Húsaleigubætur

Fimmtudaginn 05. apríl 2001, kl. 18:44:58 (6474)

2001-04-05 18:44:58# 126. lþ. 107.17 fundur 625. mál: #A húsaleigubætur# (réttur til bóta o.fl.) frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 107. fundur, 126. lþ.

[18:44]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég veit ekki hvort það hefur nokkuð upp á sig að ræða um þetta úr ræðustólnum við hv. þm. Pétur Blöndal. Við erum ekki sammála um húsaleigubæturnar og það hefur iðulega komið fram. Ég veit mjög vel af skoðunum hans. Ég tel að sjálfsögðu að jafngreindur og flugskýr maður og hann hafi að vissu leyti rétt fyrir sér. Hann færir sterk rök fyrir máli sínu. Ég tel að ég geti gert það líka en held að við ættum ekki að eyða tímanum í það í kvöld.