Kjaramál fiskimanna og fleira

Miðvikudaginn 16. maí 2001, kl. 17:33:52 (7925)

2001-05-16 17:33:52# 126. lþ. 125.1 fundur 737. mál: #A kjaramál fiskimanna og fleira# (breyting ýmissa laga) frv. 34/2001, SJS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 125. fundur, 126. lþ.

[17:33]

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Í þessum fyrri tölulið breytingartillagna sem fluttar eru af meiri hluta sjútvn. og fæddust eftir miklar hríðir og margra klukkustunda innantökur meiri hlutans í morgun og fram eftir degi, varð engu að síður sú dapurlega niðurstaða að til stendur að setja undir lögin aðila sem ýmist hafa aflýst verkfalli eða aldrei staðið í slíkum aðgerðum. Þetta er fáheyrð niðurstaða, herra forseti, og er engin leið önnur en að mótmæla því mjög harðlega hvernig hér er að verki staðið og greiða atkvæði gegn þessari breytingartillögu, herra forseti, því að hún inniheldur áfram það fráleita ákvæði frv. að það taki yfir algerlega óskylda aðila.