Fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri

Fimmtudaginn 12. október 2000, kl. 15:00:30 (478)

2000-10-12 15:00:30# 126. lþ. 9.6 fundur 25. mál: #A fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri# (fiskiðnaður) frv., Forseti GuðjG
[prenta uppsett í dálka] 9. fundur, 126. lþ.

[15:00]

Forseti (Guðjón Guðmundsson):

Vegna þessara óska vill forseti taka fram að það er auðvitað rétt sem hér hefur komið fram að sá málaflokkur sem hér er til umræðu er á verksviði hæstv. viðskrh. sem er viðstödd þessa umræðu. Það er í sjálfu sér ekki hægt að krefjast þess að aðrir hæstv. ráðherrar séu viðstaddir. En fyrst það er eindregin ósk hv. 1. flm. að fresta málinu þá verður orðið við því og þessari umræðu frestað.