[prenta uppsett í dálka] 71. fundur, 126. lþ.
Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég vona að enginn hafi tekið orð mín þannig að ég, komin úr sjómannsfjölskyldu vestan af fjörðum, haldi því fram að einhver hafi borið skaða af því að fara ungur til sjós. Það var, eins og fram kom í máli hæstv. ráðherra, til siðs á þeim tíma. Unglingar hlutu ekki alltaf langa skólagöngu. Þeir byrjuðu ýmist sem sumarfólk eða voru 14 ára á sjónum allan ársins hring. Auðvitað var það eins og önnur vinna, eitthvað hollt sem menn upplifðu og þeir komu sér til manns með þeim hætti eða öðrum.
Ég tek undir þau orð ráðherrans að nú séu breyttir tímar. Núna þarf að verja réttindi og skoða hver umgjörðin á vinnumarkaði er. Hér hefur komist á umgjörð fyrir vinnutíma á vinnumarkaði og eðlilegt að þær reglur gildi einnig um skipaflotann. Við erum hér fyrst og fremst að tala um aldursmörk. Þau eru líka eðlileg í dag. Þess vegna kemur það mér ekkert á óvart að meiri sátt sé um þessi mál en var fyrir fjórum eða fimm árum þegar við höfðum viðlíka mál til meðferðar. Þannig þróast málin.