Kjaramál fiskimanna og fleira

Miðvikudaginn 16. maí 2001, kl. 15:21:45 (7908)

2001-05-16 15:21:45# 126. lþ. 125.1 fundur 737. mál: #A kjaramál fiskimanna og fleira# (breyting ýmissa laga) frv. 34/2001, Frsm. minni hluta GAK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 125. fundur, 126. lþ.

[15:21]

Frsm. minni hluta sjútvn. (Guðjón A. Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Á ég að skilja þetta andsvar hæstv. ráðherra þannig að ef í nál. okkar hefði verið fellt út orðið ,,aðili`` sem við teljum hér aðila að þessari deilu sem hefur verið uppi og það hefði staðið Sjómannasamband Íslands að þá væri um rétta tilvitnun að ræða?