[prenta uppsett í dálka] 109. fundur, 126. lþ.
Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Ég get upplýst að skónum, sem ég var í, brá ég bara á mig meðan ég var þarna og þetta eru sömu skór og ég nota í þinginu og hvergi annars staðar á Íslandi þannig að ég viðurkenni það. Þetta eru skór sem ég nota í þingsölum og ég vona að það verði ekki til þess að það verði til smits. En það má vel vera eins og hæstv. ráðherra minnist á að sóttvörnin sé í dreglinum sem maður gengur eftir en ég hafði það ekki á tilfinningunni að ég væri að fara í gegnum sótthreinsun enda var ekki að sjá neina sérstaka merkingu, a.m.k. ekki áberandi, sem vakti athygli á því.
Ég ítreka, herra forseti, hversu gríðarlega mikilvægt það er fyrir íslenska matvælaframleiðslu, íslenskan landbúnað og íslenska matvælaframleiðslu í heild að við höfum öruggt heilbrigðisvottorð fyrir framleiðslu okkar. Það er svo gríðarlega mikilvægt að þar má í engu slaka á þeim verði og gæta sín vel á öllum undanþágum og smugum sem menn geta reynt að finna á því að fara í kringum þessi lög. Sú þáltill. sem hér er flutt er einmitt til að ítreka og skerpa á því að við stöndum okkur í raun vel í að verja landbúnað okkar fyrir smitun og líka heilsu íbúa landsins.