Meðferð opinberra mála

Mánudaginn 15. janúar 2001, kl. 14:20:11 (3561)

2001-01-15 14:20:11# 126. lþ. 57.1 fundur 367. mál: #A meðferð opinberra mála# (opinber rannsókn) frv., Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 57. fundur, 126. lþ.

[14:20]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil að þessu gefna tilefni taka fram að ég ræddi þetta mál sérstaklega með formönnum þingflokka á fundi í morgun. Þá ræddi ég um hvernig fundahöldum og umræðum yrði hagað í dag og það hefur ekkert breyst síðan þá.

Ég vil líka taka fram að það kom fram í máli hv. 13. þm. Reykv. að hann hafði búist við því að ekki yrði rætt um almannatryggingalögin í dag þannig að hann hefur þá átt von á því að önnur mál yrðu rædd í dag þar sem við vorum sammála um að nýta þá vinnuviku sem er nú að hefjast hjá þingmönnum.