[prenta uppsett í dálka] 109. fundur, 126. lþ.
Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ég vil nota tækifærið og þakka þingheimi góðar óskir í minn garð og ég þakka fyrir þá fyrirspurn sem hér er upp borin.
Varðandi þetta mál er það að segja að sú nefnd sem fyrirspyrjandi gat um undir forsæti Ólafs Davíðssonar hefur unnið af krafti þessa dagana og tillagna hennar er að væntan innan tíðar, vonandi innan ekki mjög margra daga. Vinna hennar er á lokastigi.
Vegna þess að þessi mál eru í nefndinni enn þá og tillögur hennar liggja ekki fyrir þá hef ég ekki upplýsingar til að fara með hér um fjárhæðir eða í hverju tillögurnar verða fólgnar en ég mun auðvitað gera grein fyrir því þegar þar að kemur.
Ég vil einnig vekja athygli á því að þessi nefnd er á vegum fleiri ráðuneyta en heilbrrn. en eigi að síður ef til lagabreytinga kemur þá mun heilbrrh. væntanlega leggja það fram. En það er of snemmt að segja um það á þessu stigi.