Áhrif álvers á Austurlandi

Mánudaginn 09. október 2000, kl. 15:34:51 (209)

2000-10-09 15:34:51# 126. lþ. 5.1 fundur 31#B áhrif álvers á Austurlandi# (óundirbúin fsp.), iðnrh.
[prenta uppsett í dálka] 5. fundur, 126. lþ.

[15:34]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):

Hæstv. forseti. Auðvitað er verið að skoða hluti. Til hvers á að nota það ár sem er fram undan ef ekki til þess að skoða hluti? Það kemur ekki á óvart að hv. þm. sé á móti þessum framkvæmdum og vilji bara fresta og halda áfram að horfa á fólkið flytja af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins. Það er hins vegar þannig með ríkisstjórnarflokkana að þeir eru að vinna gegn því og þetta er einn liður í þeim áætlunum.