Ferill 650. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1385  —  650. mál.




Skýrsla



samgönguráðherra um hafnarframkvæmdir 1999.

(Lögð fyrir Alþingi á 125. löggjafarþingi 1999–2000.)



INNGANGUR

    Framkvæmdir í hafnargerðum á árinu 1999 urðu sem hér segir. Til samanburðar eru tölur fyrra árs.

1999
millj. kr.
1998
millj. kr.
Ríkisstyrktar hafnarframkvæmdir
1.191,9 624,5
Ferjubryggjur
4,7 4,0
Samtals
1.196,6 628,5

    Í skýrslunni hér á eftir er stutt lýsing á framkvæmdum á hverjum stað og sérstakur kafli um rannsóknir. Einnig er fjallað um framkvæmdir við landbrotsvarnir og sagt frá framkvæmdum í höfnum sem ekki hafa notið ríkisstyrks.

RÍKISSTYRKTAR HAFNARFRAMKVÆMDIR

Grundartangi.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir. (Sjá kaflann um hafnarframkvæmdir sem ekki eru ríkisstyrktar.)

Akranes.
    Unnið var að endurbyggingu fremsta hluta grjótvarnar á Aðalhafnargarðinum á Akranesi. Samið var við Suðurverk hf. að undangengnu útboði, en tilboð þeirra var um 59% af kostnaðaráætlun. Verkið var boðið út ásamt sjóvörn í Krókalóni, þar sem hagkvæmt þótti að nýta bæði grjótnámuna og tækjabúnað til beggja verkanna samtímis. Um 3.300 m³ af grjóti var endurraðað og um 7.200 m³ voru unnir í námunni að Kirkjubóli. Verkinu lauk um mánaðamótin október/nóvember, en þá var eftir að ljúka jöfnun á plönum, sem samkomulag var um að yrði gert næsta vor.
    Lokið var við lagnir á Faxabryggju. Verkið var unnið af bæjarveitum Akraness.
    Framkvæmdakostnaður: 16,8 millj. kr.

Borgarnes.
    Engar framkvæmdir.

Snæfellsbær.
     Arnarstapi: Viðlega upp með bryggjunni var dýpkuð. Grafinn burt sandur sem borist hafði að. Samið var við Bjarna Vigfússon um verkið og það unnið í lok mars.
     Rifshöfn: Í janúar var samið við lægstbjóðanda, Bjarna Vigfússon, um endurbyggingu á efsta hluta Norðurgarðs. Jafnframt var samið við verktakann um að gera við tjón utarlega á Norðurgarðinum. Af ýmsum ástæðum tafðist verkið og var því ekki að fullu lokið um áramót. M.a. þurfti að gera hlé meðan athuguð var forn vör sem reyndist vera í garðstæðinu.
    Á hafnaáætlun var gert ráð fyrir malbikun tengibrautar að trébryggju og breikkun þekju við stálþil, en tæki til malbikunar komu ekki til Snæfellsbæjar þetta árið og var þessum verkefnum því frestað.
     Ólafsvík: Keypt var ný innsiglingarbauja frá Tideland gerð SB 138P. Landhelgisgæslan var fengin til að koma baujunni fyrir.
    Frágangi við flotbryggju, sem sett var niður árið 1998, lauk snemma á árinu.
    Í desember voru opnuð tilboð í verkið björgunarstigar og lagnir. Fól það í sér að endurnýja 18 stiga utan á Bátabryggjunni og leggja nýja vatnslögn. Sjö tilboð bárust. Lægsta boð kom frá Sandi og Stáli ehf., 104% af áætlun. Ekki var búið að semja við verktaka um áramót.
    Framkvæmda- og fjármagnskostnaður: 12,4 millj. kr.

Grundarfjörður.
    Á fjárlögum var veitt fé til að hefja undirbúning að lengingu Stórubryggju um 100 m. Unnið var að hönnun og undirbúningi verksins.
    Framkvæmdakostnaður: 0,8 millj. kr.

Stykkishólmur.
    Guðlaugur Einarsson frá Sauðárkróki lauk samningsverki frá síðasta ári við endurbyggingu Steinbryggjunnar. Steypt var ljósamasturshús, gengið frá raflögn og sett upp lýsing á bryggjusvæðið. Auk þess voru björgunarstigar endurbættir á trébryggjum.
    Í júní var boðin út styrking landgangs út á hafskipabryggjuna við Stykkið. Við hönnun verksins kom í ljós að það yrði töluvert kostnaðarsamara en gert var ráð fyrir í hafnaáætlun. Sú aðferð sem valin var fól í sér að hreinsa burt lausa og lélega steypu neðan af burðarbitum og brúargólfi. Síðan þurfti að sandblása og mála steypustyrktarjárn með epoxy og steypa 5– 10 cm þykkt lag utan á undirbygginguna með sérstakri flotsteypu, svokallaðri „súlpaksteypu“. Samið var um verkið við Skipavík hf. í Stykkishólmi sem átti lægsta tilboðið, rúmar 8,9 millj. kr. eða tæplega 90% af kostnaðaráætlun. Vinna hófst í september og var verkinu ekki lokið um áramót.
    Framkvæmdakostnaður: 14,3 millj. kr.

Dalabyggð.
    Á árinu hófst undirbúningur að byggingu smábátahafnar í Búðardal. Hafnarsvæðið var mælt upp, hannaðir skjólgarðar og gerð útboðsgögn.
    Framkvæmdakostnaður: 0,7 millj. kr.

Reykhólahöfn.
    Engar framkvæmdir

Vesturbyggð.
     Brjánslækur: Samið var við Byggi ehf. á Patreksfirði um stækkun á þekju við ferjubryggjuna. Verkið var unnið í september. Steypt var um 100 m² þekja.
     Patreksfjörður: Engar framkvæmdir.
     Bíldudalur: Samið var við Lás ehf. á Bíldudal um að steypa upptökubraut fyrir smábáta. Þetta verk var á áætlun á síðasta ári, en var frestað. Verkið var unnið á tímabilinu ágúst–desember.
    Framkvæmda- og fjármagnskostnaður: 3,6 millj. kr.

Tálknafjörður.
    Samið var við Trésmiðjuna Eik ehf. á Tálknafirði um að steypa upptökubraut fyrir smábáta. Byrjað var á verkinu í september og því lokið um mánaðamótin nóvember–desember. Uppgröftur undan brautinni var notaður ásamt aðfluttu efni til að fylla upp í vikið vestur að skjólgarðinum við smábátahöfnina.
    Gert var ráð fyrir því í hafnaáætlun að ganga frá lögnum og steypa hluta af þekjunni við stálþilið sem byggt var 1995. Ákveðið var að fresta þessari framkvæmd að því undanskildu að lokið var við að steypa upp rafmagnsbrunn og undirstöðu fyrir ljósastaur við þilið. Samið var um þessa verkþætti við Eik ehf. með upptökubrautina.
    Framkvæmdakostnaður: 3,2 millj. kr.

Bolungarvík.
    Boðin var út um miðjan maí 40 m löng flotbryggja ásamt landstöpli og landgangi fyrir bryggjuna. Samið var við Króla ehf. en það fyrirtæki bauð eitt í verkið. Bryggjan var sett niður 40 m frá gömlu flotbryggjunni sunnan Lækjarbryggju. Verkinu lauk í júlí.
    Framkvæmdakostnaður: 8,0 millj. kr.

Ísafjarðarbær.
     Þingeyri: Engar framkvæmdir.
     Flateyri: Á síðasta ári var hafinn undirbúningur að endurbyggingu Hafnarkants. Efni í þilið var keypt frá ARBED, 181 tonn af gerðinni AZ18 og 42 tonn af festingaefni frá Anker Schroeder. Þilið er 70 m langt, nær 25 m fram fyrir gamla þilið og endi er 25 m breiður. Hönnunardýpi er 8 m. Í apríl var boðinn út rekstur stálþils, fylling og steyptur kantur. Samið var við lægstbjóðanda, Gáma- og tækjaleigu Austurlands ehf. Vinna við þilið hófst um miðjan júní. Um miðjan nóvember var rekstri lokið, búið að fylla og steypa rúmlega helming kantsins. Þá var ákveðið að gera hlé fram yfir áramót þar sem komið hafði í ljós lítils háttar sig á enda þilsins.
     Suðureyri: Á hafnaáætlun var endurröðun og styrking grjótvarnar við Brjótinn og á Norðurgarði. Verkinu var frestað, en unnið var á árinu við grjótrannsókn, hönnun og annan undirbúning.
     Ísafjörður: Haldið var áfram framkvæmdum við lengingu austurkants Sundabakka. Norðurtak ehf. lauk við fyrirstöðugarð vegna uppfyllingar í febrúar. Í apríl voru opnuð tilboð í rekstur þilsins, fyllingu og kantsteypu. Samið var við lægstbjóðanda, Guðlaug Einarsson Sauðárkróki. Hóf hann framkvæmdir í júní og lauk samningsverkinu í október. Efni í fyllingu við þilið var að mestu tekið úr námu í Seljadal á Óshlíð en nokkuð af sprengdum kjarna var sótt í námuna í Dagverðardal.
    Í apríl var boðin út dýpkun framan við nýja þilið í Sundahöfn, í Rennunni og við Suðurtanga. Samið var við lægstbjóðanda, Björgun ehf. Vinna með sanddæluskipinu Perlu hófst í maí, en tvisvar var gert hlé á verkinu og lauk því ekki að fullu fyrr en í nóvember. Í ljós kom að á nokkrum stöðum í Rennunni, utan við flugvallarendann, var grjót í botni sem Perlan réði ekki við að dæla. Gerður var samningur við Hagtak ehf. um að fara yfir svæðið með gröfupramma og dýpka á þeim stöðum þar sem Perlan náði ekki að dýpka. Alls voru dýpkaðir 96.600 m³, þar af gróf Hagtak um 2.300 m³.
    Framkvæmdakostnaður: 127,9 millj. kr.

Súðavík.
    Heimild fékkst til að flýta dýpkun hafnar sem samkvæmt hafnaáætlun átti að koma til framkvæmda á árinu 2000. Samið var við Hagtak ehf. um að dýpka í 7 m rúmlega 6.800 m² svæði framan við Harðviðarbryggjuna og út í hafnarmynnið. Verkið var unnið í október. Fjarlægðir voru um 5.700 m³ af efni.
    Framkvæmdakostnaður: 10,6 millj. kr.

Norðurfjörður.
    Engar framkvæmdir.

Drangsnes.
    Unnið var við dýpkun innsiglingar og innan hafnar í Kokkálsvíkurhöfn. Verkið var boðið út með dýpkun á Vopnafirði. Samið var við Dýpkun sf. um dýpkanir á báðum stöðum að undangengnu útboði. Framkvæmdatími var 3.–22. september. Sprengd var klöpp á um 840 m² svæði og dýpkað. Minnsta dýpi í innsiglingunni er nú 3,5 m. Klöpp reyndist ná yfir stærra svæði en talið var og mjög lítið hægt að dýpka án þess að sprengja.
    Framkvæmdakostnaður: 16,7 millj. kr.

Hólmavík.
    Á hafnaáætlun var fyrirhuguð lenging viðlegubryggju á Norðurgarði um 20 m. Heimamenn ákváðu að fresta þeirri framkvæmd. Í staðinn var veitt heimild til að dýpka lítils háttar við flotbryggjuna og steypa upptökubraut fyrir smábáta. Samið var við Fyllingu ehf. á Hólmavík um dýpkunina og luku þeir verkinu í maí. Ekki var byrjað á upptökubrautinni fyrir áramót.
    Framkvæmdakostnaður: 0,3 millj. kr.

Húnaþing vestra.
     Hvammstangi: Engar framkvæmdir.

Blönduós.
    Engar framkvæmdir.

Skagaströnd.
    Innsiglingarmerkið á Brúnkollu var sett upp í byrjun ágúst. Þetta er 4,5 m hár stólpi boltaður niður í klöppina. Blikkljós á toppinn sýnir grænt leiftur á 3 sek. bili. Skerið stendur aðeins um 0,4 m uppúr á stórstraumsfjöru. Til að koma merkinu fyrir þurfti því að sæta lagi þegar stórstreymt var og sléttur sjór.
    Framkvæmda- og fjármagnskostnaður: 1,4 millj. kr.

Skagafjörður.
     Sauðárkrókur: Frestað var gerð tengibrautar milli Hafnargarðs og Sandeyrar.
    Í október var boðin út dýpkun í innsiglingu og á snúningssvæði. Fjarlægja þurfti sand sem borist hafði inn fyrir Norðurgarðinn og einnig var markmið með framkvæmdinni að auka aðeins dýpi og rýmka snúningssvæði. Aðeins eitt tilboð barst, frá Björgun ehf. Verkið var unnið í nóvember. Fjarlægðir voru um 32.300 m³ og 28.000 m² svæði var dýpkað í 7 m.
     Hofsós: Engar framkvæmdir.
     Haganesvík: Viðhaldsdýpkun, grafið var upp efni sem borist hafði að bryggjunni. Heimamenn sáu um framkvæmdina.
    Framkvæmdakostnaður: 15,8 millj. kr.

Siglufjörður.
    Í byrjun febrúar lauk Guðlaugur Einarsson ehf. við smíði 30 m trébryggju í Smábátadokkinni.
    Í apríl var boðin út bygging skjólgarðs frá enda Brjótsins. Samið var við Suðurverk hf. og hófust framkvæmdir í byrjun júlí. Verkinu lauk 3. nóvember. Rúmlega 33.000 m³ af grjóti og sprengdum kjarna fóru í garðinn. Efnið var tekið úr grjótnámunni við Selskál um 2 km norðan við bæinn.
    Framkvæmdakostnaður: 38,1 millj. kr.

Hafnasamlag Eyjafjarðar.
     Ólafsfjörður: Heimilað var að flýta framkvæmd við styrkingu á ysta hluta Norðurgarðs sem var á hafnaáætlun árið 2002. Þetta var gert í kjölfar þess að veturinn 1998–1999 komu í ljós verulegar skemmdir á fremsta steinsteypukerinu. Hætta var talin á það liðaðist sundur og brim gæti þá kastað hluta þess inn í innsiglinguna. Við hönnun var valin sú útfærsla að ramma niður stálþil utan um fremsta kerið og 10 m fram fyrir endann. Grjótverja síðan utan með kerinu. Jafnframt skyldi fjarlægja trébryggju að innanverðu á Norðurgarðinum og setja grjótvarinn fláa í staðinn. Keypt voru 124 tonn af stálþili frá ARBED gerð AZ26 og 19 tonn af festingaefni frá Anker Schroeder. Hönnunardýpi við þilið er 8 m. Í ágúst var verkið boðið út. Verktökum var gefinn kostur á annarsvegar að ljúka við að reka þilið fyrir 1. október 1999 og hins vegar fyrir 1. júní 2000. Ákveðið var að semja við Gáma- og tækjaleigu Austurlands, en þeir buðu lægst miðað við síðari kostinn. Talin var of mikil áhætta að byrja á verkinu undir veturinn auk þess sem það hefði orðið töluvert dýrara. Til að hindra að vetrarbrimin yllu skaða sá verktakinn um að setja stórgrýti ofan á kerið fyrir haustið en framkvæmdinni var að öðru leyti frestað fram á næsta ár.
     Dalvík: Unnið var að endurbyggingu stálþils á fremsta hluta Norðurgarðs. Um er að ræða u.þ.b. 53 m langt þil að enda garðsins og um 17 m fyrir endann. Keypt voru 171 tonn af stálþili frá ARBED gerð AZ26 og 43 tonn af festingaefni frá Anker Schroeder. Þilið var hannað fyrir 8 m dýpi. Rekstur þilsins, fylling og steyptur kantur var boðið út í ágúst. Samið var við lægstbjóðanda, Guðlaug Einarsson ehf. Tilboð hans var 113% af áætlun. Framkvæmdir hófust um miðjan september. Í ljós kom, þegar farið var að reka þilið, að hlutar úr eldra þili lágu í botninum í þillínunni. Þetta olli verulegum kostnaðarauka og töfum. Verkinu var ekki lokið um áramót.
     Árskógssandur: Engar framkvæmdir.
     Hrísey: Í júní var boðin út lenging Norðurgarðs. Samið var við lægstbjóðanda Eyjólf Þór Jónsson. Tilboð hans var 78% af áætlun. Framkvæmdir hófust í ágúst og lauk í byrjun nóvember. Norðurgarðurinn var lengdur um u.þ.b. 75 m og að auki byggður 30 m langur þvergarður innan á hann til að skýla bátabryggjunni. Efnismagn í garðana var um 18.600 m³ af grjóti og sprengdum kjarna. Grjótnáma var í Duggarakletti suður af höfninni í um 2 km fjarlægð.
    Framkvæmda- og fjármagnskostnaður: 72,8 millj. kr.

Grímsey.
    Veitt var heimild til að flýta framkvæmdum við styrkingu grjótvarnar á hafnargarði, verk sem vinna átti á næsta ári samkvæmt hafnaáætlun. Samið var við Jarðverk á Dalvík um að vinna stórgrýti í námu á Árskógssandi, flytja það út í Grímsey og raða í garðinn á um 40 m kafla ofan við masturshús. Lokið var við um haustið að framleiða 112 steina og flytja á lager við Dalvíkurhöfn. Flutningi og útlögn var frestað fram á næsta ár.
    Framkvæmda- og fjármagnskostnaður: 2,4 millj. kr.

Hafnasamlag Norðurlands.
     Hjalteyri: Sandur sem borist hafði að bryggjunni var grafinn upp. Heimamenn sáu um framkvæmdina.
     Akureyri: Í febrúar var samið um dýpkun í Fiskihöfn við Sandgrevstur pf. frá Fuglafirði í Færeyjum, en útboð á verkinu fór fram skömmu fyrir áramót. Verktaki byrjaði dælingu 15. febrúar. Tíðarfar var erfitt framan af og tafði fyrir, en í byrjun júlí var lokið við að dýpka Fiskihöfnina, alls 83.360 m³. Þar sem afgangur var af þeim fjármunum sem ætlaðir voru í dýpkunina var heimilað að semja við verktakann um að dýpka líka svæði utan við Löndunarbryggju ÚA. Í byrjun ágúst hafði verktakinn lokið við að dýpka þar 15.900 m³. Heildarmagn í dýpkun var því um 99.260 m³. Tæplega 82.000 m³ var dælt á land á fyllingarsvæðið við Krossanes, um 9.000 m³ voru settir á lager við þilið í Fiskihöfninni og 8.000 m³ af efni voru losaðir í sjó.
    Unnið var að fyrri áfanga Vesturbakka í Fiskihöfn. Keypt var stálþil og festingaefni frá British steel. Þilið er af gerðinni Larssen LX25, hannað fyrir 9 m dýpi og lengd þilveggjar með fullu dýpi er um 120 m. Í ágúst var boðinn út þilrekstur, fylling og kantsteypa. Samið var við lægstbjóðanda, Gáma- og tækjaleigu Austurlands. Verktaki hóf framkvæmdir í september. Verkinu lauk ekki fyrir áramót.
     Svalbarðseyri: Engar framkvæmdir.
     Grenivík: Engar framkvæmdir.
    Framkvæmda- og fjármagnskostnaður: 75,1 millj. kr.

Húsavík.
    Sett voru upp ný leiðarmerki til að merkja innsiglingarrennuna inn að Norðurgarði.
    Heimilað var að flýta framkvæmdum við smábátaaðstöðu sem var á hafnaáætlun árið 2002. Samið var við Króla ehf. um kaup á flotbryggju 3 . 30 m. Bryggjan var sett niður við uppfyllingu sem gerð var framan við Stéttina miðja vegu milli Suðurgarðs og smábátahafnar. Samið var við Pétur Skarphéðinsson á Húsavík um gerð uppfyllingarinnar, en hann átti lægsta tilboð í það verk. Framkvæmdir við smábátaaðstöðuna hófust í júní og var lokið um miðjan júlí.
    Framkvæmdakostnaður: 10,6 millj. kr.

Tjörneshöfn.
    Engar framkvæmdir.

Kópasker.
    Á hafnaáætlun var gert ráð fyrir kaupum og uppsetningu á 15 m flotbryggju fyrir smábáta. Heimamenn tóku þá ákvörðun að fresta flotbryggjunni. Í staðinn fengu þeir heimild til að nýta hluta af fjárveitingunni í lítils háttar dýpkun á svæði fyrir smábáta.
    Framkvæmdakostnaður: 0,5 millj. kr.

Raufarhöfn.
    Í febrúar lauk Iðufell ehf. við að rífa Fiskavíkurbryggjuna, en samningur um það verk var gerður í lok síðasta árs.
    Grjótgarður í stað Fiskavíkurbryggju var annað verk sem samið var um við Iðufell á síðasta ári. Framkvæmdir hófust í febrúar og lauk í maí. Garðurinn er um 60 m langur og fóru í hann 4.470 m³ af kjarna og grjóti. Kjarnaefni var tekið úr námu í Hólshrauni, en grjót var unnið í Klifnámu.
    Í mars var boðin út Löndunarbryggja, rekstur á þili og steyptur kantur. Samið var við lægstbjóðanda, Gáma- og tækjaleigu Austurlands ehf. Áður var búið að semja við Iðufell um gerð uppfyllingar að stálþilinu. Í uppfyllinguna fóru rúmlega 17.800 m³ af efni úr Hólshrauni og 900 m³ af grjóti úr Klifnámu. Stálþil, 129 tonn af gerðinni AZ 18, var keypt frá ARBED og 40 tonn af festingaefni frá Anker Schroeder. Bryggjan er 50 m löng með hönnunardýpi 8 m, 16 m gaflar eru við hvorn enda. Vinna við þilrekstur hófst í maí og verkinu lauk að mestu í september. Ekki náðist að ljúka frágangi á þybbum fyrir áramót. Bíða þurfti eftir stórstraumsfjöru til að hægt væri að sjóða neðri festingar í þilið.
    Framkvæmdakostnaður: 41,8 millj. kr.

Þórshöfn.
    Skömmu fyrir áramót var lokið við byggingu Suðurgarðs. Garðurinn er um 390 m langur og fóru í hann 33.270 m³ af grjóti og sprengdum kjarna.
    Í júní var byrjað að lengja Norðurgarðinn og lauk verkinu fyrir áramót, að því undanskildu að eftir er að ganga frá garðsendaljósi. Garðurinn var lengdur um rúmlega 50 m og fóru í það 24.140 m³ af grjóti og sprengdum kjarna. Verktakar við Norður- og Suðurgarð voru Hjarðarnesbræður ehf. Verksamningur við þá var gerður árið 1997.
    Framkvæmdakostnaður: 22,6 millj. kr.

Bakkafjörður.
    Boðin var út vatnslögn á hafnarsvæði og samið við lægstbjóðanda, Iðufell ehf. á Raufarhöfn. Lögð var ný vatnslögn að upptökubraut og fram á Sjafnarbryggju og endurnýjuð var lögn fram á Löndunarbryggju.
    Framkvæmdakostnaður: 2,4 millj. kr.

Vopnafjörður.
    Unnið var að lýsingu og raflögn við smábátahöfnina. Samið var um þetta verk við Árna Magnússon rafvirkja á Vopnafirði. Settir voru upp fimm ljósastaurar við flotbryggju og með fram aðkomuleið og tveir tenglastólpar voru settir á flotbryggjuna. Verkið var unnið á tímabilinu ágúst–nóvember.
    Í apríl var boðin út dýpkun að fyrirhugaðri löndunarbryggju. Samið var við Dýpkun sf. en tilboð þeirra var 96% af áætlun. Verkið var hannað samkvæmt niðurstöðum úr líkantilraunum sem gerðar voru af höfninni en þær leiddu til breytinga frá þeirri frumáætlun sem hafnaáætlun byggði á. Kostnaður við dýpkunina var því verulega umfram það sem þar var búið að gera ráð fyrir. Sprengt var 2.910 m² svæði framan við bryggjustæðið og dýpkað í 8 m. 50 m breið innsiglingarrenna að bryggju var dýpkuð í 7 m. Magn efnis sem kom úr dýpkuninni var tæplega 30.000 m³.
    Jafnframt dýpkuninni var samið við Dýpkun sf. um að sprengja rás fyrir þil Löndunarbryggju.
    Framkvæmdakostnaður: 97,4 millj. kr.

Borgarfjörður eystri.
    Engar framkvæmdir.

Seyðisfjörður.
    Á hafnaáætlun var gert ráð fyrir að setja upp stormpolla við Fjarðarhöfn. Vegna breytinga sem fram undan eru í ferjumálum hjá Smyril Line var ákveðið að fara ekki í þá framkvæmd.
Heimild fékkst til að flýta framkvæmd dýpkunar sem áætluð var á næsta ári. Dýpka á lítils háttar meðfram trébryggjum sunnan fjarðar, m.a. við SR-bryggju. Samið var um verkið við Kranabílinn hf. á Seyðisfirði í desember en ekki var byrjað á því fyrir áramót.
    Fjármagnskostnaður: 0,6 millj. kr.

Fjarðabyggð.
     Neskaupstaður: Engar framkvæmdir.
     Eskifjörður: Áfram var unnið að byggingu hafskipabryggju austan Bæjarbryggju. Í febrúar var boðinn út rekstur þils, fylling og steyptur kantur. Samið var við Guðlaug Einarsson ehf. sem bauð lægst, 75% af áætlun. Byrjað var á verkinu um miðjan apríl og í lok ágúst var búið að reka þilið og fylla að því. Þá var ákveðið af fresta fram á næsta vor að steypa kantinn þar sem verulegt sig var á þilinu.
    Í júní var boðin út kantsteypa lagnir og þekja við lengingu Bræðslubryggjunnar. Aðeins komu tvö tilboð, 20–36% yfir áætlun og var þeim hafnað. Í september var verkið síðan boðið út að nýju. Sandur og stál ehf. á Sauðárkróki bauð þá lægst í verkið, 102% af áætlun. Samið var við það fyrirtæki og hófust framkvæmdir um miðjan október. Lokið var við að steypa kantinn og ganga frá lögnum fyrir áramót en þekjusteypu var frestað fram á vor.
     Reyðarfjörður: Engar framkvæmdir.
    Framkvæmdakostnaður: 38,0 millj. kr.

Fáskrúðsfjörður.
    Unnið var við frágang á Hafskipabryggjunni. Árið 1997 var steypt þekja, byggt ljósamasturshús og lögð ídráttarrör en eftir var að smíða töflu og leggja rafmagn að tenglaskápum. Ólafur Hjaltason rafvirki á Fáskrúðsfirði sá um að ljúka því verki. Starfsmenn hafnarinnar smíðuðu og settu upp þybbur á bryggjuna. Loks var grabbað upp farg sem sett var framan við bryggjuna 1997. Kranabíllinn hf. á Seyðisfirði annaðist verkið.
    Framkvæmdakostnaður: 4,9 millj. kr.

Stöðvarfjörður.
    Keypt var 20 m löng flotbryggja frá Króla ehf. og henni komið fyrir í nýju smábátahöfninni. Heimamenn sáu um smíði landstöpuls fyrir flotbryggjuna.
    Framkvæmdakostnaður: 3,9 millj. kr.

Breiðdalsvík.
    Á áætlun var að ganga frá lögnum og þekju við stálþilsbryggjuna en þeim framkvæmdum var frestað enn um sinn.
    Engar framkvæmdir.

Djúpivogur.
    SG vélar á Djúpavogi luku við gerð uppsáturs fyrir smábáta. Samið var um þetta verk á síðasta ári.
    Unnið var að mælingum og botnrannsókn fyrir væntanlega hafnargerð í Innri Gleðivík. Athuganir leiddu í ljós að aðstæður eru erfiðar, klöpp í botni og töluverð ölduhreyfing sem illmögulegt er að skýla fyrir. Ákveðið var að gera prófanir í líkani til að finna sem hagkvæmasta lausn og fá þá jafnframt fram við hvaða aðstæðum mætti búast. Líkantilraunir hófust um haustið og var þeim ekki lokið um áramót. Samhliða líkantilraunum var unnið að umhverfismati fyrir hafnargerðina, en framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum.
    Framkvæmdakostnaður: 3,2 millj. kr.

Höfn í Hornafirði.
    Lokið var endurbyggingu á 47 m langri trébryggju við vogarhús, verk sem samið var um við Svein Sighvatsson á síðasta ári.
    Unnið var að venjubundinni viðhaldsdýpkun innan hafnar með dýpkunarskipi hafnarinnar, Soffíu. Samkvæmt reynslu þarf 12–15.000 m³ árlega viðhaldsdýpkun og er gert ráð fyrir því í hafnaáætlun. Í ár er búið að dæla rúmlega því magni, en úttektarmælingu var ekki lokið fyrir áramót.
    Þinganesgarður milli Austurfjöru og Þinganesskerja var á áætlun en þar sem ekki náðist samkomulag við landeiganda um grjótnám þurfti að gera kröfu um eignarnám. Málið var ekki útkljáð fyrir áramót og framkvæmdum við garðinn því slegið á frest til næsta árs.
    Framkvæmdakostnaður: 9,3 millj. kr.

Vestmannaeyjar.
    Lokið var við að greiða hugbúnað og tæki fyrir upplýsingakerfið um veður og sjólag en uppsetningu búnaðar er enn ekki að fullu lokið.
    Í apríl luku Borgarvirki ehf. og Bergbrot ehf. við grjóthleðslu meðfram smábátahöfninni innan Nausthamars. Lengd grjótfláans er um 150 m og fóru í hann rúmlega 3.000 m³ af grjóti sem sótt var í námuna við Urðarvita.
    Skömmu fyrir áramót var samið við 2Þ ehf. um smíði á fjórum landstöplum fyrir flotbryggjur við smábátahöfnina en framkvæmd verksins var frestað fram á vor.
    Um haustið var unnið að dýpkun í smábátahöfninni innan Nausthamarsbryggju með grafskipi Vestmannaeyjahafnar og voru u.þ.b. 3.500 m³ fjarlægðir. Ætlunin var að dýpka í 2 m á 20–30 m breiðu svæði meðfram grjótfláanum en í ljós kom að móbergshella var á hluta svæðisins sem grafskipið réði ekki við að dýpka. Þarf því að leita eftir öðru tæki til að ljúka dýpkuninni.
    Annað verkefni sem grafskip Vestmannaeyjahafnar vann á árinu var að ljúka dýpkun við stálþil á Löngu. Alls voru fjarlægðir rúmlega 60.000 m³ á árunum 1994–1999.
    Unnið var við frágang á nýja stálþilinu austan Friðarhafnarkants. Í febrúar luku Borgarvirki og Bergbrot við að hlaða um 15 m langan grjótfláa við suðurenda þilsins en samið var um það verk um leið og grjótfláann í smábátahöfninni. Í júní var boðin út 1.400 m² þekjusteypa og lagnir við kantinn. Tvö tilboð bárust, bæði yfir kostnaðaráætlun. Samið var við það fyrirtæki sem átti lægra tilboðið, 2Þ ehf. Framkvæmdir hófust um miðjan júní og lauk skömmu fyrir áramót. Eftir er að ganga frá lýsingu á bryggjunni og raflögn.
    Í apríl lauk Gáma- og tækjaleiga Austurlands ehf. samningsverki við endurbyggingu stálþils við Friðarhafnarkant. Í framhaldi af því var lögð vatnslögn í bryggjuna og lagnir fyrir ísafgreiðslu sem raskað var við endurbygginguna voru færðar í samt lag.
    Unnið var að endurbyggingu Nausthamarsbryggju. Í mars voru gerðar ítarlegar botnrannsóknir umhverfis bryggjuna til að ganga úr skugga um mögulegt rekdýpi fyrir þil. Samtímis var borað meðfram þili í Friðarhöfn. Ákveðið var að byggja í fyrsta áfanga 60 m langt þil til austurs frá NA horni bryggjunnar. Þilið var hannað fyrir 9 m dýpi. Í október var gengið frá efnispöntun á 189 tonnum af stálþili frá ARBED, gerð AZ 26, og 60 tonnum af festingaefni frá Anker Schröeder. Í lok desember voru opnuð tilboð í rekstur þilsins, fyllingu og steyptan kant. Fimm tilboð bárust í verkið. Tvö tilboð voru um 95% af áætlun, frá Lárusi Einarssyni sf. og AVT verktökum ehf. Tilboð Lárusar var þó lítið eitt lægra. Ekki lá fyrir um áramót hvaða tilboði skyldi tekið.
    Stöðugt berst meira efni úr nýja hrauninu inn í innsiglinguna og hleðst upp í tanga við svo nefnda Skansfjöru skammt utan við Hringaskersgarð. Var farið fram á heimild til að flýta dýpkun sem koma átti til framkvæmda árið 2002 samkvæmt hafnaáætlun. Leyfi fékkst fyrir verkinu og í nóvember var samið við Björgun ehf. um að dýpkunarskipið Perlan dældi úr Skansfjörunni. Í ljós kom að efnið var of gróft og samþjappað til að hægt væri að dæla því. Sagði Björgun sig fljótlega frá verkinu. Þá var aðeins búið að fjarlægja um 5.700 m³
    Framkvæmdakostnaður: 55,5 millj. kr.

Þorlákshöfn.
    Í mars lauk Ræktunarsamband Flóa og Skeiða samningsverki við styrkingu brimvarnar á Suðurvarargarði.
    Unnið var að dýpkun í höfninni. Samið var við GP krana ehf. og gröbbuðu þeir upp um 2.700 m³ af efni meðfram bryggjum. Verkið var unnið um áramótin 1998–1999.
    Framkvæmdakostnaður: 8,2 millj. kr.

Grindavík.
    Í árslok 1998 fór fram forval á verktökum vegna síðari hluta dýpkunar á innsiglingunni að höfninni. Að því loknu var sjö verktökum gefinn kostur á að bjóða í verkið, þremur íslenskum og fjórum erlendum. Tilboð voru opnuð 4. febrúar og var lægsta tilboðið frá Skanska Dredging Ab í Svíþjóð, 87,8 % af kostnaðaráætlun (400.660.060 kr.). Í útboðsgögnum var heimilað að vinna verkið á tveim árum en verktakinn kaus að vinna það allt á einu sumri, þó að greitt yrði fyrir það á tveimur árum. Til verksins var notaður einn gröfufleki, borprammi og tveir efnisflutningaprammar. Samtals voru dýpkaðir um 35.130 m 2 eða um 200.000 m 3.
    Í framhaldi af dýpkuninni voru leiðarmerki endurbætt með því að settir voru upp tveir staurar vestan rennunnar og nýtt innsiglingarmerki í landi. Ístak hf. sá um vinnu við staurana og fékk Árna Kópsson kafara í köfunarvinnu.
    Við verklok var Skanska fengið til að dýpka innan hafnar, vestan við Eyjabakka, upp með austurenda Miðbakka og vestur með Svíragarði þar sem þverker var einnig fjarlægt. Þessar aðgerðir auðvelda mjög útskipun á afurðum frá fiskimjölsverksmiðju Fiskimjöls og lýsis í Grindavík. Við þessar breytingar reyndist nauðsynlegt að færa viðlegu fyrir smábáta, sem hafði verið innan við þverkerið, á nýja flotbryggju í smábátahöfn.
    Framkvæmdakostnaður: 427,7 millj. kr.

Sandgerði.
    Lokið var við dýpkun, sem hófst í október 1998. Heimild fékkst til að stækka verkið og urðu endanlegar magntölur þær að 4.300 m² voru dýpkaðir í 6 m og 1.000 m² í 7 m. Verkinu lauk í febrúar. Verktaki var Hagtak hf.
    Framkvæmdakostnaður: 42,1 millj. kr.

Hafnasamlag Suðurnesja.
     Garður: Skömmu eftir áramót var lokið við grjótvörn utan á bryggjuna, sem byrjað var á í september 1998. Verktaki við þessa framkvæmd var SEES ehf.
     Reykjanesbær: Um miðjan febrúar lauk Hafnarverk ehf. samningsverki við uppsetningu björgunarstiga á bryggjur í Keflavík, Njarðvík, Garði og Vogum. Verkið hófst í ágúst 1998.
     Vogar: Engar framkvæmdir.
    Framkvæmdakostnaður: 1,7 millj. kr.

Hafnarfjörður.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir. (Sjá kaflann um hafnarframkvæmdir sem ekki eru ríkisstyrktar.)

Garðabær.
    Engar framkvæmdir.

Kópavogur.
    Engar framkvæmdir.

Reykjavík.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir. (Sjá kaflann um hafnarframkvæmdir sem ekki eru ríkisstyrktar.)

Óskipt fjárveiting.
    Óskipt fjárveiting var notuð til að styrkja ýmsar minni háttar framkvæmdir, svo sem til lagfæringa á innsiglingamerkjum, setja stiga á bryggjur, lýsingu og önnur öryggismál. Almennt er miðað við að einstakar framkvæmdir kosti ekki meira en um 1,0 millj. kr.
    Framkvæmdakostnaður: 3,9 millj. kr.

HAFNARFRAMKVÆMDIR SEM EKKI ERU RÍKISSTYRKTAR

    Í höfnum landsins var unnið að ýmsum framkvæmdum sem ekki njóta ríkisstyrkja. Oftast eru þetta viðhaldsverkefni, eða minni háttar nýbyggingar. Þó var unnið að nokkrum stærri verkefnum í höfnum á síðasta ári. Eftirfarandi hafnir hafa komið upplýsingum um framkvæmdir á framfæri.

Grundartangi.
    Raftækjavinnustofu ÁÁ lauk samningsverki við raflagnir og lýsingu á nýju bryggjunni. Vinna við þetta verk hófst í desember 1998. Auk þess var unnið við frágang á þekju o.fl.
    Framkvæmdakostnaður: 5,8 millj. kr.

Hafnarfjörður.
    Á árinu var haldið áfram með framkvæmdir við uppbyggingu hafnar utan Suðurgarðs, svokallaða Hvaleyrarhöfn. Lokið var við byggingu brimvarnargarðs, en framkvæmdir við hann hófust 1998. Verktaki var Ístak hf. Alls fóru um 600.000 m³ af efni í garðinn, þar af um 220.000 m³ uppdælt efni, sem Björgun hf. útvegaði. Grjót í garðinn var unnið í námu í Hamranesi.
    Ístak sá einnig um smíði festinga fyrir flotkví og steypti festingu fyrir ekjubrú út í kvína. Stærri flotkvínni var svo komið fyrir í festingum í nóvember.
    Sæþór hf. var verktaki við byggingu 200 m langs stálþilsbakka með 8 m dýpi. Þetta verk var boðið út 1998 og lauk framkvæmdum í júlí.
    Að lokum var boðin út steypt þekja og lagnir á kantinn. Verktaki var Böðvar Sigurðsson hf.
    Framkvæmdakostnaður: 556,0 millj. kr.

Reykjavík.
    Helsta framkvæmd ársins var bygging olíubryggju í Örfirisey. Unnið var að því að ljúka dýpkun við bryggju og byggingu skjólgarðs og bryggju. Þessum verkum lauk á árinu 1999. Með þessari nýju hafnaraðstöðu sem formlega verður tekin í notkun vorið 2000 leggst af öll löndun olíu og bensíns um neðansjávarleiðslur fyrir þessa megin olíubirgðastöð landsins. Heildarkostnaður við byggingu mannvirkisins er um 550 millj. kr.
    Aðrar helstu hafnarframkvæmdir á vegum Reykjavíkurhafnar á árinu var 1. áfangi í byggingu Skarfagarðs, en skjólgarðurinn er forsenda hafnargerðar á Klettasvæði og skýlir um leið ytri hluta Sundahafnar. Hafnar voru undirbúningsframkvæmdir að lengingu Kleppsbakka fyrir farmstöð Eimskips í Vatnagörðum. Efnisskipt var undir væntanlegum bakka og hafnar landfyllingar. Önnur hafnargerðarverk voru lenging Vogabakka til suðurs, en keypt var stálþil og stagefni og hafist handa við byggingu bakkans. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdum við bakkann um mitt ár 2000. Þessari nýju viðbót við Vogabakka er bæði ætlað að þjóna nýrri aðstöðu fyrir innflutning byggingarvöru innst í Kleppsvík og eins er bakkinn forsenda fyrir að hægt sé að ráðast í lengingu Vogabakka til norðurs fyrir farmstöð Samskipa. Hafnar voru undirbúningsframkvæmdir við lengingu Vogabakka til norðurs. Verkefni ársins voru efnisskipti undir væntanlegum bakka, dýpkanir á snúningssvæði og fyrstu áfangar í fyllingu baklands bakkans.
    Aðrar framkvæmdir á vegum Reykjavíkurhafnar á árinu voru ýmis verkefni við þróun hafnarlands og landgerð bæði í Gömlu höfninni og eins í Sundahöfn. Byggð var ný bækistöð Reykjavíkurhafnar við Fiskislóð á árinu.
    Framkvæmdakostnaður var 624,5 millj. kr.

FERJUBRYGGJUR

    Unnið var að endurbótum á bryggju í Flatey á Breiðafirði. Í september var boðið út verk sem fólst í að steypa upp og fylla að landvegg, setja nýja þybbuklæðningu og endurnýja dekk að hluta. Tvö tilboð bárust, bæði yfir kostnaðaráætlun. Skipavík hf. í Stykkishólmi átti lægra tilboðið, 107% af áætlun. Lokið var við að steypa upp landvegginn um áramót og fylla að honum að hluta til. Gert er ráð fyrir að ljúka verkinu með vorinu.
    Í Vigur og Æðey var unnið að lítils háttar viðhaldi.
    Hafin var undirbúningur að viðgerð á bryggju í Mjóafirði.
    Framkvæmdakostnaður: 4,7 millj. kr.

SJÓVARNARGARÐAR

    Því sem eftir var af sjóvörn við Krókalón á Akranesi var skipt í tvo jafnstóra áfanga, sem áformað var að vinna árin 1999 og 2000. Fyrri áfanginn var boðinn út með endurbyggingu fremsta hluta grjótvarnarinnar á Aðalhafnargarðinum. Verktaki var Suðurverk hf. Vegna aðstæðna sem upp komu í grjótnámunni við Kirkjuból var samið við verktakann um að ljúka við báða áfanga sjóvarnarinnar og fullgera þar með varnir við Krókalónið.
    Unnið var að sjóvörnum á Hellissandi og í Ólafsvík. Á Hellissandi var sett sjóvörn við Keflavíkurgötu, alls um 2.800 m³, en í Ólafsvík var sett grjótvörn neðan við Kassa, verslunarhús á fyllingu sjávarmegin við Ólafsbraut. Þar voru settir um 3.300 m³. Verktaki við þessar framkvæmdir var Bjarni Vigfússon frá Kálfárvöllum. Uppgjöri verksins lauk ekki á árinu.
Við Eyjólfsplan í Flatey var gamall steyptur veggur endurbyggður.
    Í Ísafjarðarbæ var unnið að viðgerð á garðinum meðfram Brimnesvegi. Samið var við Græði hf. á Flateyri um hækkun á garðinum og viðgerð á nokkrum stöðum þar sem hann hafði dregist niður.
    Lokið var við sjóvörn við bæinn Litlu Ávík í Árneshreppi á Ströndum. Grjót var tínt úr skriðum innan við Kjörvog í Reykjarfirði.
    Heimilað var að hefja framkvæmdir við sjóvarnir á Hólmavík. Byggja á sjóvörn á um 30 m kafla móts við Kópnesbraut nr. 19 og styrkja vörn sem komin er þaðan á um 350 m kafla að Rifshaus. Enn fremur á að styrkja vörn á um 25 m kafla við Fiskmarkaðshúsið Hafnarbraut. Í nóvember var samið við Fyllingu ehf. um þessar framkvæmdir en þeim lauk ekki á árinu.
    Í Hrísey var sjóvörnin austur frá samkomuhúsinu að Vörum endurbyggð og bætt við þar sem á vantaði. Alls voru um 350 m teknir fyrir. Þetta verk var boðið út og unnið samhliða lengingu hafnargarðsins og var verktaki Eyjólfur Þ. Jónsson.
    Á Hjalteyri í Arnarneshreppi í Eyjafirði var lögð sjóvörn á um 120 m kafla norðan við bryggjuna. Samið var við Jarðverk ehf. á Dalvík um verkið.
    Á Grenivík var boðinn út um 150 m kafli norðan gömlu bryggjunnar. Samið var við Eyjólf Þ. Jónsson um þetta verk en því lauk ekki á árinu. Jarðverk lauk við kaflann sem boðinn var út árið áður.
    Hjarðarnesbræður luku við framkvæmdir á Þórshöfn, en þetta verk var boðið út árið 1997. Byggð var ný sjóvörn á 210 m kafla og eldri sjóvörn lagfærð á um 110 m kafla.
    Ekkert var unnið við sjóvarnir á Neskaupstað, en erfitt hefur reynst að útvega grjót til verksins. Fjárveiting bíður því fram á næsta ár.
    Í Árborg var boðin út sjóvörn við Barnaskólann á Eyrarbakka og við Gamla Hraun. Samtals voru þetta um 5.100 m³ og var samið við Bergbrot hf. um verkið. Það hófst ekki fyrr en eftir áramót 1999/2000.
    Í Gerðahreppi var samið við SEES hf. um gerð um 120 m langrar sjóvarnar við Gauksstaði. Enn fremur var grjótvörn við SVFÍ-hús lagfærð og bætt. Um 1.300 m³ af grjóti fóru í þetta verk.
    Sjóvarnir í Njarðvík og við Voga á Vatnsleysuströnd voru boðnar út í einu lagi og samið við SEES hf. um verkið. Í Njarðvík voru um 2.000 m³ settir við norðan við hús Laugaþurrkunar (áður Brynjólfur hf.) á Hákotstanga og í Vogunum var sett sjóvörn við Akurgerði. Enn fremur var samið við verktakann um að verja sjóhús við Skjaldarkot í Brunnastaðahverfinu og var grjót sett á um 50 m kafla framan við húsið.
    Í Bessastaðahreppi var samið við Suðurverk hf. um að styrkja sjóvarnargarða við Sjávargötu á um 200 m kafla.
    Framkvæmdakostnaður: 49,3 millj. kr.

STARFSEMI SIGLINGASTOFNUNAR ÍSLANDS

    Starfsemi Siglingastofnunar Íslands skiptist í þrjá meginþætti: Hafnamál, skipamál og vita- og leiðsögumál. Í þessari framkvæmdaskýrslu er fjallað ítarlega um hafnamálin, þ.e. eftirlit og umsjón Siglingastofnunar með ríkisstyrktum sjóvarnar- og hafnarframkvæmdum, rannsóknum og áætlanagerð fyrir uppbyggingu sjóvarna og hafna. Hér að neðan er fjallað í stuttu máli um helstu verkefni í skipamálum og vita- og leiðsögumálum og starfsemina árið 1999.
    Verkefni Siglingastofnunar á sviði skipamála eru fjölþætt. Stofnunin heldur aðalskipaskrá samkvæmt lögum um skráningu skipa. Hinn 1. janúar 2000 voru alls 2.412 skip á skrá, þar af voru 1.014 þilfarsskip og hafði þeim fjölgað um 59 frá fyrra ári. Skráðir opnir vélbátar voru 1.398 og hafði fjölgað um tvo báta. Nýskráningar árið 1999 voru alls 121 og afskráningar 60.
    Eitt meginverkefni stofnunarinnar er að sinna eftirliti með skipum. Siglingastofnun er með sjö umdæmisskrifstofur um allt land sem annast eftirlitið. Aðalskoðun er gerð árlega og samanstendur af bol-, vél- og búnaðarskoðun. Einnig er öxulskoðun gerð á fjögurra ára fresti.
    Tæplega 10 þúsund skoðanir voru gerðar á árinu 1999, þar af voru aðalskoðanir (bol-, vél-, búnaðar- og öxulskoðanir) tæplega 6 þúsund og aðrar skoðanir (fjarskiptatæki, skyndiskoðanir, rafmagnsskoðanir o.fl.) tæplega 4 þúsund. Auk þessara skoðana var gerð 131 skoðun á erlendum kaupskipum samkvæmt svonefndu hafnarríkiseftirliti.
    Siglingastofnun sinnir fjölmörgum öðrum verkefnum á sviði skipamála. Eitt af þeim er aðstoð við rannsóknir sjóslysa og eigin rannsóknir m.a. með samantekt upplýsinga um sjóslys. Stofnunin sinnir atvinnuréttinda- og áhafnamálum sjómanna m.a. með skírteinaútgáfu og skrifstofuhaldi í tengslum við mönnunar- og undanþágunefndir sjómanna. Siglingastofnun annast undirbúning og kynningu á laga- og reglugerðasetningu og alþjóðasamstarf er víðtækt á sviði skipamála.
    Siglingastofnun fer með framkvæmd vita- og leiðsögumála. Stofnunin annast uppbyggingu og rekstur landsvitakerfisins og hefur umsjón og eftirlit með uppbyggingu og rekstri hafnarvita og innsiglingarmerkja. Vinnunni má skipta í tvo meginþætti, annars vegar eftirlit og viðhald á vitabyggingunum og hins vegar eftirlit og viðhald á búnaði. Á ári hverju er skip leigt til að sinna verkefnum í eyjum og annesjum. Alls eru 104 ljósvitar hringinn í kringum landið og er stefna stofnunarinnar að sinna viðhaldi á hverjum vita á um fimm ára fresti. Á árinu 1999 var farið í eftirlits- og viðhaldsferðir á sjö vitabyggingum. Verkefnin reyndust mun tímafrekari en reiknað var með, m.a. vegna slæmrar veðráttu á Suðurlandi fyrri hluta sumars. Að jafnaði er reynt að sinna viðhaldi á um 20 vitum á ári hverju. Eftirliti með baujum og búnaði vitanna er hins vegar reynt að sinna á hverju ári og m.a. er skip leigt á hverju sumri til að sinna eftirliti með um 40 vitum á eyjum og annesjum. Á árinu 1999 fóru rafvirkjar stofnunarinnar í viðhald og eftirlit á 69 vitum.
    Af öðrum þáttum í vita- og leiðsögukerfi Siglingastofnunar má nefna að allur búnaður í tengslum við DGPS-kerfið, sem er leiðréttingakerfi fyrir GPS-gervihnattastaðsetningarkerfið, var yfirfarinn á árinu vegna svonefnds 2000 vanda í tölvum og fyrirsjáanlegs vanda í GPS- tækjum á árinu.
    Rekstur upplýsingakerfisins um veður og sjólag gekk vel á árinu. Frá því að kerfið var tekið upp 1996 hefur stöðugt verið unnið að því að bæta kerfið og auka þjónustuna. Upplýsingakerfið hefur verið mikið notað af sjófarendum og árið 1999 mældust um 8.000 innkomur („hits“) að jafnaði á mánuði á heimasíðunni og um 5.000 hringingar í símann á mánuði.
    Upplýsingamiðlun Siglingastofnunar beinist bæði inn á við og út á við. Þörfum viðskiptavina er fyrst og fremst sinnt með útgáfu fréttabréfs, Til sjávar, sem kemur út 5–6 sinnum á ári og heimasíðu á netinu, www.sigling.is. Auk þess sinnir stofnunin ýmissi annarri útgáfu, svo sem á fræðsluefni, skýrslum, handbókum o.fl. Innan Siglingastofnunar er upplýsingamiðlun fyrst og fremst sinnt með útgáfu á fréttabréfi, bæði á pappír og í rafrænu formi, auk reglulegra starfsmannafunda.

Tölur úr rekstri Siglingastofnunar 1999.

(Fjárhæðir í millj. kr.)


Tekjur Almennir viðskiptavinir Af
fjárlögum
Tekjur samtals
Ýmsar tekjur, bókhaldsþjónustu, þóknun, vaxtatekjur
13 4 17
Vitar og leiðsögukerfi, rekstur og stofnkostnaður
13 114 127
Rannsóknir
41 41
Hafnasvið, framkvæmdir og áætlanir
66 17 83
Skipaverkefni
6 46 52
Skoðunarsvið
33 80 113
Hafnarríkiseftirlit
13 13
Tækjaleiga og vörusala
11 11
Tekjur samtals
142 315 457
Gjöld Gjöld
Launakostnaður
274
Önnur gjöld
148
Stofnkostnaður
32
Gjöld samtals
454
Tekjuafgangur fluttur til ársins 2000
3
Samtals
457

RANNSÓKNIR

    Á vegum Siglingastofnunar var unnið að rannsóknum fyrir 45,8 millj. kr. Helstu verkefnisflokkar eru eftirfarandi:
     Frumrannsóknir. Kostnaður 3,1 millj. kr. Með frumrannsóknum er átt við öflun ýmissa grunnupplýsinga, mælingar og rannsóknir sem stuðla að öryggi sjófarenda og réttum ákvörðunum við val á lausnum við mannvirkjagerð.
     Grunnkort af höfnum. Kostnaður 3,0 millj. kr. Dýptarmælingar voru gerðar á Árskógssandi, Dalvík, Hrísey, á hafnarstæðinu við Lagarfljót og á Djúpavogi. Enn fremur voru hafnirnar á Arnarstapa, Grundarfirði, Stykkishólmi, Djúpavogi, Hornafirði og í Þorlákshöfn mældar inn í ÍSN93 landskerfið.
     Sjávarföll og sjávarflóð. Kostnaður 3,1 millj. kr. Í framhaldi af þróun reiknilíkans fyrir sjávarföll og sjávarflóð fyrir hafsvæðið umhverfis Ísland var í samstarfi við verkfræðistofuna VST unnið að þróun reklíkans fyrir dreifingu olíu og rek hluta. Við útreikninga á útbreiðslu og reki olíuflekks og hluta á yfirborði sjávar er tekið tillit til sjávarfallastrauma, hafstrauma og rek vegna vindhraða. Hægt verður að fylgjast með dreifingu olíu í rauntíma og uppgufun ásamt niðurbroti og reki gúmmíbáta ef slys ber að höndum á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Reklíkanið verður hluti af upplýsingakerfi SÍ. Hafið var samstarf við Landmælingar Íslands við kvörðun sjávarfallamæla sem settir hafa verið upp í höfnum og tengingu þeirra við landshæðarkerfið.
     Líkantilraunir og frumáætlanir. Kostnaður 12,4 millj. kr. Lokið var við gerð líkantilrauna af Vopnafjarðarhöfn. Ýmsar lausnir voru reyndar, en fyrir valinu varð kantur með landinu sunnan Miðbryggju, skjólgarður frá Síldarbryggju yfir Friðarsker og í átt að Ásgarði, ásamt ytri skjólgarði suðaustur úr Miðhólma.
    Byggt var líkan af Djúpavogshöfn og leitað hagkvæmustu lausnar á bryggju sem nýtist til löndunar uppsjávarfisks og til viðlegu. Niðurstöður líkantilrauna var 60 m löndunarbryggja með 9 m dýpi að vestanverðu í Gleðivík. Bryggjan liggur með lítið eitt austlægari stefnu en víkin sjálf. Í öðrum áfanga er gert ráð fyrir 100 m löngum skjólgarði framan við löndunarbryggjuna.
     Öldurannsóknir. Kostnaður 4,6 millj. kr. Gerðir voru öldusveigjureikningar fyrir höfnina á Djúpavogi til að kanna ölduhæð í Gleðivík vegna fyrirhugaðrar loðnubryggju og skjólgarðs. Lokið var við könnun á ölduhæð á helstu ferjusiglingarleiðum. Hafin var vinna við öldusveigju vegna líkantilrauna af Húsavíkurhöfn. Unnið var að undirbúningi og uppsetningu á nýju öldusveigjuforriti, SWAN, sem tekið verður í notkun á árinu 2000.
     Efnisflutningar og botnrannsóknir. Kostnaður 5,5 millj. kr. Fylgst var með breytingum á botni við innsiglinguna til Hornafjarðar og víðar. Unnið var að heimildarriti um rannsóknir á siglingaleið um Hornafjarðarós. Gerð var botnrannsókn við Dysnes fyrir stóriðjuhöfn í Eyjafirði fyrir Hafnasamlag Norðurlands. Gerðar voru botnrannsóknir á hafnarstæðum við Lagarfljót.
     Almennar rannsóknir í höfnum. Kostnaður 7,4 millj. kr. Unnar voru ýmsar rannsóknir í höfnum.
     Aðrar rannsóknir. Kostnaður 6,7 millj. kr.
    Brimvarnargarðar. Unnið var áfram að þróun aðferða við hönnun bermugarða. Við hönnun bermugarðsins í Sirevåg var tekist á við hærri öldur en áður hefur verið gert. Þessi þróunarvinna nýtist síðan við forathuganir á stóriðjuhöfn í Þorlákshöfn sem unnið var að og byggjast á frumhönnun á nýjum ytri bermugörðum. Tekið var þátt í alþjóðlegri nefnd á vegum PIANC um gerð bermugarða. Birtar voru tvær greinar um byggingu bermugarða. „A Berm Breakwater on a Weak Soil, Extension of the Port of Hafnarfjörður“ á alþjóðlegu COPEDEC-ráðstefnunni og „Rational Design of the Berm Breakwater“ á alþjóðlegu Coastal Structures 99 ráðstefnunni.
    Áhættumat minni fiskiskipa í hættulegum öldum: Unnið var áfram að rannsóknum á sambandinu milli öldugerða og öryggis og stöðugleika minni fiskiskipa í brjótandi öldum með því markmiði að nýta upplýsingakerfið til að auka öryggi sjófarenda. Gerðar voru mælingar á hreyfistöðugleika fiskibátsins Skúms GK 111 við Grindarvíkur- og Garðskagadufl og þær mælingar bornar saman við mælingar á hreyfistöðugleika líkans af Skúmi með sömu öldur í líkani.
    Áhættumat siglinga stórra flutningaskipa við Suðvesturland og inn á Reyðarfjörð: Unnið var að rannsóknum að áhættumati á siglingu stórra flutningaskipa fyrir Suðvesturland og vegna fyrirhugaðs álvers á Reyðarfirði í samvinnu við Det Norske Veritas.
    Gagnagrunnur fyrir upplýsingakerfið: Hafin var vinna við gerð gagnagrunns fyrir upplýsingakerfið um veður og sjólag.

ÁHERSLUR SIGLINGASTOFNUNAR Í UMHVERFISMÁLUM

    Á árinu lagði samgönguráðuneytið ríka áherslu á umhverfismál í starfi sínu og hvatti til þess sama hjá undirstofnunum. Markmiðið var að hvetja til aukinnar umhverfisvitundar meðal starfsmanna. Í apríl kom út í fyrsta sinn umhverfisskýrsla samgönguráðuneytisins og stofnana þess, þ.e. Vegagerðarinnar, Flugmálastjórnar, Ferðamálaráðs og Siglingastofnunar, fyrir árið 1998. Skýrslan markaði upphaf skipulegs umhverfisstarfs í Siglingastofnun. Athyglinni var beint að rekstri í höfuðstöðvum stofnunarinnar og þeir þættir sem voru sérstaklega teknir til skoðunar voru: Pappírsnotkun, akstur, vélbúnaður, notkun rekstrarvara fyrir ljósritunarvélar og prentara, rafmagnsnotkun og heitavatnsnotkun.
    Stefna Siglingastofnunar í umhverfismálum til næstu ára felst m.a. í eftirfarandi:
     1.      Umhverfisvænni innkaupastefnu við almenn innkaup á vörum og búnaði.
     2.      Umhverfisvænni stefnu í samningum við verktaka.
     3.      Endurmati á verkferlum við söfnun upplýsinga um úrgang af ýmsu tagi.
     4.      Hagnýtingu á nýjustu tækni í fjarskiptum.
     5.      Hagnýtingu upplýsingatækninnar til að minnka pappírsmagn í umferð.
     6.      Vel upplýstu og áhugasömu starfsfólki við framkvæmd umhverfisstefnunnar.
    Á árinu 1999 var unnið samkvæmt þessari stefnu og áhersla lögð á að minnka pappírsmagn til ljósritunar og prentunar, takmarka notkun sendibifreiðar og stuðlað að bættri nýtingu raforku og heita vatnsins.

Tafla I. Hafnarframkvæmdir 1999 (fjárhæðir í millj. kr.).



Höfn Verkefni Styrkhlutfall Heildarkostnaður Ríkishluti
I. Ríkisstyrktar hafnarframkvæmdir
Akranes Aðalhafnargarður styrking 75% 15,1
Faxabryggja: þekja, lagnir og lýsing 60% 1,7 16,8 12,3
Snæfellsbær Arnarstapi: Dýpkun 75% 0,1
Rifshöfn: Endurbygging Norðurgarðs 75% 8,0
Ólafsvík: Flotbryggja 60% 1,3
Ólafsvík: Endurnýjun innsiglingabauju 75% 2,2
Ólafsvík: Björgunarstigar og vatnslagnir 60% 0,6
Fjármagnskostnaður 90% 0,2 12,4 9,0
Grundarfjörður Lenging Stórubryggju 60% 0,8 0,8 0,5
Stykkishólmur Stykkisbryggja: styrking landgangs 60% 5,1
Steinbryggja endurbyggð 60% 9,2 14,3 8,6
Dalabyggð Smábátaaðstaða 75% 0,7 0,7 0,5
Vesturbyggð Bíldudalur: Upptökubraut 60% 1,7
Brjánslækur: Steypt þekja 60% 1,5
Fjármagnskostnaður 90% 1,0 3,6 2,3
Tálknafjörður Uppsátur fyrir smábáta 60% 2,7
Stálþil, þekja lagnir og lýsing 60% 0,5 3,2 1,9
Bolungarvík Lýsing og raflögn við Brjót 60% 0,2
Flotbryggja 60% 7,5
Dýpkun í innsiglingu og höfn 75% 0,3 8,0 4,8
Ísafjarðarbær Ísafjörður: Stálþil 60% 39,4
Ísafjörður: Dýpkun 75% 31,8
Ísafjörður: Smábátaaðstaða 60% 1,3
Flateyri: Stálþil, endurbygging 60% 55,1
Suðureyri: Grjótvörn, styrking 75% 0,3 127,9 81,6
Súðavík Dýpkun hafnar 75% 10,6 10,6 8,0
Drangsnes Dýpkun í innsiglingunni 75% 16,7 16,7 12,5
Hólmavík Dýpkun fyrir flotbryggju 75% 0,3 0,3 0,2
Skagaströnd Innsiglingamerki 90% 0,4
Fjármagnskostnaður 90% 1,0 1,4 1,3
Skagafjörður Sauðárkrókur: Dýpkun 75% 15,8 15,8 11,9
Siglufjörður Smábátadokk, viðlegubryggja 60% 0,6
Löndunarbryggja, raflagnir 60% 1,2
Skjólgarður frá enda brjótsins 75% 36,3 38,1 28,3
Hafnasamlag Dalvík: Norðurgarður – stálþil, endurbygging 60% 36,7
Eyjafjarðar Hrísey: Norðurgarður – lenging 75% 20,8
Hrísey: Masturshús 60% 0,6
Ólafsfjörður: Norðurgarður – styrking 75% 13,7
Fjármagnskostnaður vegna Hríseyjar 60% 0,2
Fjármagnskostnaður vegna Dalvíkur 90% 0,8 72,8 49,1
Grímsey Styrking Aðalhafnargarðs 75% 1,9
Innsiglingaljós á bryggjuhaus 90% 0,3
Fjármagnskostnaður 90% 0,2 2,4 1,9
Hafnasamlag Hjalteyri: Dýpkun 75% 0,3
Norðurlands Akureyri: Fiskihöfn, dýpkun 75% 35,6
Akureyri: Fiskihöfn, stálþil 60% 38,7
Fjármagnskostnaður 90% 0,5 75,1 50,6
Húsavík Innsiglingaljós færð/garðsendaljós 90% 1,6
Flotbryggja 75% 9,0 10,6 6,6
Kópasker Dýpkun 75% 0,5 0,5 0,4
Raufarhöfn Löndunarbryggja: Stálþil 60% 35,5
Bryggjurif Fiskavíkurbryggju 60% 1,2
Grjótgarður í stað Fiskavíkurbryggju 75% 5,1 41,8 25,8
Þórshöfn Suðurgarður 90% 3,0
Norðurgarður lenging 75% 19,6 22,6 17,4
Bakkafjörður Vatnslögn á hafnarsvæði 60% 2,4 2,4 1,4
Vopnafjörður Flotbryggja, lýsing og raflögn 60% 5,0
Löndunarbryggja, stálþil 60% 15,0
Dýpkun að löndunarbryggju 75% 77,4 97,4 70,1
Seyðisfjörður Fjármagnskostnaður 60% 0,6 0,6 0,4
Fjarðabyggð Eskifjörður.: Bræðslubryggja 60% 8,0
Eskifjörður: Stálþilsbryggja 60% 30,0 38,0 22,8
Fáskrúðsfjörður Hafskipabryggja: raflagnir 60% 4,9 4,9 2,9
Stöðvarfjörður Smábátahöfn: Flotbryggja 60% 3,9 3,9 2,3
Djúpivogur Skjólgarður í Gleðivík 75% 1,7
Uppsátur fyrir smábáta 60% 0,9
Stálþil í Gleðivík 60% 0,6 3,2 2,2
Höfn í Hornafirði Dýpkun hafnar 75% 6,3
Trébryggja við Vogarhús 60% 1,7
Þinganesgarður 75% 1,3 9,3 6,7
Vestmannaeyjar Friðarhöfn: Endurbyggt stálþil 60% 24,7
Friðarhöfn austurendi: Nýtt stálþil 60% 14,6
Nausthamarsbryggja: Smábátaaðstaða 60% 4,5
Nausthamarsbryggja.: Smábátaaðstaða, dýpkun 75% 1,5
Nausthamarsbryggja: Endurbygging 60% 6,6
Nausthamarsbryggja: Landstöplar 60% 0,1
Upplýsingakerfi 75% 1,0
Dýpkun innsiglingar 75% 1,5
Stálþil við Löngu: Dýpkun 75% 1,0 55,5 34,1
Þorlákshöfn Dýpkun hafnarsvæðis 75% 2,6
Suðurvarargarður, styrking 75% 5,6 8,2 6,2
Grindavík Dýpkun innsiglingar, 2. áfangi 75% 427,7 427,7 320,8
Sandgerði Dýpkun hafnar 75% 42,1 42,1 31,6
Hafnasamlag Björgunarstigar á bryggjur 60% 0,4
Suðurnesja Garður: Grjótvörn við bryggju 75% 1,3 1,7 1,2
Af óskiptu fé Snæfellsbær: Dýpkun 75% 0,6 0,6 0,5
Leiðrétt vegna framkvæmda fyrri ára 2,3
Alls ríkisstyrktar framkvæmdir 1.191,9 1.191,9 841,0
60% 376,2
75% 808,9
90% 6,8
Samtals 1.191,9 1.191,9 841,0

II. Ferjubryggjur
Flatey á Breiðafirði 100% 3,7 3,7
Vigur 100% 0,2 0,2
Æðey 100% 0,1 0,1
Mjóifjörður 100% 0,7 0,7
Samtals ferjubryggjur 4,7 4,7


Tafla II. Framkvæmdir við sjóvarnir 1999 (fjárhæðir í millj. kr.).


Sveitarfélag
Framkvæmda- kostnaður Hluti
ríkisins
Akranes 3,9 3,4
Snæfellsbær 4,7 4,1
Reykhólahreppur, Flatey 0,7 0,6
Ísafjarðarbær 6,7 5,9
Árneshreppur 0,5 0,4
Hólmavík 0,3 0,3
Dalvík 1,8 1,5
Hrísey 2,4 2,1
Hjalteyri 0,6 0,5
Grenivík 0,5 0,4
Þórshöfn 4,8 4,5
Árborg 3,0 2,6
Ölfushreppur 2,4 2,1
Herdísarvík 2,5 2,5
Gerðahreppur 1,1 1,0
Reykjanesbær 3,4 2,9
Vogar 4,8 4,2
Bessastaðahreppur 5,1 4,1
Óskipt, áætlanir 0,1 0,1

Samtals
49,3 43,2


Tafla III. Rannsóknaverkefni 1999 (fjárhæðir í millj. kr.).

Almennar rannsóknir, óskipt 6,2
Ýmsar hafnarrannsóknir 2,3
Umhverfisrannsóknir 6,9
Skiparannsóknir 1,3
Líkantilraunir
    Vopnafjörður 3 ,9
    Djúpivogur 6 ,5
    Hreyfistöðugleiki skipa 0 ,6
    Sameiginlegur kostnaður 1 ,4 12,4
Rannsóknaverkefni í höfnum
    Snæfellsbær 0 ,1
    Grundarfjörður 0 ,7
    Ísafjörður 0 ,1
    Drangsnes 0 ,1
    Skagaströnd 0 ,4
    Skagafjörður 0 ,3
    Hafnasamlag Eyjafjarðar 1 ,5
    Hafnasamlag Norðurlands 1 ,7
    Húsavík 0 ,7
    Vopnafjörður 0 ,1
    Lagarfljót 2 ,8
    Seyðisfjörður 0 ,1
    Fjarðabyggð 0 ,3
    Djúpivogur 4 ,5
    Höfn í Hornafirði 1 ,0
    Mýrdalshreppur 0 ,2
    Vestmannaeyjar 0 ,1
    Þorlákshöfn 0 ,9
    Reykjavík 0 ,9
    Rannsóknir í höfnum, óskipt 0 ,2 16,7
Samtals 45,8


Tafla IV. Staða ríkissjóðs vegna hafnargerða 1999 (fjárhæðir í millj. kr.).

Höfn Staða ríkissjóðs í árslok 1998 Ríkishluti framkvæmda
Fjárveiting
Staða ríkissjóðs í árslok 1999
Vantar Ónotað 1999 1999 Vantar Ónotað
Akranes 8,7 12,3 14,3 6,7
Borgarnes 0,1 0,1
Snæfellsbær 11,2 9,0 3,3 5,5
Grundarfjörður 0,0 0,5 21,0 20,5
Stykkishólmur 5,3 8,6 9,5 4,4
Reykhólahöfn 0,1 0,1
Búðardalur 0,5 13,0 12,5
Vesturbyggð 5,6 2,3 4,7 3,2
Tálknafjörður 1,9 1,9 2,3 2,3
Bolungarvík 10,7 4,8 5,9
Ísafjarðarbær 50,3 81,6 59,3 28,0
Súðavík 0,5 8,0 7,5
Norðurfjörður 0,0
Drangsnes 0,1 12,5 12,1 0,3
Hólmavík 0,4 0,2 7,3 7,5
Húnaþing vestra 4,7 4,7
Blönduós 0,9 0,9
Skagaströnd 6,3 1,3 7,5 0,1
Skagafjörður 14,0 11,9 0,2 2,3
Siglufjörður 4,0 28,3 28,9 4,6
Hafnasamlag Eyjafjarðar 22,9 49,1 48,3 23,7
Grímsey 2,0 1,9 2,5 1,4
Hafnasamlag Norðurlands 57,9 50,6 94,9 13,6
Húsavík 36,5 6,6 10,7 32,4
Tjörnes
Kópasker 1,7 0,4 3,4 1,3
Raufarhöfn 19,9 25,8 40,2 5,5
Þórshöfn 20,4 17,4 3,0
Bakkafjörður 1,0 1,4 0,4
Vopnafjörður 1,5 70,1 68,3 0,3
Borgarfjörður eystri
Seyðisfjörður 4,2 0,4 6,4 1,8
Fjarðabyggð 9,6 22,8 28,4 4,0
Fáskrúðsfjörður 5,2 2,9 7,4 0,7
Stöðvarfjörður 2,1 2,3 4,4
Breiðdalsvík 4,6 0,7 5,3
Djúpivogur 0,4 2,2 2,6
Höfn í Hornafirði 5,0 6,7 46,0 34,3
Vestmannaeyjar 47,3 34,1 76,8 4,6
Eyrarbakki 1,0 1,0
Þorlákshöfn 12,1 6,2 8,5 9,8
Grindavík 201,1 320,8 94,0 427,9
Sandgerði 82,7 31,6 61,6 52,7
Hafnasamlag Suðurnesja 75,5 1,2 34,0 42,7
Hafnarfjörður 15,0 6,0 9,0
Garðabær
Óskipt 19,4 2,8 -6,2 10,4
Samtals 627,9 145,9 841,0 821,0 653,1 151,1

Tafla V. Fjárveitingar til hafnarframkvæmda 1999 (fjárhæðir í millj. kr.).

Almennar hafnir 821,0
Tollaðstaða á Seyðisfirði 5,3
Lendingarbætur
    Hellnar, Snæfellsbæ 0 ,4
        Reykjafjörður 0 ,4
    Reykir á Reykjaströnd 0,4
    Kleifar í Ólafsfirði 0,4
    Skálavík í Seyðisfirði 0,4
    Kjörvogur Reykjafirði 0,3
        Óskipt 0 ,2 2,5
Ferjubryggjur 19,7
Samtals 848,5


Tafla VI. Fjárveitingar til sjóvarna 1999 (fjárhæðir í millj. kr.).

Sjóvarnargarðar (fjárlagaliður 10-333)
Akranes 3,2
Snæfellsbær 4,1
Ísafjörður 6,1
Blönduós 0,5
Höfðahreppur 0,3
Dalvík 0,6
Arnarneshreppur 0,5
Svalbarðsstrandarhreppur 0,5
Grenivík 7,3
Vopnafjörður 2,4
Neskaupsstaður 3,2
Árborg 7,2
Selvogshreppur 2,3
Gerðahreppur 1,8
Reykjanesbær 2,6
Vatnsleysustrandarhreppur 4,4
Bessastaðahreppur 4,0
Samtals 51,0

Tafla VII. Úthlutanir Hafnabótasjóðs 1999 (fjárhæðir í millj. kr.).

Styrkir
a. Styrkir til nýframkvæmda
Stykkishólmur 2,4
Vesturbyggð 0,6
Ísafjörður 19,0
Drangsnes 2,4
Hafnasamlag Eyjafjarðar 5,0
Grímsey 0,2
Húsavík 2,2
Bakkafjörður 0,1
Vopnafjörður 11,1
Stöðvarfjörður 1,0
Djúpivogur 0,3
Sandgerði 13,6 57,9
b. Tjónastyrkir
Grundarfjörður 1,7
Snæfellsbær 1,7
Vesturbyggð 0,3
Kópasker - 0,1 3,6
Styrkir alls 61,5
Lán
a. Lán vegna heimahluta í nýframkvæmdum
Stykkishólmur 2,4
Ísafjörður 16,1
Sandgerði 6,6 25,1
b. Bráðabirgðalán út á væntanlega fjárveitingu
Hafnasamlag Eyjafjarðar 10,0 10,0
Lán alls 35,1
Samtals lán og styrkir 96,6