Lögleiðing ólympískra hnefaleika

Fimmtudaginn 15. febrúar 2001, kl. 14:25:08 (4695)

2001-02-15 14:25:08# 126. lþ. 71.6 fundur 235. mál: #A lögleiðing ólympískra hnefaleika# frv., SJS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur, 126. lþ.

[14:25]

Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):

Herra forseti. Það kemur fyrir að hv. þm. Árni Johnsen ber hér nýja efnisþætti inn í umræðuna. Nú kom hann með nýyrði, orðið ,,heilaárekstur``. Ég hef ekki heyrt þetta fyrr. Skyldi þetta standa einhvers staðar í umferðarlögunum, að það geti orðið heilaárekstur? En hv. þm. á þetta nýyrði og hlýtur að útskýra það hér fyrir mönnum.

Varðandi það að tveir sálfræðingar hafi mætt á fund menntmn. og mælt með frv. þá er það ágætt, hið besta mál. Þá eru örugglega til a.m.k. tveir sálfræðingar á Íslandi sem mæla með þessu. Hins vegar er alveg eins líklegt að 30 séu á móti því. Þetta eru nú ekki meiri vísindi en svo. Að koma með þær upplýsingar að tveir ónafngreindir sálfræðingar hafi mætt á fund þingnefndar og haft einhverja afstöðu í tilteknu máli --- sem er nú kannski ekki sérstakt sérfræðimál sálfræðinga --- segir mér ósköp lítið í þessum efnum. Ef menn eru að reyna að selja mönnum þetta út á að hér sé á ferðinni göfug sjálfsvarnaríþrótt þá mótmæli ég því. Þær íþróttir eru til sem ekki byggja á þessu árásarofbeldi heldur á sjálfsvörn og því að verjast þannig að andstæðingurinn skaðist ekki.