka sjómanna.
    Með bréfi, dags. 16. febrúar 2000, fól ráðuneytið Siglingastofnun Íslands að vinna að gerð langtímaáætlunar um öryggismál sjómanna í samráði við hagsmunaaðila og siglingaráð. Sérstök verkefnisstjórn var skipuð fyrir þetta verkefni og sitja í henni fulltrúar ráðuneytisins, Siglingastofnunar og Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Nú er unnið að gagnasöfnun fyrir áætlunina og mun skýrsla þingmannanefndarinnar frá 5. júní 1998 að sjálfsögðu verða meðal annarra gagna. Stefnt er að því að ljúka áætluninni á komandi hausti.