Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég ætla ekkert að ræða um traustið, því það er alveg greinilegt hvar það liggur. En vegna þess að hv. þm. sagði að ég færi um víðan völl vil ég segja að ég var að svara henni. Ég var að svara henni varðandi bílastyrkina. Hún minntist ekkert á lyfin aftur. Ég tók eftir því. Og hún minntist heldur ekkert á það að við höfum fjölgað bílastyrkjum og við höfum hækkað bílastyrki, (Gripið fram í.) við höfum hækkað bílastyrki til þeirra sem eru að fá bíl í fyrsta skipti, til ungra öryrkja. Það hefur margfalt hækkað. Ég held að hv. þm. hljóti að vera sammála mér um að það hafi verið rétt. Þannig að ef hv. þm. væri svolítið sanngjörn og færi yfir sviðið, held ég að hún sæi ýmsa jákvæða punkta sem hafa gerst.