Kjaramál fiskimanna og fleira

Miðvikudaginn 16. maí 2001, kl. 17:35:30 (7927)

2001-05-16 17:35:30# 126. lþ. 125.1 fundur 737. mál: #A kjaramál fiskimanna og fleira# (breyting ýmissa laga) frv. 34/2001, GAK (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 125. fundur, 126. lþ.

[17:35]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Hér er verið að setja lög á Alþýðusamband Vestfjarða og Sjómannasamband Íslands, aðila sem eru annars vegar ekki aðilar að deilunni og hins vegar búnir að leysa sig frá henni með því að aflýsa verkfalli. Þetta er fáheyrt, herra forseti. Ég mótmæli þessu.