[prenta uppsett í dálka] 122. fundur, 126. lþ.
Karl V. Matthíasson (andsvar):
Herra forseti. Þegar við höfum hlustað á fréttir eða horft á fréttir og séð viðtöl við útvegsmenn þá hefur sífellt komið fram hjá þeim að alls ekkert gangi og enginn viðræðuflötur sé í samningaviðræðunum sem stæðu yfir. Ég hef skilið framkomu þeirra í fjölmiðlum þannig að í raun sé ekkert hægt að gera annað en setja lög á þetta verkfall því allt sé algerlega í hnút.