[prenta uppsett í dálka] 76. fundur, 126. lþ.
Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Ég vil að það komi fram að ég sem iðnrh. hef ekki beina aðkomu að þessu máli heldur er það dómsmrh. sem yfirmaður Landhelgisgæslunnar og fjmrh. sem yfirmaður Ríkiskaupa. En það þýðir ekki að þetta sé ekki áhugamál mitt. Það er sannkallað áhugamál mitt að færa aukin verkefni inn í landið og þess vegna hef ég reynt að hafa afskipti af málinu að því marki sem ég get.
Ég vil að það komi líka fram að ég spurði eftir því hvort það væri skylda að hafa útboðsgögn á ensku. Það kom fram hjá fulltrúum Ríkiskaupa að það er ekki skylda en það er samt gert.