[prenta uppsett í dálka] 67. fundur, 126. lþ.
Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Ég ítreka spurningu mína til hæstv. ráðherra: Ætlar hann persónulega sem ráðherra að beita sér fyrir því að þetta mál nái fram að ganga, í stað þess að vísa því alltaf yfir á aðra? Ætlar hæstv. ráðherra hér að koma og segja: Já, ég skal standa við þetta!
Þá verðum við ánægð.