Kjaramál fiskimanna og fleira

Mánudaginn 14. maí 2001, kl. 19:10:15 (7743)

2001-05-14 19:10:15# 126. lþ. 122.1 fundur 737. mál: #A kjaramál fiskimanna og fleira# (breyting ýmissa laga) frv. 34/2001, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur, 126. lþ.

[19:10]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef aldrei fullyrt að þetta frv. yrði óbreytt að lögum. Ég treysti hv. sjútvn. prýðilega til þess að meðhöndla þetta mál. Ég hef einmitt verið að bjóða fram aðstoð við að leiða tiltekin atriði í frv. til farsælla lykta. Ég held að við séum með sama frv.