Þátttaka Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu

Fimmtudaginn 12. október 2000, kl. 11:53:06 (436)

2000-10-12 11:53:06# 126. lþ. 9.5 fundur 24. mál: #A þátttaka Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu# þál., ÁGunn (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 9. fundur, 126. lþ.

[11:53]

Árni Gunnarsson (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vil líka að þau sjónarmið komi hér fram, þó að ég skilji sjónarmið hv. þm. Sighvats Björgvinssonar og fleiri um að viðkomandi fagráðherrar séu hér viðstaddir, að það er nauðsynlegt að þeir sem vilja ræða þessa tillögu og eru staddir í salnum fái tækifæri til þess.