Ferill 649. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1384  —  649. mál.




Skýrsla



samgönguráðherra um störf úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála .

(Lögð fyrir Alþingi á 125. löggjafarþingi 1999–2000.)



I. Almennt.
    Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála var stofnuð á grundvelli 8. gr. laga nr. 147/1996, um Póst- og fjarskiptastofnun. Þar var ákveðið að ákvarðanir og úrskurði Póst- og fjarskiptastofnunar mætti kæra til sérstakrar nefndar, úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Úrskurðir nefndarinnar eru endanlegir á stjórnsýslustigi. Nefndin starfar nú á grundvelli 10. gr. laga nr. 110/1999, um Póst- og fjarskiptastofnun. Á árinu var sett reglugerð um starfsemi nefndarinnar, sbr. B-deild Stjórnartíðinda, nr. 378/1999. Reglugerðin skýrir nánar málsmeðferð við kæru ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar til úrskurðarnefndarinnar.
    Úrskurðarnefndin nýtur ekki sérstakrar fjárlagaheimildar þar sem útgjöld vegna starfa hennar eru mjög ófyrirsjánleg, eðli málsins samkvæmt.
    Í úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála sitja þrír menn sem skipaðir eru til fjögurra ára af samgönguráðherra og jafnmargir til vara. Hinn 26. janúar 1998 skipaði samgönguráðherra úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála og varamenn þeirra. Talsverðar breytingar urðu á skipan nefndarinnar á árinu. Hinn 10. maí 1999 óskaði formaður nefndarinnar, Jón L. Arnalds, lausnar frá störfum en Ólafur Axelsson hrl. var skipaður formaður í hans stað 20. maí 1999. Guðjón Eyjólfsson endurskoðandi óskaði lausnar úr nefndinni 28. júlí og 30. ágúst var Heimir Haraldsson endurskoðandi skipaður í hans stað.
    Hinn 30. júlí 1999 óskaði Hjörleifur Pálsson endurskoðandi lausnar sem varamaður í nefndinni og 30. ágúst var Sæmundur Valdimarsson endurskoðandi skipaður í hans stað, til 26. janúar 2002. Nú skipa úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála Ólafur Axelsson hrl., formaður,     Heimir Haraldsson endurskoðandi og Guðjón Kárason verkfræðingur. Varamenn eru Ólafur Garðarsson hrl., Sæmundur Valdimarsson endurskoðandi og Þórarinn K. Ólafsson verkfræðingur

II. Störf nefndarinnar árið 1999.
    Árið 1999 kvað nefndin upp tvo úrskurði í málum sem beint var til hennar.

Mál nr. 1/1999, Landssími Íslands hf. gegn Póst- og fjarskiptastofnun.

    Með bréfi Tals hf., dags. 27. nóvember 1998, óskaði hlutafélagið eftir samtengingu vegna útlandasímtala í gegnum símstöð þess. Beiðni Tals fól í sér að farið var fram á það við Landssíma Íslands hf. að sömu samtengigjöld giltu fyrir útlandasímtöl í gegnum útlandasímstöð Tals til og frá neti Landssímans og gilda fyrir útlandasímtöl sem fara í gegnum útlandasímstöð Landssímans til og frá neti Tals. Einnig var farið fram á að gagnkvæm ákvæði giltu um ábyrgð rekststraraðila um innheimtu fyrir notkun viðskiptavina á þjónustu hins rekstraraðilans og uppgjör á samtengingagjöldum. Með bréfi dags. 15. desember 1998 hafnaði Landssíminn beiðni Tals um innheimtu á útlandasímtölum sem fara um útlandasímstöð Tals hf. Lögmaður Tals hf. óskaðið því eftir íhlutun Póst- og fjarskiptastofnunar 21. desember 1998. Beiðnin til Póst- og fjarskiptastofnunar var tvíþætt:
     a.      ákveðið yrði nú þegar til bráðabirgða að Landssími Íslands hf. skyldi verða við beiðni Tals hf. frá 27. nóvember 1998 um samtengingu og innheimtu;
     b.      ákveðið yrði að undangenginni gagnaöflun og öflun sjónarmiða beggja aðila að Landssíma Íslands hf. yrði gert skylt að innheimta samkvæmt beiðni Tals hf. frá 27. nóvember 1998.
    Í ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar sagði að samningur Tals hf. og Landssíma Íslands hf. um samtengigjöld fyrir útlandasímtöl á milli neta Tals hf. og Landssíma Íslands hf., skyldi einnig gilda fyrir útlandaþjónustu Tals hf.
    Í framhaldi af bréfaskriftum Landssíma Íslands hf., Tals hf. og Póst- og fjarskiptastofnunar tók stofnunin svohljóðandi bráðabirgðaákvörðun 31. desember 1998: ,,Til þess að gætt verði jafnræðis á íslenskum markaði fyrir útlandasímaþjónustu skal samningur milli Tals hf. og Landssíma Íslands hf. um samtengingu hins almenna talsímanets Landssíma Íslands hf. við net Tals hf. sem unnið hefur verið eftir einnig gilda fyrir útlandasímaþjónustu Tals hf. Landssími Íslands hf. skal ekki opna fyrir nýja þjónustu til útlanda eða gera breytingar á núverandi útlandasímaþjónustu sinni fyrr en þessi ákvörðun hefur komið til framkvæmda.“
    Landssími Íslands hf. kærði bráðabirgðaákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar til úrskurðarnefndarinnar sem komst að þeirri niðurstöðu í úrskurði uppkveðnum 14. janúar 1999 að framangreinda ákvörðun Póst-og símamálastofnunar til bráðabirgða brysti lagastoð og var hún því felld úr gildi.

Mál nr. 2/1999, Landssími Íslands hf. gegn Póst- og fjarskiptastofnun.

    Hinn 16. maí 1999 kvað Póst- og fjarskiptastofnun upp eftirfarandi úrskurð: Í fyrsta lagi að Landssími Íslands hf. innheimti hjá áskrifendum sínum gjöld Tals hf. fyrir símtöl sem þeir eiga til útlanda með því að velja forskeyti útlandaþjónustu Tals hf., 1010. Ákvæði samtengingarsamnings málsaðila um innheimtu og uppgjör og framkvæmd hans gildi fyrir útlandaþjónustu Tals hf. Í öðru lagi að ákvæði 1. liðar tækju gildi frá og með 1. ágúst 1999 þannig að frá þeim degi gæti Tal hf. boðið öllum áskrifendum Landssíma Íslands hf. útlandaþjónustu í trausti þess að innheimt verði fyrir hana. Í þriðja lagi að Tal hf. skyldi greiða Landssíma Íslands hf. allan útlagðan kostnað við gerð reikninga fyrir útlandaþjónustu Tals hf. Í fjórða lagi að aðilar skyldu semja sín á milli um áhættuþátt innheimtu símreikninga fyrir útlandaþjónustu Tals hf. og skal leggja til grundvallar að Tal hf. beri áhættu af vanskilum. Í fimmta lagi að ákvörðun þessi gilti að lágmarki þangað til áskrifendur í fastaneti Landssíma Íslands hf. ættu þess kost að fastbindast fyrir fram þeim þjónustuveitanda sem þeir vildu að annaðist útlandasímtöl þeirra.
    Landssími Íslands hf. kærði til nefndarinnar þessa ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar. Í úrskurði uppkveðnum 22. september 1999 komst úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála að þeirri niðurstöðu að sú skylda sem ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar hefði í för með sér fyrir Landssíma Íslands hf., þ.e. að annast alla reikningagerð fyrir umrædda þjónustu Tals hf., væri íþyngjandi kvöð fyrir Landssíma Íslands hf., enda þótt greiðslur kæmu fyrir, sem aðeins yrði lögð á samkvæmt skýrri lagaheimild. Slíka heimild væri ekki að finna í lögum um Póst- og fjarskiptastofnun, nr. 147/1996, né fjarskiptalögum, nr. 143/1996. Þá var það mat úrskurðarnefndarinnar að slík heimild verði ekki ráðin ótvírætt af þeim tilskipunum Evrópubandalagsins um samtengingu neta sem teknar hafi verið upp í EES-samninginn, þ.e. 97/33/EB og ONPCOM98-bis (RIO). Því var framangreind ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar felld úr gildi.