[prenta uppsett í dálka] 9. fundur, 126. lþ.
Guðjón Guðmundsson (andsvar):
Herra forseti. Það hefur komið mjög skýrt fram hjá Norðmönnum, bæði í ýmsum úttektum og greinargerðum frá þeim og eins í blaðaviðtölum og víðar að þeir stunda hvalveiðar og hvalaskoðun á sömu slóðum, og þetta fer ágætlega saman.
Það er hins vegar rétt hjá hv. þm. að hvalaskoðunarmenn á Norðurlandi hafa, alla vega sumir forsvarsmenn þeirra, barist mjög gegn hvalveiðum, ómaklega að mér finnst. Ég hef reyndar aldrei skilið þá baráttu því að auðvitað eigum við, eins og ég sagði áðan, að reyna að nýta hvalastofna okkar á sem flestan hátt og bestan.
Ég heyrði viðtal í útvarpinu í sumar, við hvalaskoðunarskipstjóra á Breiðafirði sem var að sigla með fullan bát af erlendum túristum. Hann lýsti því einmitt hvað menn væru ánægðir og hefðu gaman af þessu, stórar skepnur og mikið að sjá, en hann tók einmitt skýrt fram, þessi ágæti skipstjóri, að við þyrftum auðvitað að veiða þessar skepnur líka.
Það hefur náttúrlega komið mjög skýrt fram að undanförnu í fjölmiðlum að togaraskipstjórar og fleiri segja að aldrei hafi verið önnur eins gríðarleg mergð á togaraslóð af stórhveli eins og núna. Lýsingarnar í nýlegu viðtali við skipstjórann á Hring frá Grundarfirði, sem staddur var á Halamiðum, voru náttúrlega ógnvekjandi. Hann sagði að það væri nánast hægt að labba á bökunum á þessum skepnum í sjónum.
Af því að hv. þm. nefndi hér tekjur af hvalaskoðun þá held ég að þær séu afskaplega mikið ýktar, því miður. Ég vildi að satt væri að þetta gæfi okkur milljarð. Fyrir tveimur, þremur árum þá gáfu þessir ágætu forsvarsmenn hvalaskoðunarinnar fyrir norðan upp að 20 þús. manns hefðu skoðað hvali og það hefði gefið okkur 800 millj., það voru 40 þús. kr. á haus. Núna segja þeir 40 og eitthvað þúsund og að tekjurnar séu milljarður, þetta er komið niður í 20 þús. á haus og ég held að hvor tveggja talan sé röng. Það kostar kannski þrjú þús. kr. í þessa túra og það þarf auðvitað enginn að segja okkur að það megi sjöfalda þá tölu eða tífalda til þess að finna heildartekjurnar af þessu. Það er einfaldlega rangt.