Mannabreytingar í nefndum

Fimmtudaginn 26. apríl 2001, kl. 10:31:42 (6840)

2001-04-26 10:31:42# 126. lþ. 113.93 fundur 486#B mannabreytingar í nefndum#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 113. fundur, 126. lþ.

[10:31]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur tilkynning frá þingflokki framsóknarmanna um mannabreytingar í nefndum, sbr. 16. gr. þingskapa. Magnús Stefánsson tekur sæti Jóns Kristjánssonar í heilbr.- og trn., samgn. og utanrmn., svo og sæti Ólafs Arnar Haraldssonar í félmn. Þá tekur Jónína Bjartmarz sæti Jóns Kristjánssonar sem aðalmaður í Íslandsdeild NATO-þingsins en Magnús Stefánsson verður varamaður. Loks tekur Magnús Stefánsson sæti Jónínu Bjartmarz sem aðalmaður í Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu.