Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Ég hef talað áður í þessari umræðu og hef reynt að hlíta þeim fyrirmælum þingskapa og hæstv. forseta að halda mig við efnið, sem er fundarstjórn forseta. Hún er sannarlega að verða æ aðfinnsluverðari.
Hæstv. forseta ber að stjórna þessum fundi af réttlæti og deila út fundartíma og fundarstjórn sinni jafnt á alla, hvort heldur þeir eru úr stjórnarliðinu eða stjórnarandstöðunni. Ég verð að segja, herra forseti, að fundarstjórn hæstv. forseta á þessum fundi hefur ekki borið merki um það.
Hér kemur einn tiltekinn þingmaður, hv. þm. Pétur H. Blöndal, og úthellir svívirðingum yfir heila starfsstétt sem hefur engan fulltrúa hér. Hæstv. forseti, þrumur eins og finngálkn í stólnum, gerir enga tilraun til að halda hv. þm., sem er stjórnarliði, við efnið.
Hér koma aðrir þingmenn, t.d. hv. þm. Ögmundur Jónasson sem má þola að vera þráfaldlega truflaður í ræðu sinni, þá er herra forseti reiðubúinn með hamarinn á bjöllunni og lemur hana eins og skopparakringlu.
Herra forseti. Það er ekki hægt að una því að réttlæti forseta sé svo skakkt og illa útdeilt á þessum fundi. Ég tel að þetta sé stórlega ámælisvert og vil finna að því við herra forseta. Ég tel að hann verði að reyna, miklu betur en hann hefur gert á þessum fundi, að aga fundinn og stjórna, án tillits til þess hvort menn eru í stjórn eða stjórnarandstöðu en það hefur hann ekki gert á þessum fundi.