Breyting á stjórn þingflokks Samfylkingarinnar

Mánudaginn 12. febrúar 2001, kl. 15:08:28 (4396)

2001-02-12 15:08:28# 126. lþ. 67.93 fundur 287#B breyting á stjórn þingflokks Samfylkingarinnar# (aths. um störf þingsins), ÖS
[prenta uppsett í dálka] 67. fundur, 126. lþ.

[15:08]

Össur Skarphéðinsson:

Herra forseti. Ég vil við upphaf þingfundarins tilkynna þingheimi að í dag hefur verið gerð breyting á stjórn þingflokks Samfylkingarinnar. Hv. þm. Rannveig Guðmundsdóttir hefur óskað eftir því að láta af störfum sem formaður þingflokksins. Í stað hennar hefur hv. þm. Bryndís Hlöðversdóttir verið kjörinn formaður.

Stjórn þingflokksins er að öðru leyti eins skipuð. Hv. þm. Jóhann Ársælsson er varaformaður og hv. þm. Guðrún Ögmundsdóttir er ritari.