[prenta uppsett í dálka] 78. fundur, 126. lþ.
Forseti (Halldór Blöndal):
Af þessu tilefni er óhjákvæmilegt að taka fram að orðaskipti okkar urðu vegna þess að hv. þm. óskaði eftir því og taldi rétt að forseti ætti fund með formönnum þingflokka um þau mál sem hér hafa verið gerð að umtalsefni. Það mál sem hér var rætt var tekið upp vegna bréfs sem forseta hafði verið sent frá tveim hv. þingmönnum í menntmn. Forseti leit svo á að hv. þm. hefði beint þeim orðum til hans að þessi mál yrðu tekin upp á fundi forseta með formönnum þingflokka og má athuga það í útskrift hvort þetta sé réttur skilningur forseta á orðum hv. þm.