Ferill 651. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1386  —  651. mál.




Skýrsla



samgönguráðherra um rannsóknir sjóslysa.

(Lögð fyrir Alþingi á 125. löggjafarþingi 1999–2000.)



    Samgönguráðherra skipar rannsóknarnefnd sjóslysa í samræmi við 230. gr. siglingalaga, nr. 34/1985.
    Nefndina skipa nú: Haraldur Blöndal hrl., formaður, Emil Ragnarsson skipaverkfræðingur, Árni Árnason vélfræðingur, Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnarskólans, og Ólafur M. Kristinsson, hafnarstjóri í Vestmannaeyjum.
    Kristján Guðmundsson skipstjóri, framkvæmdastjóri nefndarinnar.

    Fjárveiting til rannsóknarnefndarinnar á árinu 1999 var 16,9 m.kr.
    Kostnaður vegna starfsemi nefndarinnar hefur verið sem hér segir:

Ár Krónur
1991 6.230.204
1992 5.858.538
1993 6.621.823
1994 7.705.328
1995 8.707.209
1996 8.756.513
1997 11.555.170
1998 16.204.272
1999 14.914.467

    Á 123. löggjafarþingi 1998–1999 var lagt fram frumvarp til laga um rannsóknir sjóslysa. Ekki náðist að afgreiða það á því þingi. Í vetur var frumvarpið endurskoðað með hliðsjón af gagnrýni og ábendingum og lagt fram að nýju. Brýnt er að setja nýjan lagaramma um rannsóknir sjóslysa, ekki síst í ljósi þess að Alþjóðasiglingamálastofnunin hefur samþykkt ályktun um rannsóknir sjóslysa og má vænta þess að einstök aðildarríki stofnunarinnar muni fara eftir henni í framtíðinni. Þá er þess einnig að geta að rannsóknir á sjóslysum taka of langan tíma vegna núverandi skipulags. Nauðsynlegt er að rannsóknaraðilar sjóslysa geti tafarlaust haft samband við aðila þegar sjóslys verða, bæði með tilliti til þess að ná glöggum framburði vitna og eins til þess að koma að vettvangi áður en hann spillist, ef hægt er vegna aðstæðna.
    Tafsamara reyndist að gefa út skýrslu sjóslysanefndar fyrir árið 1996, en búist hafði verið við, og kom hún ekki út fyrr en í nóvember s.l. Nú er lokið rannsóknum á öllum málum vegna ársins 1997 og 1998, og er skýrsla vegna ársins 1997 tilbúin til prentunar en skýrsla vegna ársins 1998 verður tilbúin til prentunar innan nokkurra vikna. Samkvæmt samningum um útgáfu skýrslunnar á skýrslan að koma út ca tveimur mánuðum eftir að hún er afhent þeim,er sér um prentun og útgáfu, og má því gera ráð fyrir, að báðar skýrslurnar verði komnar út fyrir ágústbyrjun. Eins og fyrr er útgáfa skýrslunnar fjármögnuð þannig að safnað er auglýsingum í þær og þeim síðan dreift meðal sjómanna. Af málum ársins 1999 er eftir að ljúka rannsókn á 42 málum. Ætlunin er að í framtíðinni verði hægt að nálgast skýrslur nefndarinnar á netinu.
    Tala þeirra mála er nefndin hefur tekið til rannsóknar hafa verið svipuð frá ári til árs. Á árinu 1999 var ánægjuleg breyting til batnaðar, en þá komu mun færri mál til rannsóknar en áður eða aðeins 86. Aðeins varð eitt dauðaslys á árinu. Er um það vísað í töflu I til samanburðar. Í töflu II er yfirlit um skiptingu slysa, sem tilkynnt eru til Tryggingarstofnunar ríkisins. Tölur fyrir árin 1997 og 1998 eru ekki tilbúnar.

    Um áramót 1998/1999 voru mál óafgreidd sem hér segir:

Frá árinu 1997 19 mál
Frá árinu 1998 70 mál

    Á árinu 1999 komu 86 mál til afgreiðslu hjá nefndinni auk fyrri óafgreiddra mála. Á árinu voru afgreidd 17 mál frá árinu 1997 og 64 mál frá árinu 1998. Haldnir voru 17 fundir hjá nefndinni. Voru þannig óafgreidd um síðustu áramót 2 mál frá árinu 1997 og 6 mál frá árinu 1998. Þessum málum er nú öllum lokið.

TAFLA I. Yfirlit um mál, sem komið hafa til rannsóknar.

Eðli mála 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999
Skip sekkur 8 18 14 10 17 6 7 8 4
Skip strandar 22 15 27 28 19 17 10 14 7
Árekstur 11 3 7 5 7 11 4 2 8
Eldur um borð 8 6 4 14 12 11 7 6 3
Leki að skipi 5 6 3 3 1 1 1 0 0
Annað 15 11 13 6 3 12 6 10 7
Slys á mönnum 64 38 41 69 56 65 55 63 56
Dauðaslys 13 12 9 4 2 9 5 3 1
Samtals 146 109 118 139 117 132 95 106 86

TAFLA II. Yfirlit um slys samkvæmt tilkynningum til Tryggingarstofnunar ríkisins.

Atburður 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997
Dauðaslys:
Þegar skip ferst eða strandar 7 7 5 1 0 5 4
Maður fellur fyrir borð 0 4 1 1 1 2 1
Við vindur 0 0 0 1 0 0 0
Af öðrum orsökum 4 1 3 1 1 2 0
Brunaslys: 11 12 9 4 2 9 5
Eldur um borð 1 2 0 0 3 0 0
Af völdum sýru eða annarra efna 0 2 0 0 3 0 0
Af völdum sjóðandi vökva 2 0 1 1 3 2 1

Atburður 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997
Af öðrum orsökum: 3 5 0 3 1 1 2
Verður fyrir skurði eða stungu 57 54 58 48 43 39 31
Slys vegna brotsjóa 19 15 9 12 5 9 11
Slys við vindur:
Lendir inni á vindu 7 6 3 8 0 1 2
Klemmist af völdum hífinga 12 17 18 26 24 29 17
Eitthvað slæst til við hífingu 64 75 73 67 62 73 65
Festingar á blökkum o.fl. bilar 2 1 14 11 10 2 7
Varð á milli, klemmdist 48 55 58 39 27 35 30
Rann til á þilfari og féll 66 114 112 82 101 90 107
Slasaðist við störf í vélarrúmi 2 2 14 5 1 6 7
Slasaðist við störf í lest 25 32 17 29 18 26 18
Slasaðist við löndun afla 9 7 10 8 6 5 2
Slasaðist við losun/lestun/sjóbúnað á flutningaskipi 0 0 3 2 0 5 1
Slasaðist við að fara að eða frá borði 11 11 9 13 7 0 3
Slasaðist við landfestar 7 2 6 4 6 8 3
Slasaðist við fall í stiga 23 22 6 18 16 18 13
Önnur slys ekki áður tilgreind 90 60 68 67 50 62 49
Tognun í baki 23 23 13 21 17 9 10
Tognun á útlim 9 7 4 5 12 7 4
Samtals 491 524 505 473 417 436 388