[prenta uppsett í dálka] 125. fundur, 126. lþ.
Halldór Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Það er leiður ávani sem hv. 3. þm. Norðurl. e. hefur tamið sér, að hreyta fúkyrðum til þingmanna og reyna að tala niður til þeirra, tala um að þeir séu að missa niður um sig buxurnar og þar fram eftir götunum. Mér finnst þegar verið er að tala um alvörumál ekki viðeigandi að hafa uppi þess háttar talshátt.